
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody‘s telur lánshæfi ríkissjóðs óbreytt. Álitið felur því ekki í sér endurskoðun á lánshæfiseinkun ríkissjóðs, sem er áfram A3 með jákvæðum horfum. Fyrirtækið telur styrk efnahagslífs Íslands meðal annars liggja í sveigjanleika, sterkri fjárhagsstöðu, samkeppnishæfni og hagstæðri íbúaþróun. Saman stuðlar þetta að langtíma hagvexti og hjálpar til við að mæta óhjákvæmilegum áföllum í…Lesa meira








