Fréttir

true

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi haldin í fyrsta sinn

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi verður haldin í fyrsta sinn á Akranesi föstudaginn 1. nóvember næstkomandi. Er hún haldin í tengslum við menningarhátíðina Vökudaga, sem stendur yfir í bænum frá 24. október til 3. nóvember. Á Heima-Skaga hátíðinni munu koma fram sex tónlistarmenn/flytjendur, sem spila tvisvar sinnum hver á sex stöðum á Akranesi. Á einu kvöldi verða því…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Vestlenskir framhaldsskólanemar kepptu í WestSide

Í gær fór fram í Borgarnesi árleg íþróttakeppni framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi. Keppnin nefnist WestSide en þar eigast við í skemmtilegum leik nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Keppt var í Gettu betur og ýmsum íþróttagreinum. Það var Fjölbrautaskóli Snæfellinga sem fór með sigur af hólmi í…Lesa meira

true

Vinirnir áfram með Bíóhöllina

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum síðasta fimmtudag tillögu menningar- og safnanefndar að samið verði við Vini hallarinnar ehf. um áframhaldandi rekstur og umsjón Bíóhallarinnar árin 2020-2023. Aðeins eitt tilboð barst í reksturinn þegar það var auglýst nú í haust, frá Vinum hallarinnar sem hafa annast reksturinn undanfarin ár og munu gera áfram.Lesa meira

true

Lög sem eiga að styrkja minnihlutavernd í veiðifélögum

Styrking minnihlutaverndar í veiðifélögum, aðkoma Hafrannsóknastofnunar að gerð arðskráa veiðiáa og afnám milligöngu hins opinbera um greiðslu kostnaðar af arðskrármati eru áherslur í nýju frumvarpi um breytingar á lögum um lax- og silungsveiði, sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi. Í frumvarpinu er að finna tillögur að þremur meginbreytingum á…Lesa meira

true

Ekki lengur þörf á að sjóða vatn úr Grábrókarhrauni

„Veitur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, aflétta hér með tilmælum til viðskiptavina vatnsveitu fyrirtækisins úr Grábrókarhrauni um suðu neysluvatns,“ segir í tilkynningu sem var að berast frá Veitum. „Sýni tekin úr vatnsbólinu sjálfu og víðar úr veitukerfinu síðustu daga hafa staðist gæðakröfur og settur hefur verið upp lýsingarbúnaður við vatnsbólið sem tryggir enn frekar…Lesa meira

true

Sveitarstjórn staðfesti Teigsskógarleið

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum síðdegis í gær breytingu á aðalskipulagi hreppsins sem felur í sér að Vestfjarðavegur verði lagður eftir svokallaðri Þ-H leið. Felur hún í sér veg um Teigsskóg og þverun þriggja fjarða; Þorskafjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Var skipulagsbreytingin samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur. Meirihluti sveitarstjórnar lagði fram þriggja síðna rökstuðning…Lesa meira

true

Styrktartónleikar fyrir ungar hetjur

Laugardaginn 26. október nk. verða styrktartónleikar fyrir Ester Eir og Ólavíu í Tónbergi sal Tónlistarskólans á Akranesi. Ester Eir og Ólavía eru ungar Skagastúlkur sem báðar glíma við erfið veikindi og mun allur ágóði tónleikanna renna til þeirra og fjölskyldna þeirra. Fram koma: Agnar Már Magnússon á píanó, Ari Bragi Kárason á trompet, Brynja Valdimarsdóttir…Lesa meira

true

Breyta afgreiðslutíma Arion banka

Útibú Arion banka í Stykkishólmi verður frá og með 1. nóvember næstkomandi opið frá klukkan 10 til 15 alla virka daga. Þessi nýi opnunartími felur í sér að útibúið verður opið í hádeginu á virkum dögum sem er breyting frá því sem verið hefur, en afgreiðslutíminn styttur um eina klukkustund í staðinn í báða enda.…Lesa meira

true

Besta birkið – rautt og grænt með kvöldskattinum í Borgarnesi

Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Rótarýklúbbur Borgarness hafa bundist höndum saman og efna til fundar miðvikudaginn 23. október næstkomandi með dr. Þorsteini Tómassyni plöntuerfðafræðingi, sem mun flytja erindi um kynbætur á íslenska birkinu. „Tekist hefur að rækta upp beinvaxið birki, sem er í senn með auknum vaxtarhraða, veðurþolið og fallegt og ný kvæmi eru þegar komin í…Lesa meira

true

Við nyrstu voga

Gissur Páll tenór og Árni Heiðar píanóleikari heimsækja Akranes og flytja íslensk sönglög af nýjum geisladiski, Við nyrstu voga, í Vinaminni á sunnudaginn. „Samstarf Gissurar Páls Gissurarsonar og Árna Heiðars Karlssonar spannar rúman áratug og hefur það verið afar farsælt. Þeir hafa nú tekið upp brot af því besta úr því samstarfi. Geisladiskurinn kemur út…Lesa meira