Fréttir

true

Smitsjúkdómurinn „refavanki“ greinist í kanínum

Matvælastofnun barst nýlega tilkynning frá Dýraspítalanum í Víðidal um að sníkjudýrið Encephalitozoon cuniculi hafi greinst í tveimur kanínum með mótefnamælingum í blóði. Er það fyrsta staðfesta smit af þessari tegund í kanínum hér á landi. Matvælastofnun vill vekja athygli dýraeigenda og dýralækna á þessu, svo aðilar verði vakandi fyrir sjúkdómseinkennum og leiti mögulega eftir greiningu…Lesa meira

true

Losað um dekk reiðhjóla

Brögð hafa verið að því að átt hafi verið við reiðhjól á Akranesi þannig að hætta skapist þegar hjólað er af stað. Frá þessu er greint á heimasíðu Grundaskóla, en foreldrum nemenda skólans hefur einnig verið send tilkynning þess efnis. „Því miður hefur það komið upp hér hjá okkur í Grundaskóla og við aðrar stofnanir…Lesa meira

true

Tilmæli um lokun golfvalla komu frá sóttvarnayfirvöldum

Mikil umræða hefur verið um helgina í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum um þá ákvörðun sóttvarnayfirvalda að láta loka golfvöllum á höfuðborgarsvæðinu til 19. október næstkomandi. Þau tilmæli voru gefin út vegna víðtæks smits Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu. Golfvellir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins takmörkuðu flestir skráningar á velli sína við félagsmenn sem búsettir eru á viðkomandi svæði, en…Lesa meira

true

Brúin komin yfir Höskuldsá

Nú í lok september var brúnni yfir Höskuldsá á Hellissandi komið fyrir, en brúna smíðaði Anton Gísli Ingólfsson seinnipart sumars, eins og greint var frá í Skessuhorni. Áður en brúnni var komið fyrir sá B.Vigfússon um að laga til og snyrta árbakkana. Einnig þurfti að koma fyrir vatnslögn í ánni sem er fyrir Saltportið. Árni…Lesa meira

true

Sameina Streituskólann og Heilsuvernd

Streituskólinn og Heilsuvernd hafa sameinað krafta sína. Sérfræðingar beggja fyrirtækja hafa starfað að forvörnum og fyrirtækjaráðgjöf í áratugi. Í tilkynningu vegna sameiningarinnar segir að við sameininguna verði til stærri hópur sérfræðinga með breiða menntun og viðtækari reynslu sem sameinast í þverfaglegt teymi. „Starfsemi Streituskólans á Vesturlandi verður óbreytt en sameining þýðir aukinn slagkraftur og enn…Lesa meira

true

Þrjár skrifuðu undir hjá ÍA

Nýlega endurnýjuðu þrjár ungar og efnilegar knattspyrnukonur samninga sína við ÍA. Þetta eru þær Védís Agla Reynisdóttir, Hrafnhildur Arín Sigfúsdóttir og Dagný Halldórsdóttir. Allar eru þær uppaldar hjá Skagaliðinu og allar sömdu þær út keppnistímabilið 2021. Védís Agla er fædd árið 2003 og á að baki 18 leiki með meistaraflokki í 1. deild kvenna. Í…Lesa meira

true

Hliðgrindum stolið í Saurbæ

Bændur í Hvítadal í Saurbæ urðu fyrir óskemmtilegri lífsreynslu á dögunum. Um miðjan dag á miðvikudag fóru þeir að líta til með sláturfé í rétt sem þeir hafa sett upp í girðingu á Máskeldu, en Hvítadalsbændur hafa afnot af þeirri jörð. Var skilið þannig við svæðið að opið var inn í réttina en annars lokað…Lesa meira

true

Rúmur þriðjungur hefur nýtt sér Ferðagjöfina

Frá því að Ferðagjöfin fór í loftið í vor og til dagsins í dag hafa gjafir fyrir tæplega 560 milljónir króna verið nýttar. Það jafngildir því að 112 þúsund manns, eða rúmur þriðjungur þeirra 280 þúsund Íslendinga sem fengu aðgang að þeim, hafa nýtt þennan fimm þúsund krónur ríkisstyrk til kaupa á vöru eða þjónustu…Lesa meira

true

Fimm smit á Vesturlandi en fækkar í einangrun

Fimm ný Covid-19 smit greindust á Vesturlandi í gær, fjögur á Akranesi og eitt í Grundarfirði, skv. tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Engu að síður fækkar í einangrun í landshlutanum, því sex manns luku einangrun í Stykkishólmi. Í dag eru 21 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi; tólf Akranesi, fjórir í…Lesa meira

true

97 smit í gær

Alls greindust 97 Covid-19 smit innanlands í gær, þremur fleiri en í fyrradag þegar þau voru 94 talsins. Af þeim 97 sem greindust í gær voru 56 í sóttkví við greiningu, eða rúmur helmingur. Alls eru 24 á sjúkrahúsi með Covid-19 sjúkdóminn og þar af þrír á gjörgæslu. Á landsvísu eru 915 manns í einangrun…Lesa meira