Fréttir

true

Dýpka Arnarstapahöfn

Í síðustu viku var hafist handa við að dýpka höfnina á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Síðast var höfnin dýpkuð fyrir tíu árum, að sögn Björns Arnaldssonar hafnastjóra Snæfellsbæjar. Höfnin verður dýpkuð úr tveimur metrum í þrjá metra og alls um fjögur þúsund rúmmetrar sem verða fluttir úr henni. Það er Haftak ehf í Hafnarfirði sem vinnur…Lesa meira

true

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 19,8%, einu og hálfu prósentustigi meira en við mælingu MMR í september. Fylgi Miðflokksins mældist 14,8% og jókst um tæp þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Þá minnkaði fylgi Pírata um rúmlega þrjú og hálft prósentustig og fylgi Vinstri-grænna minnkaði um tvö og hálft prósentustig. Stuðningur við ríkisstjórnina dalar, mælist nú 42,0%,…Lesa meira

true

Bilun í símkerfi Mílu

Símalína Mílu milli Akraness og Borgarness er nú slitin. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að viðgerðateymi sé komið á staðinn til viðgerða.Lesa meira

true

„Mamma og amma eru farnar að stelast í förðunardótið mitt“

Þegar blaðamaður kom í heimsókn til að taka viðtal við unga Skagadömu um förðun, þá hefði hæglega verið hægt að rugla stofunni í húsinu við Kirkjubraut á Akranesi við há-klassa snyrtistofu, miðað við hvernig öllu var stillt upp í rýminu. Þarna var hvítur leðurklæddur hástóll, björt og góð lýsing, ásamt því að búið var að…Lesa meira

true

Grófu niður á olíumengaðan jarðveg

Vinna stendur yfir um þessar mundir við endurbætur á Breiðarsvæðinu á Akranesi. Það er fyrirtækið Íslandsgámar ehf. sem annast verkið. Í því felst meðal annars að jarðvegsskipta þarf hluta svæðisins og leggja nýtt yfirborðsefni. Í síðustu viku stöðvuðust framkvæmdir þegar grafið var niður á sökkul undan gamalli olíuuppdælingarstöð. Þá kom einnig í ljós olíumengaður jarðvegur.…Lesa meira

true

„Ég kem með tvö alveg ný og fersk augu“

María Neves var nýverið ráðin í stöðu verkefnastjóra atvinnu-, markaðs- og menningarmála hjá Borgarbyggð. Um er að ræða nýja stöðu sem snýr meðal annars að stefnumótun og markmiðasetningu í atvinnu-, upplýsinga- og menningarmálum sveitarfélagsins og tók María við starfinu 16. september síðastliðinn. Hún er fædd í Portúgal en flutti til Íslands sem ungabarn og ólst…Lesa meira

true

Ræddu aðbúnað og aðstöðu barna í Rifi

Unga kynslóðin í Snæfellsbæ lætur sig málefni bæjarfélagsins varða. Þau Ísak, Stefanía og Eirný Svana frá Rifi mættu á bæjarskrifstofuna þriðjudaginn 8. október síðastliðinn og ræddu við Kristinn Jónasson bæjarstjóra og Valgerði Hlín Kristmannsdóttur, aðstoðarmann byggingafulltrúa, um bætta aðstöðu og aðbúnað barna í Rifi. Komu þau vel undirbúin til fundarins og fóru yfir endurbætur leikvallarains…Lesa meira

true

Acadian Seaplants kynntu áform sín í Stykkishólmi

Nálægt eitt hundrað manns sóttu íbúafund í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í gærkvöldi. Þar var til kynningar fyrirhuguðu rannsóknar-, vinnslu og afurðamiðstöð þangs á vegum kanadíska fyrirtækisins Acadian Seaplants. Bæjaryfirvöld eiga nú sem kunnugt er í viðræðum við fyrirtækið um frekari framvindu þeirra mála. Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri setti fundinn áður en Jean-Paul Deveau, forstjóri Acadian…Lesa meira

true

Haustið læðist yfir

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan 8-13 m/s og að víða verði rigning á morgun, fimmtudag. Jafnvel talsverð rigning fyrir norðan og austan og snjókoma til fjalla. Bjart verður með köflum á Suður- og Vesturlandi. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast syðst. Áfram norðaustanátt á föstudag og stöku skúrir, en dálítil rigning með norðurströnd landsins. Snjókoma…Lesa meira

true

Elsta stig grunnskólanna á Tæknimessu á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 10. október, fer fram Tæknimessa í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Messan hefst kl. 9:30 og stendur til kl. 14. Þangað eru væntanlegir nemendur elsta stigs grunnskólanna á Vesturlandi, 8.-10. bekkja, alls um 750 manna hópur með kennurum. Nokkur fyrirtæki verða að auki og kynna sína starfsemi og allar iðnbrautir í FVA verða…Lesa meira