Fréttir

true

Varað við stormi á Snæfellsnesi

Gefin hefur verið út gul viðvörun á Breiðafirði vegna hvassviðris seinna í dag, milli 14:00 og 19:00. Spáð er suðaustan 15-23 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, með hviðum allt að 40 m/s. Hættuleg akstursskilyrði geta skapast. Annars staðar vaxandi suðaustlæg átt, 8-15 m/s, en hægari vindur og bjart fyrir norðan. Seint í kvöld fer að rigna…Lesa meira

true

Líflegur fasteignamarkaður

Enn er mikið líf á fasteignamarkaðnum á Íslandi og meðalsölutími íbúðarhúsnæðis er stuttur, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar er litið til fjölda íbúða sem teknar hafa verið úr birtingu hjá fasteignasölum, en það gefur góða vísbendingu um sölu fasteigna nánast í rauntíma. Í september síðastliðnum var metfjöldi eigna…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Dalabyggð seinna í dag

Rafmagnslaust verður frá Hólum í Hvammssveit í Dalabyggð, að og með Langeyjarnesi seinna í dag, þriðjudaginn 13. október. Áætlað er að rafmagn verði úti á þessu svæði í eina klukkustundi, milli 13:30 og 14:30, vegna vinnu við háspennudreifikerfið.Lesa meira

true

Leggja til að lífeyrisgreiðslur verði skattlagðar strax

Flokkur fólksins hefur endurflutt þingsályktunartillögu um staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóði, en málið komst ekki á dagskrá síðasta þings. „Lagt er til að í stað þess að staðgreiðsla tekjuskatts fari fram við útgreiðslu lífeyrissparnaðar þá fari hún fram þegar iðgjald og mótframlag er greitt inn í lífeyrissjóð. Einnig er lagt til að þeim fjármunum sem…Lesa meira

Í nótt kom Giljagaur

Í nótt kom hann Giljagaur til byggða. Hér flytur Sveinbjörn Eyjólfsson kvæði Jóhannesar úr Kötlum um strákinn sem átti tal við fjósakonuna.Lesa meira

true

Netsvikarar herja á íþróttafélög

Lögregla hefur að undanförnu orðið vör við að skúrkar reyni að misnota erfiða tíma í faraldrinum til að stela frá íþróttahreyfingunni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við auknum fjölda netglæpa gagnvart íþróttahreyfingunni. Til að koma í veg fyrir að fólk í íþróttahreyfingunni lendi í svikaneti hefur lögreglan búið til yfirlit um helstu aðferðir netglæpamanna og tekið…Lesa meira

true

Meirihluti knattspyrnufólks vill blása Íslandsmótið af

Leikmannasamtök Íslands í knattspyrnu sendu síðastliðinn fimmtudag út netkönnun til allra leikmanna í Pepsí Max deildum karla og kvenna. Þar voru leikmenn spurðir hvort þeir vildu blása Íslandsmótið í knattspyrnu af á þessari leiktíð, eða ljúka keppni, í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu. Þetta var gert í framhaldi af því að hertar sóttvarnaaðgerðir voru settar fyrir…Lesa meira

true

Tuttugu í einangrun á Vesturlandi

Tveir tugir fólks eru nú í einangrun með Covid-19 í landshlutanum, að því er fram kemur í nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú í hádeginu. Flestir eru í einangrun á Akranesi, eða tólf manns, en fjórir í Grundarfirði, þrír í Stykkishólmi og einn í Borgarnesi. Alls sæta 39 sóttkví í landshlutanum, þar af…Lesa meira

true

Fimmtíu smit í gær

Alls greindust 50 manns með Covid-19 hér á landi í gær. Af þeim voru 33 í sóttkví en 17 utan hennar. Fimm greindust á landamærunum. Í dag liggja 23 á Landspítala með Covid-19. Af þeim eru þrír á gjörgæslu og þar af einn í öndunarvél. Á landsvísu eru nú 4.296 í sóttkví en voru 3.916…Lesa meira

true

Framhald verður á lokunarstyrkjum

Ríkisstjórnin samþykkti fyrir helgi að leggja fyrir Alþingi breytingar á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru með það fyrir augum að tryggja framhald á lokunarstyrkjum til rekstraraðila sem gert er að sæta lokun á starfsemi eða stöðva hana frá 18. september síðastliðnum. Lögin eru hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr…Lesa meira