Fréttir

true

Fyrsti hnúðlax sumarsins kominn á land

Fyrsti hnúðlax sumarsins var veiddur í Ölfusá fyrir landi Hrauns í Ölfusi 2. júlí síðastliðinn. Um var að ræða 2,4 kg nýgengna og vel haldna hrygnu. Í kjölfar vaxandi gengdar hnúðlaxa í íslenskar ár sumarið 2017, þegar um 70 hnúðlaxar veiddust í ám víðsvegar um landið, má búast við að talsvert margir hnúðlaxar komi til…Lesa meira

true

Kári fékk dýrmæt stig

Kári vann öruggan sigur á botnliði Tindastóls þegar liðin mættust í 10. umferð í annarri deild karla í Akraneshöllinni í gærkveldi. Er þetta þriðji sigur Káramanna það sem af er af tímabilinu og dýrmæt stig í vegarnesti hjá þeim félögum í botnbaráttunni, nú þegar líða fer á seinni hluta Íslandsmótsins. Skagamenn byrjuðu leikinn af krafti…Lesa meira

true

Fjórir umsækjendur um embætti sóknarprests

Nýverð var kynnt á vef Þjóðkirkjunnar að fjórir umsækjendur voru um embætti sóknarprests í sameinuðu Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Þeir eru Dagur Fannar Magnússon, Jón Ásgeir Sigurvinsson, Úrsúla Árnadóttir og Þráinn Haraldsson. Prestakallið nær yfir Akranes og Hvalfjarðarsveit. Eins og fram hefur komið fór biskup að tillögu kirkjuþings sem lagði til að Saurbæjarprestakall og prestssetrið í…Lesa meira

true

Markmiðið að móta afburðaskóla og undirbúa byggingu nemendagarða

Á fundi nýrrar stjórnar Menntaskóla Borgarfjarðar í byrjun júní var Hrefna B Jónsdóttir í Hjarðarholti kjörin formaður. Hún segir það spennandi verkefni að koma að borðinu og eiga þátt í að móta framtíð hinnar 12 ára menntastofnunar í héraði. „Menntaskóli Borgarfjarðar var stofnaður 2007 í nýju og einkar glæsilegu húsi. Skólinn hefur frá fyrsta degi…Lesa meira

true

Leshópurinn Köttur úti í mýri opnaði bókamarkað

Í Grundarfirði hefur sárlega vantað bókabúð síðan Hrannarbúðinni var lokað fyrir nokkrum árum. Nú hefur orðið bót á því þar sem að leshópur nokkur, sem telur 15 krafmiklar konur í Grundarfirði, hefur tekið sig til og opnað bókamarkað á neðri hæðinni við Borgarbraut 2. Bókamarkaðurinn á Snæfellsnesi var opnaður föstudaginn 28. júní og er það…Lesa meira

true

Kynning í næstu viku á vindorkugarði

Vegna vinnu við tillögu að matsáætlun vindorkugarðs í landi Sólheima í Laxárdal mun Quadran Íslandi halda kynningarfund fyrir íbúa í Dölum mánudaginn 8. júlí næstkomandi. Fundurinn verður í Dalabúð og hefst kl. 20:00. Þar verður sagt frá stöðu undirbúnings og mat á umhverfisáhrifum verkefnisins og boðið verður upp á kaffiveitingar.Lesa meira

true

Undirbúa útgáfu Skagapassans

Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að tekinn verði upp svonefndur Skagapassi. Hann á að veita aðgang í Akranesvita, sundlaugina á Jaðarsbökkum og Byggðasafnið og geti handhafar hans jafnframt fengið afslátt af matseðli þeirra veitinga- og kaffihúsa á Akranesi sem taka þátt í verkefninu. Bæjarráð samþykkir að passinn verði seldur á 1.500 krónur og…Lesa meira

true

Eina tækifærið til að sjá Birgittu á sviði í sumar

Lopapeysan, tónleikar á laugardagskvöldi um Írska daga, er fyrir mörgum ómissandi partur af sumrinu enda einn stærsti viðburður ársins á Vesturlandi. Nú mun Birgitta Haukdal stíga á svið en hún mætti einnig í fyrra og þá í heilgalla úr lopa. „Ég gat náttúrulega ekki mætt á Lopapeysuna í glimmergallanum svo ég fékk þá frábæru hugmynd…Lesa meira

true

Bóndinn á Kiðafelli notar salt til að útrýma skógarkerfli

Sigurbjörn Hjaltason, bóndi á Kiðafelli í Kjós, hefur verið iðinn við að útrýma skógarkerfli síðustu tíu ár en þetta illgresi kemur oft upp í umræðunni vegna þess hversu óviðráðanleg það er. Skógarkerfill, eða kerfill eins og hann er oftast kallaður, dreifir ört úr sér og myndar gjarnan samfelldar breiður sem ekkert fær stöðvað. Jurtin er…Lesa meira

true

Írskir dagar settir

Írskir dagar voru settir rétt í þessu fyrir utan bæjarskrifstofurnar við Stillholt á Akranesi í hellidembu. Leikskólabörn í bænum voru komin saman til að hlusta á bæjarstjórann setja hátíðina og var ekki að sjá að rigningin hefði nokkur áhrif á börnin. Skemmtikraftarnir Sverrir Þór Sverrisson og Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktir sem dúóið Sveppi og…Lesa meira