Fréttir

true

Hringskonur geta ekki haldið basar og ferðast því um landið

Hringskonur úr Reykjavík voru í lok síðustu viku að selja prjónavörur fyrir framan Geirabakarí og Bónus í Borgarnesi. „Í ljósi aðstæðna í samfélaginu getum við ekki haldið basar eins og venjulega svo við höfum verið að finna aðra leið til að safna peningum fyrir Barnaspítala Hringsins, en allur ágóði af sölu okkar rennur þangað,“ sögðu…Lesa meira

true

Ýmis skaðleg efni úr lyfjaleyfum greinast í vatni

Umhverfisstofnun hefur staðið fyrir sýnatökum í vatni í þeim tilgangi að kortleggja útbreiðslu efna sem talin eru ógn við vatnaumhverfi í Evrópu. Sýni voru tekin á höfuðuðborgarsvæðinu; í sjónum við Klettagarða, í Tjörninni í Reykjavík og í Kópavogslæk. Um er að ræða efni sem eru á sérstökum vaktlista Evrópusambandsins og hefur m.a. að geyma lyfjaleifar,…Lesa meira

true

Útflutningur á landbúnaðarvörum tvöfaldaðist í september

Verðmæti vöruútflutnings frá Íslandi nam alls tæplega 62 milljörðum króna í september síðastliðnum samanborið við rúmlega 50 milljarða í sama mánuði í fyrra. Það er rúmlega 22% aukning í krónum talið á milli ára. Fjallað er um útflutning í nýjasta fréttabréfi SFS. Þar segir að gengi krónunnar spili stóra rullu í þessari aukningu, enda var…Lesa meira

true

Fjölgar um einn í einangrun

Í dag, fimmtudaginn 8. október, eru 22 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi, skv. tölum sem lögregluembætti landshlutans birti nú í hádeginu. Er það fjölgun um einn frá því í gær. Tíu eru í einangrun á starfssvæði heilsugæslunnar í Stykkishólmi, átta á Akranesi, þrír í Grundarfirði og einn í Borgarnesi. Alls eru 43 í sóttkví…Lesa meira

true

Flutningabíll út af sunnan við Búðardal

Gámaflutningabíll fulllestaður af þaramjöli á leið til Reykjavíkur fór út af Vestfjarðavegi við bæinn Saura í Dölum um klukkan 11 í morgun.  Að sögn bílstjórans blindaðist hann af sólinni.  Ekki urðu slys á á fólki og bifreiðin er lítið skemmd, að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi.Lesa meira

true

Grunnskólakennarar sömdu

Skrifað var undir nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga á ellefta tímanum í gærkveldi. Undirritun fór fram í húsakynnum ríkissáttasemjara. Nýr kjarasamningur grunnskólakennara er í samræmi við lífskjarasamningana, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Kennarasambands Íslands. Gildir samningurinn til ársloka 2021. Næstu daga verður samningurinn kynntur fyrir félagsmönnum Félags grunnskólakennara…Lesa meira

true

Viðraði vel fyrir tökur í Grundarfirði

Veðrið síðustu daga hefur verið með ágætum og tökur á þáttunum Vitjunum í Grundarfirði hafa gengið bærilega. Í gær var verið að taka upp við rætur Kirkjufells í yndislegu haustveðri. Áætlað er að tökur standi yfir fram í byrjun nóvember mánaðar en góður gangur er í verkefninu þessa dagana.Lesa meira

true

Níutíu og fjögur innanlandssmit

Alls greindust 94 með kórónaveiruna innanlands í gær. Af þeim voru fjörtíu í sóttkví. Auk þess greindust átta manns við landamærin. Í dag liggja 23 á Landspítalanum með Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Alls hafa greinst 280 ný smit undanfarna þrjá daga, langflest á höfuðborgarsvæðinu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna nú rétt…Lesa meira

true

Fimm vilja stýra Auðarskóla

Fimm umsóknir bárust um starf skólastjóra Auðarskóla, en starfið var auglýst laust til umsóknar í september síðastliðnum. Þeir sem sóttu um eru: Ari J. Sigurðsson, Elsa Í. Arnórsdóttir, Haraldur Haraldsson, Herdís E. Gunnarsdóttir og Sigríður Aðalsteinsdóttir. Úrvinnsla umsókna er hafin, að því er fram kemur í fundargerð frá síðasta fundi byggðarráðs Dalabyggðar.Lesa meira