Fréttir

true

Norhern Wave frestað

Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Northern Wave, sem haldin hefur verið árlega á Snæfellsnesi í rúman áratug, hefur verið frestað vegna Covid-19. Ákvörðunin er tekin með heilsu og öryggi gesta, starfsfólks og samfélagsins í huga, að því er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar. Hún mun því ekki fara fram dagana 23. til 25. október næstkomandi, eins…Lesa meira

true

Landbúnaðarnemar fordæma orð ráðherra

Stjórn Nemendafélags Landbúnaðarháskóla Íslands fordæmir orð Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem hann hafði upp á þingi þriðjudaginn 6. október síðastliðinn. Þykir stjórninni að þar hafi ráðherra talað niður til bændastéttarinnar í heild, með því að segja að það væri lífsstíll að vera sauðfjárbóndi fremur en spurning um afkomu. „Það er skrýtið að okkur…Lesa meira

true

Körfunni og fótboltanum frestað

Öllu mótahaldi í Íslandsmótinu í knattspyrnu hefur verið frestað um eina viku, til miðvikudagsins 14. október. Þá verður staðan endurmetin. Markmið KSÍ er eftir sem áður að ljúka keppni samkvæmt mótaskrá, þrátt fyrir frestanir leikja. Þá hefur öllum leikjum Íslandsmótsins í körfuknattleik sömuleiðis verið slegið á frest, en til og með 19. október þegar mótanefnd…Lesa meira

true

Miðflokksmenn í Norðvesturkjördæmi lýsa vantrausti á ráðherra

„Stjórn Kjördæmafélags Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi lýsir yfir vantrausti á Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra,“ segir í yfirlýsingu félagsins sem send hefur verið til fjölmiðla. „Hann hefur ítrekað sýnt að hann veldur ekki því embætti, þar á meðal með því að gera lítið úr sauðfjárbændum og telur hann þá vera að stunda lífstíl með atvinnu sinni líkt…Lesa meira

true

Mælist til að helgihald falli niður í október

Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ritaði á sunnudag bréf til presta, djákna, organista, formanna sóknarnefnda og útfararstjóra. Þar mælist hún til þess að opið helgihald falli niður í kirkjum landsins í októbermánuði, vegna Covid-19 faraldursins. Þess í stað verði hugað að því að boða fagnaðarerindið í streymi. Biskup óskar þess jafnframt að kóræfingar falli…Lesa meira

true

Snjallmenni tekið í notkun hjá Þjóðskrá Íslands

Þjóðskrá Íslands hefur tekið í notkun snjallmenni í netspjalli á vef stofnunarinnar www.skra.is. Snjallmennið getur svarað ýmsum spurningum um starfsemi Þjóðskrár Íslands og bent viðskiptavinum á gagnlegar slóðir. Þessi nýjung er viðbót við þjónustuver Þjóðskrár og er ætlað að flýta og bæta þjónustu við viðskiptavini með aukinni sjálfvirkni. Hægt er að fá samband við ráðgjafa…Lesa meira

true

Tilboð opnuð í stækkun lögreglustöðvar á Akranesi

Síðastlðinn föstudag voru opnuð tilboð hjá Ríkiseignum í breytingar og endurbætur á Þjóðbraut 13 á Akranesi.  Lögreglustöðin á Akranesi er staðsett í hluta hússins en áformað er að hún stækki og færist í það húsnæði sem síðast hýsti Vínbúðina. Öll tilboð sem bárust, utan eitt, voru undir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 70.733.118 krónur.  Lægsta…Lesa meira

true

Jarðvegsframkvæmdir hafnar við björgunarstöð Brákar

Í byrjun vikunnar hófust framkvæmdir við jarðvegsskipti undir væntanlega nýbyggingu björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi. Eins og kunnugt er gaf Borgarbyggð björgunarsveitinni 3.800 fm. lóð á Fitjum 2 undir björgunarmiðstöðina. Það var gert árið 2017 í tengslum við 150 ára verslunarafmæli Borgarness. Lóðin er á fallegum stað næst fyrrum mjólkursamlagshúsi, en ofan við gatnamót Snæfellsnesvegar og…Lesa meira

true

Gagnrýna ummæli landbúnaðarráðherra

Landssamtök sauðfjárbænda gagnrýna harðlega málflutning Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á Alþingi í umræðu um fjármálaáætlun í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar, spurði Kristján Þór hvernig hann hygðist ætla að bæta kjör bænda og stuðla að betra verði. Því svaraði hann orðrétt: „Ég held að það sé engin goðgá að ætla að menn…Lesa meira

true

Sýna þarf verslunarfólki sérstaka tillitsemi

Veiran illskæða geysar nú sem aldrei fyrr og hafa sóttvarnalæknir og yfirvöld boðað hertari aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, skrifar í pistli til landsmanna áminningu þess efnis að mikilvægt sé að viðskiptavinir í verslunum sýni afgreiðslufólki tillitsemi vegna veirunnar. „Tveggja metra reglan hefur tekið gildi á ný og…Lesa meira