Fréttir

true

Meistararnir of stór biti

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Íslandsmeisturum Hauka, 110-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Reykjavík. Snæfellskonur mættu ákveðnar til leiks, léku sterka vörn og höfðu yfiröndina á upphafsmínútunum. Valskonur fundu þó taktinn snemma og voru búnar að jafna í 10-10 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður, 10-10.…Lesa meira

true

Skólamálaþing snæfellskra skólastofnana

Miðvikudaginn 2. október var starfsdagur í flestum skólum á Snæfellsnesi. Þá var skólamálaþing snæfellskra skólastofnana haldið á Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Mjög góð mæting var á þingið en undirskrift þess var „líðan og samskipti í skólastarfi“. Eyþór Eðvarðsson hjá Þekkingarmiðlun var með fyrirlestur um hamingju, móral, vinnugleði og helvíti á vinnustöðum en þar var farið yfir samskipti.…Lesa meira

true

„Ég hef alltaf verið mjög andleg manneskja“

“Jóga er allur pakkinn, líkamsrækt, núvitund, slökun, hugleiðsla og bara allt það sem lætur okkur líða betur,“ segir Helga Guðný Jónsdóttir jógakennari á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Helga Guðný kynntist jóga fyrst í kringum aldarmótin þegar hún mætti í jógatíma í Kópavogi en það var svo ekki fyrr en árið 2011 þegar áhuginn á…Lesa meira

true

Dýpka Arnarstapahöfn

Í síðustu viku var hafist handa við að dýpka höfnina á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Síðast var höfnin dýpkuð fyrir tíu árum, að sögn Björns Arnaldssonar hafnastjóra Snæfellsbæjar. Höfnin verður dýpkuð úr tveimur metrum í þrjá metra og alls um fjögur þúsund rúmmetrar sem verða fluttir úr henni. Það er Haftak ehf í Hafnarfirði sem vinnur…Lesa meira

true

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 19,8%, einu og hálfu prósentustigi meira en við mælingu MMR í september. Fylgi Miðflokksins mældist 14,8% og jókst um tæp þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Þá minnkaði fylgi Pírata um rúmlega þrjú og hálft prósentustig og fylgi Vinstri-grænna minnkaði um tvö og hálft prósentustig. Stuðningur við ríkisstjórnina dalar, mælist nú 42,0%,…Lesa meira

true

Bilun í símkerfi Mílu

Símalína Mílu milli Akraness og Borgarness er nú slitin. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að viðgerðateymi sé komið á staðinn til viðgerða.Lesa meira

true

„Mamma og amma eru farnar að stelast í förðunardótið mitt“

Þegar blaðamaður kom í heimsókn til að taka viðtal við unga Skagadömu um förðun, þá hefði hæglega verið hægt að rugla stofunni í húsinu við Kirkjubraut á Akranesi við há-klassa snyrtistofu, miðað við hvernig öllu var stillt upp í rýminu. Þarna var hvítur leðurklæddur hástóll, björt og góð lýsing, ásamt því að búið var að…Lesa meira

true

Grófu niður á olíumengaðan jarðveg

Vinna stendur yfir um þessar mundir við endurbætur á Breiðarsvæðinu á Akranesi. Það er fyrirtækið Íslandsgámar ehf. sem annast verkið. Í því felst meðal annars að jarðvegsskipta þarf hluta svæðisins og leggja nýtt yfirborðsefni. Í síðustu viku stöðvuðust framkvæmdir þegar grafið var niður á sökkul undan gamalli olíuuppdælingarstöð. Þá kom einnig í ljós olíumengaður jarðvegur.…Lesa meira

true

„Ég kem með tvö alveg ný og fersk augu“

María Neves var nýverið ráðin í stöðu verkefnastjóra atvinnu-, markaðs- og menningarmála hjá Borgarbyggð. Um er að ræða nýja stöðu sem snýr meðal annars að stefnumótun og markmiðasetningu í atvinnu-, upplýsinga- og menningarmálum sveitarfélagsins og tók María við starfinu 16. september síðastliðinn. Hún er fædd í Portúgal en flutti til Íslands sem ungabarn og ólst…Lesa meira

true

Ræddu aðbúnað og aðstöðu barna í Rifi

Unga kynslóðin í Snæfellsbæ lætur sig málefni bæjarfélagsins varða. Þau Ísak, Stefanía og Eirný Svana frá Rifi mættu á bæjarskrifstofuna þriðjudaginn 8. október síðastliðinn og ræddu við Kristinn Jónasson bæjarstjóra og Valgerði Hlín Kristmannsdóttur, aðstoðarmann byggingafulltrúa, um bætta aðstöðu og aðbúnað barna í Rifi. Komu þau vel undirbúin til fundarins og fóru yfir endurbætur leikvallarains…Lesa meira