Fréttir

true

Einar á Skörðugili fallinn frá

Einar Eylert Gíslason fyrrverandi bóndi, ráðunautur og bústjóri, er látinn 86 ára að aldri. Einar var fæddur 5. apríl 1933 á Akranesi. Foreldrar hans voru Gísli Eylert Eðvaldsson hárskerameistari og Hulda Einarsdóttir kaupkona. Einar lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri, var síðan í verklegu búfræðinámi í Danmörku og Svíþjóð en útskrifaðist sem búfræðikandídat frá Hvanneyri 1955. Einar…Lesa meira

true

Úrkomusamt og hvasst í morgun

Í morgun gerði hvassa suðvestanátt um vestanvert landið. Eitthvað var um að lausir munir tækju á rás á Akranesi og þar voru björgunarfélagsmenn kallaðir út í morgun að beiðni lögreglu. Þakplötur voru þá farnar að losna á húsi við Sandabraut. Veður hefur nú gengið niður en úrhellisrigning tekið við. Veðurspá gerir ráð fyrir að úrkomubakkinn…Lesa meira

true

Varað er við mikill úrkomu á morgun

Gul viðvörun Veðurstofu er vegna mikillar úrkomu sem er spáð um allt sunnan- og vestanvert landið á morgun, laugardag: „Talsverð eða mikil rigning. Búast má við vatnavöxtum í ám og lækjum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát. Á svæðum þar sem úrkoma verður mest má búast við skriðum og grjóthruni í brattlendi.“Lesa meira

true

Banna innflutning á hundum frá Noregi

Á síðustu dögum hafa borist fréttir af alvarlegum veikindum í hundum í Noregi. Talsverður fjöldi hunda hefur veikst og samkvæmt síðustu upplýsingum er talið að á annan tug hunda hafi drepist en þeir gætu verið fleiri. Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um að heimila ekki innflutning hunda frá Noregi þar til nánari upplýsingar um orsök veikindanna…Lesa meira

true

Útsýnispallur tilbúinn við Gatklettinn á Arnarstapa

Á síðasta ári fékk Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull úthlutað peningum úr Innviðaáætlun ríkisstjórnarinnar til uppbyggingu á fjölmörgum ferðamannastöðum. Meðal þeirra framkvæmda sem farið var í fyrir fjármagnið sem fékkst var endurnýjun á útsýnispalli við Gatklett á Arnarstapa, en þar er gríðarlegur fjöldi ferðamanna sem kemur á ári hverju. Byggingaverktakinn Kvistfell sá um verkið og var nýr og…Lesa meira

true

Sunnudagaskóli hefst á sunnudaginn

Í Akraneskirkju er stefnt á sunnudagaskóla fyrir börn í vetur. Fyrsti sunnudagaskólinn verður næstkomandi sunnudag klukkan 11:00. Þangað eru foreldrar hvattir til að koma með börn sín. Allar nánari upplýsingar er að finna á Facebook síðunni Barnastarf kirkjunnar. -fréttatilkynningLesa meira

true

Boðar fyrirlestur um fuglaljósmyndun

Sigurjón Einarsson ljósmyndari heldur fyrirlestur í Safnahúsi Borgarfjarðar kl. 19.30 fimmtudaginn 12. september. Fyrirlesturinn verður um fugla í borgfirskri náttúru þar sem fjallað verður um helstu fugla sem finna má í héraði og ljósmyndir af þeim sýndar um leið. Vistgerðir í Borgarfirði er margar og því breiða fuglafánu þar að finna. Sigurjón starfar sem náttúrufræðingur…Lesa meira

true

Opnar málverkasýningu á Bókasafni Akraness

Í dag, föstudaginn 6. september klukkan 16, mun Þórunn Bára Björnsdóttir listmálari opna málverkasýningu með yfirskriftinni Mosató, í Bókasafni Akraness. Þórunn Bára fæst við náttúruskynjun og samspil manns og umhverfis í verkum sínum og telur hún að list í samvinnu við náttúruvísindi geti aukið skilning á mikilvægi bættrar umgengni við náttúruna og það verði einnig…Lesa meira

true

Rússlandsforseti ræsti íslenska hátækniverksmiðju

Vladimír Pútín Rússlandsforseti ræsti síðastliðinn miðvikudag nýja uppsjávarverksmiðju fyrir rússneska útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Gidrostroy á Eastern Economic Forum í Vladivostok. Íslensku tæknifyrirtækin Skaginn 3X, Frost og Rafeyri höfðu veg og vanda að uppsetningu tæknibúnaðar í verksmiðjuna, sem staðsett er á Shikotan-eyju í Kúríleyjaklasanum við austurströnd Rússlands. Fyrirtækin undirrituðu samninginn um uppsetninguna á síðasta ári og…Lesa meira

true

Áslaug Arna tekur í dag við sem dómsmálaráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Reykvíkinga, verður dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti þessa ákvörðun sína í gær og verður hún svo sett í embætti á ríkisráðsfundi síðdegis í dag. „Áslaug er einn efnilegasti stjórnmálamaður Íslands. Hún hefur komið af miklum krafti inn í þingið og stýrt af öryggi…Lesa meira