Fréttir

true

Orðsending til áskrifenda í Rifi

Áskrifendur Skessuhorns í Rifi á Snæfellsnesi athugið: Blaðapakki Rifs fór á flæking í nótt og var blað vikunnar því ekki borið í hús í morgun. Búið er að koma nýjum blaðapakka áleiðis á Snæfellsnes og verða blöðin borin í hús í fyrramálið. Sömuleiðis tapaðist pakki með lausasölublöðum í Söluskála ÓK í Ólafsvík og verða þau…Lesa meira

true

Lions gefur leikskólanum nýja fjórburakerru

Lionsklúbbur Grundarfjarðar kom færandi hendi á dögunum á Leikskólann Sólvelli og gaf nýja fjórburakerru fyrir yngstu börnin á leikskólanum. Nú eru stærri árgangar að koma inn í leikskólann á næstunni og því mikil þörf fyrir þessa viðbót. Anna Rafnsdóttir tók við gjöfinni frá Guðmundi Smára Guðmundssyni formanni Lionsklúbbs Grundarfjarðar.Lesa meira

true

„Gegnumsneitt höfðum við alveg ótrúlega mikið frelsi“

Garðar Geir Sigurgeirsson fæddist í Reykjavík 9. febrúar 1953 og er elstur fimm systkina. Fjölskyldan flutti til Ólafsvíkur þegar hann var þriggja ára gamall og þar sleit han barnsskónum. Í dag býr Garðar á Akranesi ásamt sambýliskonu sinni, Guðnýju Elínu Geirsdóttur. Saman njóta þau tilverunnar og samvistanna með fjölskyldunni. Bæði eiga þau börn af fyrri…Lesa meira

true

Vladimir rekinn frá Snæfelli

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Snæfells hefur ákveðið að rifta samningi sínum við körfuknattleiksþjálfarann Vladimir Ivankovic, sem þjálfað hefur karlalið Snæfells frá því haustið 2018. Baldur Þorleifsson og Jón Þór Eyþórsson hafa tekið tímabundið við þjálfun liðsins, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Snæfells. Vladimir tók við karlaliði Snæfells fyrir keppnistímabilið 2018-2019. Ungt lið Snæfells…Lesa meira

true

Lærdómssamfélagið var viðfangsefni íbúaþings á Akranesi

Síðastliðinn miðvikudag fór fram áhugavert íbúaþing í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Heiti þess var Lærdómssamfélagið Akranes og til umfjöllunar voru mennta- og frístundamál í víðasta samhengi út frá öllum skólastigum. Leitast var við að skilgreina hvað felst í samfélagi sem vill skapa frjótt og uppbyggilegt lærdómssamfélag íbúum til hagsældar. Um 120 manns sóttu þingið. Þorri…Lesa meira

true

„Erum allir á seinni hlutanum á ferlinum“

Grundfirðingar hefja leik í 3. deild karla í körfuknattleik næstkomandi laugardag, 12. október, þegar þeir mæta B-liði Skallagríms á heimavelli. Aðalsteinn Jósepsson, Steini Jobba, er spilandi þjálfari liðs Grundfirðinga eins og á síðasta ári. Aðspurður segir hann að stemningin í liðinu gæti verið betri núna í vikunni fyrir mót. „Það hafa verið mikil forföll á…Lesa meira

true

Veiktist af kannabisneyslu

Ungmenni á Akranesi veiktist eftir að hafa neytt kannabisefnis síðdegis síðastliðinn fimmudag. Þurfti að flytja viðkomandi á spítala vegna veikindanna. Að sögn lögreglu virðist þetta tilfelli tengt rafrettum. Þá er thc, virka efni kannabisplöntunnar, blandað saman við rafrettuvökvann og efnisins síðan neytt í gegnum rafrettuna.Lesa meira

true

Skiluðu tillögum um starfsþróun kennara

Samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnenda skilaði á dögunum tillögum til Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra um framtíðarsýn fyrir starfsþróun kennara hér á landi. Tillögur þessar eru nýmæli þar sem ekki hefur legið fyrir sameiginleg framtíðarsýn á málefni starfsþróunar t.d. milli ólíkra skólastiga og rekstraraðila skóla. „Starfsþróun getur m.a. falið í sér formlegt nám og…Lesa meira

true

Lögð til breyting á hluthafasamkomulagi

Næstkomandi föstudag hefur verið boðað til fundur hluthafa í Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. Á dagskrá fundarins eru breytingar á hluthafasamkomulagi og í kjölfar þess stjórnarkjör samkvæmt því. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns fyrr í haust hefur ríkt óánægja meðal fulltrúa meirihlutans í sveitarstjórn Borgarbyggðar að hafa ekki formann stjórnar menntaskólans, í ljósi þess að…Lesa meira

true

Þjóðararfur í þjóðareign

Vilhjálmur Bjarnason færði á dögunum Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra gjafabréf útgáfuréttar að sex binda útgáfu þjóðsagna Jóns Árnasonar sem fræðimennirnir Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson tóku saman og gáfu út á árunum 1954-1961. Þar er um að ræða aðra útgáfu sagnanna sem Jón Árnason safnaði og margir Íslendingar kannast við og er sú útgáfa…Lesa meira