Fréttir

true

Breytt fyrirkomulag rjúpnaveiði

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að veiðitímabil rjúpu verði frá 1. nóvember – 30. nóvember. Að þessu sinni verður leyft að veiða fimm daga í viku, frá föstudegi til þriðjudags í hverri viku. Veiðibann er miðvikudaga og fimmtudaga. Áfram er í gildi sölubann á rjúpum og eru veiðimenn hvattir til hófsemi í veiðum. Með þessu…Lesa meira

true

Vatnshellir og Bjarteyjarsandur meðal bestu áfangastaða landsins

Bandaríska ferðatímaritið Condé Nast tók nýverið saman lista yfir 16 bestu afþreyingarmöguleikana á Íslandi að mati blaðsins. Greinin ber heitið „The Best Things to Do in Iceland: Our Definitive List“. Þar er meðal annars mælt með Vatnshelli á Snæfellsnesi og Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, sem greinarhöfundur telur meðal allra bestu áfangastaða landsins. Í kaflanum um Bjarteyjarsand…Lesa meira

true

Bæjarfulltrúi óskar eftir ótímabundnu leyfi

Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir 2. fulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akraness hefur óskað eftir ótímabundnu leyfi frá starfi sínu sem bæjarfulltrúi. Gerður hefur frá síðustu kosningum árið 2018 gegnt starfi fyrsta varaforseta í bæjarstjórn Akraness, verið formaður velferðar- og mannréttindaráðs og aðalmaður í skipulags- og umhverfisráði. Á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að beiðni Gerðar verði formlega afgreidd…Lesa meira

true

Stal bíl og gerðist brotlegur við ýmis önnur lög

Bíl var stolið í Húsafelli í Borgarfirði á þriðjudagskvöld. Óprúttinn aðili gekk inn í starfsmannaaðstöðu á Hótel Húsafelli, þar sem hann stal tösku frá einum starfsmanni hótelsins sem innihélt meðal annars lykla og veski viðkomandi. Lögreglan á Vesturlandi segir í samtali við Skessuhorn að grunaður hafi tekið bílinn og ekið honum í burtu. Bíllinn fannst…Lesa meira

true

Opið hús hjá Oddfellow á Akranesi næsta sunnudag

Oddfellowreglan á Íslandi er grein af bandarískri reglu sem stofnuð var í Washington 26. apríl 1819. Breski innflytjandinn Thomas Wildey, ásamt fjórum öðrum, stofnaði fyrstu óháðu Oddfellowregluna sem hafði það hlutverk að rækta bræðrarlag og veita hjálparhönd þar sem neyðin var stæst. Reglan óx hratt, angi hennar fluttist yfir til Evrópu og kom svo til…Lesa meira

true

Andlát – Símon Sigurmonsson

Símon Sigurmonsson í Görðum í Staðarsveit er látinn, 85 ára að aldri. Símon var fæddur í Einarsnesi í Borgarhreppi, sonur hjónanna Sigurmons Símonarsonar og Jórunnar Helgadóttur. Hann bjó um tíma á Akranesi en fluttist þá á Snæfellsnes. Símon og Svava Guðmundsdóttir eiginkona hans voru brautryðjendur í ferðaþjónustu bænda á Vesturlandi, hófu árið 1977 uppbyggingu og…Lesa meira

true

Sr. Þráinn kjörinn sóknarprestur

Sr. Þráinn Haraldsson hefur verið kjörinn sóknarprestur í nýju Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli af kjörnefnd prestakallsins. Biskup Íslands mun skipa í embættið í samræmi við niðurstöðu nefndarinnar. Sr. Þráinn hefur verið starfandi sem prestur við Garðaprestakall á Akranesi frá árinu 2015 og settur sóknarprestur frá því í desember síðastliðnum. Þá hefur hann sömuleiðis verið settur sóknkarprestur…Lesa meira

true

Mega selja mjöl til Kína

Sex íslenskar fiskimjölsverksmiðjur hafa fengið heimild til útflutnings á fiskimjöli og lýsi til Kína; verksmiðjur Brims á Akranesi og Vopnafirði, verksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og Seyðisfirði, Eskja á Eskifirði og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði. RÚV greinir frá. Undanfarin fjögur ár hafa Matvælastofnun, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og utanríkisráðuneytið unnið að gerð samnings um heilbrigðiskröfur og eftirlit með…Lesa meira

true

Taka vel í beiðni um skólasel á Kleppjárnsreykjum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var kynnt erindi nokkurra foreldra barna sem stunda nám við Grunnskóla Borgarfjarðar, þess efnis að sett verði upp skólasel á Kleppjárnsreykjum. „Byggðarráð lýsir vilja sínum til þess að stofna skólasel leysi það úr þeirri stöðu sem uppi er. Byggðarráð vísar erindinu til umfjöllunar í fræðslunefnd til frekari umfjöllunar,“…Lesa meira

true

Sóley mætt aftur til dælingar í Grundarfirði

Dæluskipið Sóley er mætt aftur til að dæla efni í höfnina í Grundarfirði. Skipið kom mánudagskvöldið 26. ágúst og hófst strax handa við dælingu. Efnið er tekið einhverjum hundruð metrum frá höfninni og dælt aftur niður þar. Skipið verður í Grundarfjarðarhöfn næstu daga til að dæla í undirstöðurnar á nýju höfninni og það styttist óðum…Lesa meira