
Tveir karlmenn voru í Héraðsdómi Vesturlands þriðjudaginn 15. október dæmdir til fangelsisvistar vegna aksturs undir áhrifum ólöglegra ávana- og fíkniefna og fyrir akstur eftir að hafa verið sviptir ökuréttindum. Annar maðurinn var dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar en hinn í 60 daga fangelsi. Báðir voru þeir sviptir ökurétti ævilangt. Of hratt, undir áhrifum og án…Lesa meira







