Fréttir

true

Samantekt frá Landsmóti hestamanna

Landsmót hestamanna var haldið í vægast sagt mögnuðu umhverfi Hóla í Hjaltadal dagana 27. júní til 3. júlí og gekk allt vel að sögn bæði gesta og mótshaldara. Um átta þúsund manns mættu á svæðið til að horfa á knapa leika listir sínar með hestum sínum og var samhljómur meðal mótsgesta að fyrirkomulagið á keppninni…Lesa meira

true

Nýr skipulags- og umhverfisfulltrúi í Hvalfjarðarsveit

Mánudaginn 4. júlí síðastliðinn tók Lulu Munk Andersen byggingafræðingur við starfi skipulags- og umhverfisfulltrúa í Hvalfjarðarsveit af Ólafi Melsted. Lulu starfaði síðast sem skipulags- og byggingafulltrúi í Borgarbyggð. Áður hafði Lulu starfað sem byggingafulltrúi í Fjarðarbyggð frá árinu 2008 og aðstoðarmaður skipulags- og byggingafulltrúa frá árinu 2006.Lesa meira

true

Hollvinasamtök HVE afhentu tvö ný tæki

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands afhenti HVE tvö ný tæki við athöfn í síðustu viku sem fram fór á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi. Við þetta tækifæri sagði Steinunn Sigurðardóttir formaður hollvinasamtakanna stuttlega frá starfsemi samtakanna og tilgangi þeirra. Hún ræddi um mikilvægi þess að heilbrigðisstofnunin okkar væri vel búin tækjum og búnaði. Að ávarpi loknu afhenti Steinunn Guðrúnu…Lesa meira

true

Fjölgar í Hólminum

Á bæjarskrifstofunni í Stykkishólmi er fylgst náið með íbúaþróun í bænum. Þannig er greint frá því á vef sveitarfélagsins að bæjarbúar hafi verið 1150 talsins þriðjudaginn 5. júlí síðastliðinn. Hefur Hólmurum því fjölgað um sem nemur 4,3 prósentustigum frá áramótum. „Þessi þróun er mjög jákvæð ef miðað er við almenna íbúaþróun á landinu og í…Lesa meira

true

Hlóðu nýjan kirkjugarðsvegg

Fyrr í vikunni lauk hleðslu á nýjum vegg á austurhlið kirkjugarðsins í Reykholti í Borgarfirði. Um talsvert mikla framkvæmd er að ræða þar sem veggurinn í heild er um 80 metra langur. Verktaki var Unnsteinn Elíasson, en við verkið fékk hann til liðs við sig föðurbróður sinn og læriföður, Ara Jóhannesson í Hafnarfirði sem mætti við…Lesa meira

true

Fella þurfti niður Jökulmíluna vegna veðurs

Jökulmílan er ein lengsta hjólreiðakeppni fyrir einstaklinga sem haldin er hér á landi. Hún er haldin á Snæfellsnesi ár hvert. Hjólaðar eru rétt rúmlega 100 enskar mílur, eða 162 km. Lagt er af stað frá Grundarfirði, hjólað til vesturs gegnum Rif og þaðan fyrir Snæfellsjökul, til baka eftir suðurströnd Snæfellsness og norður Vatnaleið áður en…Lesa meira

true

Gróður snemmsprottinn og bændur vilja því flýta Oddsstaðarétt

Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar í Lundarreykjadal hefur óskað eftir heimild til að flýta réttinni í haust um viku, þannig að hún verði 7. september í stað þess 14. Í erindi fjallskilanefndar kemur fram að gróður er snemmsprottinn þetta sumarið en við þær aðstæður sölna grös fyrr á láglendum heiðum og lömb gætu því tekið að safna á…Lesa meira

true

Þróunarfélag Grundartanga stofnað

Fyrr í dag var undirritaður stofnsamningur Þróunarfélags Grundartanga ehf. Aðilar samningsins eru; Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Faxaflóahafnir sf., Hvalfjarðarsveit, Reykjavíkurborg og Skorradalshreppur. Stofnun félagsins hefur legið í loftinu í töluverðan tíma og var viljayfirlýsing undirrituð í nóvember 2014. Þegar viljayfirlýsingin var undirrituð var Kjósahreppur í hópi með þeim aðilum sem undirrituðu samninginn í dag en þeir drógu…Lesa meira

true

Byrjunin lofar góðu í Laxá í Dölum

„Opnunin í Laxá í Dölum skilaði fleiri löxum en elstu menn muna. Þetta var gríðarlega skemmtilegt,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir í samtali við tíðindamann Skessuhorns. Laxinn hefur verið að skila sér á flesta staði og mikið af honum sumsstaðar. ,,Laxinn er dreifður um alla á og nýr lax að ganga inn. Stórlaxar í bland við…Lesa meira

true

Kynnti hugmynd um hótel og veitingastað í sementstönkunum

Um síðustu helgi hengdi Guðlaugur I. Maríasson nýútskrifaður byggingafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík, upp lokaverkefnið sitt á framhlið Faxabrautar 3 á Akranesi. Um er að ræða teikningar sem sýna hvernig hægt væri að breyta sementstönkunum við Faxabraut í fjögurra stjörnu hótel og veitingastað. „Ég útskrifaðist sem byggingafræðingur frá HR um síðustu áramót. Í lokverkefni í byggingafræði á…Lesa meira