Fréttir

true

Söfnuðu tæpum tveimur kílóum af birkifræi

Nemendur við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum hafa á síðustu dögum unnið að birkifræsöfnun í nágrenni skólans. Myndaðist skemmtileg keppni á milli skólastiga en yngsta stigið safnaði mestu; 876 grömmum, en alls söfnuðu nemendurnir 1.895 gr. Í einu grammi af birkifræi geta komið upp 200-800 fræ svo alls söfnuðu nemendur efnivið í a.m.k. 785 þúsund birkitré.…Lesa meira

true

Æfðu björgun úr hæsta fjölbýlishúsi Borgarbyggðar

Þriðjudaginn 1. október hélt körfubílshópur Slökkviliðs Borgarbyggðar reglubundna æfingu sína. Að þessu sinni var æft við fjölbýlishúsið Borgarbraut 57 í Borgarnesi, en húsið er nýtt og þangað flytur þessi misserin fólk sem orðið er 50 ára eða eldra. Svo skemmtilega vildi til að daginn bar einmitt uppá Alþjóðadag aldraðra! Slökkvilið Borgarbyggðar keypti körfubíl fyrr á…Lesa meira

true

Ógilda millifærslur í makríl

Fiskistofa hefur synjað fjölmörgum beiðnum um millifærslu í markíl, þar sem jöfn skipti á makríl og bolfiski koma við sögu. „Stofnunin telur að flutningur sé óheimill þegar útgerð krókaaflamarksbáts sem hefur makrílheimildir í A-flokki hyggst láta af hendi heimildir í bolfiski í krókaaflamarki í skiptum fyrir makríl til aflamarksskips, sem býr yfir makrílheimildum í B-flokki,“…Lesa meira

true

Vel heppnað Akranesmeistaramót

Akranesmeistaramótið í sundi var haldið í Jaðarsbakkalaug miðvikudaginn 10. október síðastliðinn. Mótið var mjög vel heppnað, að því er fram kemur á Facebook-síðu Sundfélags Akraness. Alls tóku 28 sundmenn þátt, 11 ára og eldri, auk þess sem fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína á bakkann og hvöttu sundmennina áfram. Úrslit urðu þau að Akranesmeistarar í flokki…Lesa meira

true

Styrkur ríkisins til Landsbjargar og Safetravel hækkaður

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, hefur ákveðið að auka framlög til Landsbjargar fyrir verkefnið Safetravel í 40 milljónir króna á ári, en styðja auk þess við starf Landsbjargar um 75 milljónir króna. Ráðherra, Landsbjörg og Samtök ferðaþjónustunnar hafa nú undirritað nýjan þriggja ára samning sem hljóðar alls upp á 115 milljónir króna, en Landsbjörg er…Lesa meira

true

Aftur óstaðfestur grunur um gerla í Grábrókarveitu

Í morgun kom aftur upp grunur um gerlamengun í neysluvatni frá vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni í Borgarfirði. Vatnsbólið þjónar Borgarnesi, Bifröst og Varmalandi auk fjölda sumarhúsa og nokkurra lögbýla í Borgarfirði. „Þótt aðeins sé um grun að ræða mælast Veitur til þess að notendur á þessu svæði sjóði neysluvatn í öryggisskyni fram í miðja næstu…Lesa meira

true

Tveir Vestlendingar bjóða sig fram til forystu í VG

Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fer fram helgina 18.-20. október næstkomandi. Fram hefur komið að Mýramaðurinn Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra gefur kost á sér í stól varaformanns VG. Nú hefur sveitungi hans, Rúnar Gíslason úr Borgarnesi, ákveðið að gefa kost á sér í embætti gjaldkera flokksins. Tilkynning Rúnars um framboð er svohljóðandi: „Ég hef ákveðið…Lesa meira

true

Ævintýraleg árshátíð HVE

Árshátíð Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi var haldin síðastliðinn laugardag. Í tilefni hennar var deginum áður blásið til keppni meðal starfsfólks um best skreyttu deildina. Í ár voru ævintýri þema keppninnar. Hún fór þannig fram að fulltrúi hverrar deildar dró eitt ævintýri og skreyttu starfsmenn síðan sínar deildir eftir því þema. Ævintýrin voru Hans og Gréta,…Lesa meira

true

Sannfærandi sigur Skallagríms

Skallagrímskonur kræktu í fyrstu stig vetrarins í Domino‘s deildinni þegar þær unnu sannfærandi sigur á liði Grindavíkur, 74-59. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímur hafði heldur yfirhöndina í upphafi leiks, en gestirnir á Grindavík voru þó aldrei langt undan. Þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta höfðu Borgnesingar fjögurra stiga forskot, 14-10, en…Lesa meira

true

Ungmennahús í Stykkishólmi í undirbúningi

Í undirbúningi er stofnun ungmennahúss í Stykkishólmi, ætlað ungmennum á aldrinum 16 til 25 ára. Guðbjörg Halldórsdóttir er aðalhvatamaðurinn að stofnun ungmennahússins. Hún segir verkefnið enn á undirbúningsstigi en vonast til að það verði komið vel af stað eftir miðjan mánuðinn. „Ungmennahúsinu er ætlað að verða vettvangur fyrir ungmenni í Stykkishólmi að koma saman og…Lesa meira