Fréttir

true

Reisa hús fyrir nýja kjötvinnslu í Borgarfirði

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýrrar kjötvinnslu á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Bændurnir Hörður Guðmundsson og Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir standa fyrir framkvæmdum og hafa stofnað fyrirtækið Grímsstaðakjet ehf. Þau ætla að opna kjötvinnslu í húsinu þegar framkvæmdum lýkur og öll tilskilin leyfi verða komin í hús. „Við ætlum að einblína á vinnslu á kjöti sem við…Lesa meira

true

Hausthátíð Skallagríms verður 5. október

Knattspyrnudeild Skallagríms í Borgarnesi stendur fyrir hoppi og híi, glensi og gamni og ýmsum ólátum á Hausthátíð laugardaginn 5. október og fram eftir nóttu. Hátíðin tekur nú við af Sauðamessu sem haldin var um árabil í Borgarnesi á þessum tíma, en í síðasta skipti í fyrrahaust. Sauðamessu hafa margir burtfluttir Borgnesingar nýtt til að koma…Lesa meira

true

Meginstreymi sendir frá sér nýtt lag

Hljómsveitin Meginstreymi sendi á laugardaginn frá sér sína aðra smáskífu, en hún nefnist Í huga þér. Lagið er komið á Spotify, Youtube og allar helstu streymisveitur. Fyrsta smáskífa Meginstreymis kom út í fyrra og ber nafnið Það sem enginn vita má. Það lag kom út í tveimur útgáfum, annars vegar með hljómsveit og einnig acapella.…Lesa meira

true

Nú standa göngur og réttir sem hæst

Undanfarna daga og vikur hafa bændur og aðstoðarfólk þeirra gengið á fjöll, smalað fé og rekið til rétta. Í Skessuhorni sem kom út í dag er litið við í nokkrum réttum í landshlutanum og á fjórða tug mynda birtar úr þeim. Hér má sjá feðginin Jón Egil Jóhannsson og Alexöndru Rut samheldin í rekstri í…Lesa meira

true

Utanríkisráðherrar funduðu í Borgarnesi

Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funduðu á Hótel Hamri í Borgarnesi í síðustu viku. Það var Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, sem boðaði til fundanna í sínum gamla heimabæ, en Ísland gegnir nú formennsku í utanríkjamálasamstarfi ríkjanna. Á fundunum voru til umræðu öryggis- og varnarmál, þar með talin netöryggismál, norðurslóðir, málefni hafsins og loftslagsbreytingar. Alþjóða- og…Lesa meira

true

Óhapp í umferðinni í Snæfellsbæ

Bíll valt á gatnamótum Útnesvegar og Háarifs í Snæfellsbæ á sunnudagskvöld. Ökumaður taldi sig hafa ekið of geyst í beygjuna með þeim afleiðingum að hann missti bílinn út af veginum þar sem hann lenti á ljósastaur og tengikassa og valt að lokum. Ökumaður og farþegi voru fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar.Lesa meira

true

Einn tveir og elda býður Vestlendingum að fá tilbúna matarkassa

Einn, tveir og elda er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að útbúa matarpakka sem eru til sölu á www.einntveir.is og ætlar fyrirtækið að færa út kvíarnar í þessum mánuði og gefa Vestlendingum tækifæri á að njóta þjónustunnar sem hefur til þessa eingöngu verið í boði á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. Einn tveir og elda útbýr…Lesa meira

true

Útflutningur verður ekki altæk lausn fyrir sorpförgun á Íslandi

„Urðun úrgangs er ekki besti og fjarri því eini kosturinn í afsetningu þess úrgangs sem neyslusamfélag manna framleiðir. Hún er hins vegar ekki eins slæm lausn og oft er látið í veðri vaka og í sumum tilfellum eina leiðin sem við höfum til að farga og koma varanlega fyrir þeim úrgangi sem við sitjum uppi…Lesa meira

true

Úrhellisrigning í dag um suðvestanvert landið

Veðurstofan hefur sent frá sér gula viðvörun vegna mikillar rigningar í dag um suðvestanvert landið; þ.m.t. höfuðborgarsvæðið og Faxaflóa. „Það verður talsverð eða mikil rigning. Búast má við auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig er aukið álag á…Lesa meira

true

Námskeið um Sturlu Þórðarson og Sturlungu

Um langt árabil hafa Snorrastofa, Landnámssetur Íslands og Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi staðið fyrir námskeiði um fornsögur, sem farið hefur fram yfir vetrarmánuðina til skiptis í Landnámssetri og Snorrastofu. Námskeið vetrarins 2019-2020 verður um Sturlu Þórðarson og hans þátt í Sturlungu og það þótti því vel við hæfi að leita til nýstofnaðs Sturlufélags í Dölum um…Lesa meira