Fréttir

true

Holufylla og yfirfara vegstikur

Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa nýtt góða veðrið að undanförnu til að skipta um þær stikur sem eru óhreinar eða glitið farið af og rétta við skakkar stikur. Um 13 þúsund vegstikur eru á svæði Vegagerðarinnar á Snæfellsnesi, sem fylgjast þarf með enda mikilvægt að þær sjáist vel þegar skammdegið færist yfir. Þetta eru þó ekki einu…Lesa meira

true

Skrifað undir kjarasamning starfsmanna Norðuráls

Skrifað var undir nýjan kjarasamning milli Verkalýðsfélags Akraness og Norðuráls í gærkvöldi, eftir tíu mánaða samningaviðræður. Nýr kjarasamningur er afturvirkur til ársbyrjunar og munu vaktmenn eiga rétt á greiðslu vegna afturvirkninnar sem nemur 6,9% af heildarlaunum frá 1. janúar síðastliðnum. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir á Facebook-síðu sinni að hann sé afar sáttur með…Lesa meira

true

Uppbygging að hefjast af krafti í Dalbrautarreit

Í lok ágúst voru fyrstu íbúðir við Dalbraut 4 á Akranesi afhendar nýjum eigendum. Húsið er fimm hæða íbúða- og þjónustuhús fyrir eldri borgar og í kjallara eru bílastæði fyrir hverja íbúð. Sala á íbúðum hefur gengið mjög vel, 22 íbúðir eru seldar og aðeins tvær óseldar.  Nú þegar hafa nýir íbúar flutt inn í…Lesa meira

true

Aldarminning Guðmundar Runólfssonar birt í Skessuhorni í dag

Síðastliðinn föstudag voru 100 ár frá fæðingu Guðmundar Runólfssonar (f. 9.10.1920 – d. 1.2.2011) skipstjóra og útgerðarmanns í Grundarfirði. Guðmundur er einn af frumkvöðlum Grundarfjarðar og er ævistarf hans samofið uppbyggingu byggðarinnar þar sem stendur með miklum blóma í dag. Guðmundur var gerður að heiðursborgara Grundarfjarðar árið 2010 en með því vildi bæjarstjórn Grundarfjarðar sýna…Lesa meira

true

Nýjar keiluvélar í keilusalinn við Vesturgötu

Guðmundur Sigurðsson hjá Keilufélagi Akraness var önnum kafinn í dag við að koma nýjum keiluvélum fyrir í sal félagsins við Vesturgötu í gær.  Að sögn Guðmundar eru vélarnar frá framleiðandanum AMF og eru samskonar og vélarnar sem eru í Egilshöll.  Þær eru þó heldur færri á Akranesi eða þrjár á móti 22 í Egilshöll en…Lesa meira

true

Fjöregg hlutskarpast um hönnun útsýnisstaðar á Súgandisey

Dómnefnd hefur nú valið og kynnt vinningstillögu í samkeppni um útsýnisstað á Súgandisey við Stykkishólm. Vinningstillagan var unnin af Glámu-Kím og Landslagi í samstarfi við Ólöfu Nordal og Gunnar Karlsson. Tillagan er óhefðbundin útsýnisstaður sem ber heitið Fjöregg. Fjöreggið er útsýnisskúlptúr, útsýnispallur, upplifunar- og áningarstaður allt í senn. Fjöreggið verður sýnilegt frá bænum og því…Lesa meira

true

Ætla að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur

Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu vill Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, koma því á framfæri að starfsmenn eru harmi slegnir yfir banaslysi sem varð á Kjalarnesi í júnílok – og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. „Vegagerðin vinnur nú að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta…Lesa meira

true

Fækkar í sóttkví og einangrun á Vesturlandi

Í dag, þriðjudaginn 13. október, eru 18 manns í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi og fækkar um tvo frá því sólarhringnum áður. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú rétt í þessu. Flestir eru í einangrun á Akranesi eða tíu manns, fjórir í Grundarfirði, þrír í Stykkishólmi og einn í…Lesa meira

true

83 innanlandssmit

Í gær greindust 83 með kórónaveiruna hér innanlands. Af þeim voru 49 í sóttkví við greiningu en 34 ekki. Þrjú smit greindust á landamærunum. Í dag eru 1.071 í einangrun með Covid-19 og hefur fjölgað um 49 frá því í gær. Þá eru 3.436 manns í sóttkví, en voru 4.296 í gær. 22 liggja inni…Lesa meira

true

Búist við minnst 50 milljóna tekjutapi

Gróflega er áætlað að tekjur Grundarfjarðarbæjar á árinu verði að minnsta kosti rúmum 50 milljónum króna lægri en reiknað var með í fjárhagsáætlun, gróflega áætlað. Mestu munar þar um lækkun á áætluðum tekjum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, eða rúmar 30 milljónir króna. Bæjarráð ítrekaði fyrri bókanir sínar og bæjarstjórnar og lýsti yfir vonbrigðum með lækkun tekna…Lesa meira