Fréttir

true

Dagur og nótt í lífi Landans

Dagur í lífi Landans verður fyrsti þáttur haustsins af sjónvarpsþættinum Landanum í Ríkissjónvarpinu. Þátturinn verður sá þrjúhundraðasti í röðinni og verður með allt öðru sniði en venjulegir þættir. Dagskráin hefst eftir fréttir á RUV sunnudaginn 22. september og útsendingu lýkur ekki fyrr en sólarhring síðar, eða eftir fréttir mánudaginn 23. september. Fimm umsjónarmenn, ásamt tökuliði,…Lesa meira

true

Ráðherra kynnir hugmyndir varðandi Sundabraut

Ríkið og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eiga nú í viðræðum vegna væntanlegrar Sundabrautar. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir frá málinu á Facebook síðu sínni. „Nokkrir möguleikar koma til greina um hvar og hvernig best sé að leggja hana [Sundabraut] og hvernig megi auðvelda umferð á milli miðborgar og Grafarvogs, létta á umferð á höfuðborgarsvæðinu og stytta…Lesa meira

true

Sigrún Sjöfn áfram með Skallagrími

Körfuknattleikskonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur endurnýjað samning sinn við Skallagrím. Mun hún því leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Sigrún er þrítug að aldri, fyrirliði Skallagríms og reynslumesti leikmaður liðsins, en hún á að baki á þriðja hundrað leikja í efstu deild. Á sínum ferli hefur hún hampað bæði Íslands-…Lesa meira

true

Þjóðahátíð haldin á Akranesi á sunnudaginn

Félag nýrra Íslendinga gengst fyrir árlegri þjóðahátíð sunnudaginn 22. september klukkan 14-17. Hátíðin verður að þessu sinni haldin í Íþróttahúsinu við Jaðarsbakka á Akranesi og eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Sem fyrr er það Pauline McCarthy, formaður Félags nýrra Íslendinga, sem skipuleggur hátíðina. „Það verður fólk frá tuttugu löndum sem kemur og kynnir sín…Lesa meira

true

Umhverfismál aðalþema haustþings SSV

Árlegt haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fer fram í Klifi í Ólafsvík næstkomandi miðvikudag. Þema þingsins að þessu sinni verður umhverfismál. Á þinginu verður fjárhagsáætlun og starfsáætlun SSV kynnt og lögð fram tillaga að Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024. Á þinginu starfa fjórir vinnuhópar og fjalla um fjármál og starfsemi SSV, samgöngumál, opinbera þjónusta og atvinnu- og…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2019

Löng hefð er fyrir því að sveitarfélagið Borgarbyggð veiti umhverfisverðlaun þar sem veittar eru viðurkenningar fyrir snyrtimennsku. Hafa verðlaunin verið afhent á Sauðamessu að hausti en þar sem hátíðin hefur nú lagst af var boðað til sérstakrar móttöku í Ráðhúsi Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag. Dagskránni stýrðu þau Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri og Margrét Vagnsdóttir formaður umhverfis-…Lesa meira

true

Flæðir yfir þjóðveginn við Þverá

Eins og íbúar um Vestanvert landið hafa orðið varir við hefur mikið rignt í landshlutanum undanfarna sólarhringa. Vatnavöxtur er mikill í ám og lækjum og er víða farinn að raska samgöngum. Skriða féll á Skarðsstrandarveg í gær, Svínadalsvegur fór í sundur við Súluá og Langavatnsvegur var ófær sökum vatnavaxta, svo dæmi séu tekin. Allvíða eru…Lesa meira

true

Sneru heim með gullverðlaun

Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum var haldið í Garðabæ helgina 14.-15. september, sem og Íslandsmeistaramótið í bekkpressu. Kraftlyftingafélag Akraness átti tvo fulltrúa á Íslandsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum, sem báðir fóru með sigur af hólmi í sínum flokkum. Kristín Þórhallsdóttir fagnaði sigri í 84 kg flokki kvenna. Hún lyfti 165 kg í hnébeygju, 80 kg í bekkpressu…Lesa meira

true

Berjadalsáin í ham

Neysluvatn Akurnesinga er sótt í Akrafjall, en stífla er neðarlega í hlíðum fjallsins og safnar vatni úr Berjadalsánni. Í rigningunum undanfarna daga hefur heldur betur vaxið í ánni. Þessar myndir voru teknar í morgun. Þar sést hvernig vatnið spýtist úr fossinum og á leið sinni í lónið. Á hinni myndinni er áin nokkru neðan við…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Mikil flóð í ám og lækjum á Vesturlandi

Vegna mikillar úrkomu er nú appelsínugul viðvörun í gildi fyrir Faxaflóa,Breiðafjörð og Vestfirði. Búist er við áframhaldandi vatnavöxtum í dag í ám og lækjum sem stórlega eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Slíkt hefur nú þegar raskað samgöngum þar sem vegir hafa farið undir vatn og ræsi gefið eftir. Í dag er það einkum sunnanvert…Lesa meira