Fréttir

true

Markaveisla í Akraneshöllinni

Kári vann góðan sigur á Fjarðabyggð, 5-2, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Akraneshöllinni. Staðan var jöfn í hálfleik, 2-2, en eftir að gestirnir misstu mann af velli á 58. mínútu tóku Káramenn öll völd í leiknum og sigruðu að lokum með fimm mörkum gegn tveimur. Leikurinn…Lesa meira

true

22 nú með Covid-19 á Vesturlandi

Á Vesturlandi eru nú 22 í einangrun með Covid-19 og 64 í sóttkví, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Smituðum hefur fjölgað á Akranesi og Stykkishólmi frá því í liðinni viku. Í Hólminum eru nú 13 með greind smit og 20 í sóttkví. Á Akranesi eru 8 í einangrun og 30 í sóttkví. Einn…Lesa meira

true

Gekk vonum framar eftir að gildrurnar voru færðar

„Við fengum humar í flestar gildrur, í nokkrum var ekkert en afli dagsins var í heildina langt framar vonum. Við fengum allavega staðfest að það er talsvert af humri á þessum slóðum en auðvitað er óvarlegt að draga víðtækar ályktanir af því sem kom upp í dag. Við freistum gæfunnar víðar á næstu vikum til…Lesa meira

true

SA fresta um einn dag atkvæðagreiðslu um lífskjarasamninginn

Hart er nú tekist á um framhald lífskjarasamningsins frá því í apríl 2019. Á sama tíma og fulltrúar launþegasamtaka telja allar forsendur samningsins hafa verið uppfylltar, telja Samtök atvinnulífsins að forsendubrestur hafi orðið á þessu ári og hafa því boðað til atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um uppsögn samninganna um næstu mánaðamót. Forystufólk ríkisstjórnarinnar hefur komið…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur fyrir austan

Víkingur Ó. vann mikilvægan sigur á Leikni F. þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni og eftir frekar rólegan fyrri hálfleik dró heldur betur til tíðinda í þeim seinni. Þegar lokaflautan höfðu Ólafsvíkingar skorað fjögur mörk gegn tveimur mörkum heimamanna. Leikmenn hvors liðs um sig voru reknir…Lesa meira

true

Ályktanir frá Samfylkingunni í Norðvesturkjördæmi

„Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi telur algjört forgangsatriði að tryggja samfélagslegan arð af auðlindum þjóðarinnar þar sem fullt gjald komi fyrir afnotin,“ segir í ályktun frá aðalfundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldinn var í Borgarnesi 13. september sl. „Heppilegasta leiðin til að ákvarða gjald fyrir ótímabundin sérleyfi til nýtingar á takmarkaðri auðlind er að nýta markaðslögmálin…Lesa meira

true

Jafnt á Akranesvelli

ÍA og Víkingur R. skildu jöfn, 2-2, þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattpsyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Akranesi. Skagamenn höfðu verið á fínum skriði í deildinni fyrir viðureignina og unnið tvo leiki í röð, síðast 1-3 útisigur á Fjölni á fimmtudaginn. Víkingur R. hafði hins vegar ekki unnið leik síðan…Lesa meira

true

Dæluskipið Sóley komið aftur í Grundarfjörð

Dæluskipið Sóley er mætt aftur til Grundarfjarðar þar sem unnið er að dýpkun hafnarinnar við nýja kantinn. Skipið sogar upp úr botninum við nýju bryggjuna og dælir svo efninu ofan í nýju landfyllinguna við Framnes. Áætlað er að skipið verði í Grundarfirði eitthvað fram í vikuna en framkvæmdin hefur gengið vel til þessa.Lesa meira

true

Snæfell dregur karlaliðið úr keppni

Meistaraflokkur lagður niður tímabundið Snæfell mun ekki keppa í 1. deild karla í körfuknattleik á komandi vetri, eins og áformað var. Ákveðið hefur verið að draga liðið úr keppni og leggja meistaraflokk karla niður, tímabundið. „Ákvörðunin var erfið, eins og gefur að skilja, en við höfum átt í miklum erfiðleikum með að manna liðið og…Lesa meira