Fréttir

true

Alvarlegt bílslys á sunnanverðu Snæfellsnesi

Laust eftir hádegi í dag varð alvarlegt bílslys á sunnanverðu Snæfellsnesi skammt frá Gröf í Miklaholtshreppi. Lítill bíll með fimm erlenda ferðamenn innanborðs fór útaf veginum og valt. Mikill viðbúnaður viðgbragðsaðila á Vesturlandi var vegna slyssins. Meðal annars fóru tækjabílar frá slökkviliðunum úr Stykkishólmi og Borgarnesi á vettvang, sem og lögregla og sjúkrabílar frá Ólafsvík,…Lesa meira

true

Askurinn – Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki

Askurinn – Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki 2019, verður haldin í nóvember og er Matís faglegur umsjónaraðili keppninnar. Matís hefur áður staðið að verðlaunakeppni í matarhandverki árið 2014, þá í samstarfi við Ný norræn matvæli (Ny Nordis Mad), þar sem 110 vörur kepptu í átta matvöruflokkum frá öllum Norðurlöndunum. Að keppninni stendur Matís ohf í samstarfi við…Lesa meira

true

Hafna alfarið hugmyndum um stofnun Miðhálendisþjóðgarðs

Undirbúningur að stofnun Miðhálendisþjóðgarðs hefur staðið yfir undanfarin tvö ár og þeirri vinnu verið stýrt af þverpólitískri nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu sem umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði í apríl 2018 í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Nefndinni er m.a. ætlað að skilgreina mörk væntanlegs Miðhálendisþjóðgarðs og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í…Lesa meira

true

Vel heppnað Akranesmeistaramót í sundi

Akranesmeistaramótið í sundi var haldið í Jaðarsbakkalaug miðvikudaginn 10. október síðastliðinn. Mótið var mjög vel heppnað, að því er fram kemur á Facebook-síðu Sundfélags Akraness. Alls tóku 28 sundmenn þátt, 11 ára og eldri, auk þess sem fjölmargir gestir lögðu leið sína á bakkann og hvöttu sundmennina áfram. Úrslit urðu þau að Akranesmeistarar í flokki…Lesa meira

true

Bleikt þema á Morgunstund í Brekkubæjarskóla

Fjölmenni mætti að vanda í Morgunstund í Brekkubæjarskóla á Akranesi, en fyrst slíkra gæðastunda á haustönn var í gærmorgun í íþróttahúsinu. „Að venju var mikið um dýrðir og fjöldi nemenda steig á stokk. Áhorfendapallarnir voru þétt setnir og bleikur litur var áberandi í húsinu í tilefni af bleikum október,“ segir í frétt skólans. Fleiri myndir…Lesa meira

true

Meirihluti skipulagsnefndar leggst gegn Teigsskógarleið

Skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefnd Reykhólahrepps fjallaði um aðalskipulagsbreytingu vegna Vestfjarðavegar á fundi sínum á miðvikudag. Þar var farið yfir drög að svörum við umsögnum og athugasemdum við tillögu að breyttu skipulagi. Minnihluti nefndarinnar taldi að brugðist hefði verið við öllum athugasemdum og lagði til að tillögunni yrði vísað til samþykktar í sveitarstjórn. Meirihluti nefndarinnar lagði…Lesa meira

true

Búið er að staðfesta gerlamengun í vatni úr Grábrókarveitu

Veitur og Heilbrigðiseftirlit Vesturlands ítreka nú rétt í þessu tilmæli frá í gær um að viðskiptavinir vatnsveitu Veitna úr Grábrókarhrauni sjóði allt neysluvatn. Vatnsbólið þjónar Borgarnesi, Bifröst og Varmalandi auk fjölda sumarhúsa og nokkurra lögbýla í Borgarfirði. „Í morgun barst staðfesting á grun um gerlamengun í vatninu. Hvorttveggja kólí og E.coli gerlar fundust í sýninu…Lesa meira

true

Gestirnir númeri of stórir

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki, 67-69, þegar liðin mættust í Borgarnesi í gærkvöldi. Gestirnir úr Kópavogi reyndust einu númeri of stórir fyrir Borgnesinga að þessu sinni. Breiðablik tók stjórn leiksins snemma í sínar hendur og lét hana aldrei af hendi. Jafnræði var með liðunum framan af upphafsfjórðungnum. Blikar höfðu heldur yfirhöndina en Skallagrímsmenn fylgdu þeim eins…Lesa meira

true

Lagt til að stjórn MB verði skipuð sex aðalfulltrúum

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var samþykkt með fimm atkvæðum meirihluta sveitarstjórnar tillaga þess efnis að stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. verði framvegis skipuð sex aðilum, fimm frá Borgarbyggð (sem á 92% hlutafjár) og einum frá öðrum hluthöfum (8%) og jafn mörgum varamönnum kjörnum á aðalfundi. Kjörtímabil stjórnar verður það sama og sveitarstjórnar. Þar sem…Lesa meira

true

Deiliskipuleggja svæðið umhverfis íþróttamiðstöð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt lýsingu á skipulagsverkefni fyrir Borgarvog í Borgarnesi. Fyrirhugað er að vinna nýtt deiliskipulag fyrir íþróttasvæðið í Borgarnesi ásamt Þorsteinsgötu, Kjartansgötu, Skallagrímsgötu og hluta Borgarbrautar. Ekkert deiliskipulag hefur verið í gildi á stærstum hluta svæðisins þó svæðið sé í raun fullbyggt. „Í deiliskipulaginu verður gert ráð fyrir viðbyggingu við íþróttahúsið á fyllingu…Lesa meira