Fréttir

true

Yrkja vildi eg jörð er ný bók eftir Bjarna Guðmundsson

Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri hefur sent frá sér bókina Yrkja vildi eg jörð. Í henni rekur Bjarni sögu jarðræktar á Íslandi, allt frá söguöld til lok síðustu aldar. „Titill bókarinnar kemur úr ljóðinu Söngur sáðmannsins eftir Mýramanninn og búnaðarfrömuðinn Bjarna Ásgeirsson: „Ef eg mætt yrkja, yrkja vildi eg jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænagjörð.…Lesa meira

true

Leik Snæfells og Keflavíkur frestað

Mótanefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að fresta leik Snæfells og Keflavíkur sem fyrirhugaður var suður með sjó næstkomandi laugardag, 3. október. Ástæðan er sú að leikmannahópi Keflavíkur hefur verið gert að sæta sóttkví fram yfir settan leikdag. Leiknum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími og ekki hefur verið tekin frekari ákvörðun um næstu leiki Keflavíkurliðsins…Lesa meira

true

Aðeins sjö skipakomur af 187

Í byrjun árs voru áætlaðar 187 skipakomur farþegaskipa til Faxaflóahafna með samtals 203.214 farþega innanborðs. Miðað við þær tölur stefndi í 8% fjölgun farþega frá fyrra ári en 2% færri skipakomur en í fyrra, þegar skipakomur voru 190 og heildarfjöldi farþega 188.630. En vegna Covid-19 faraldursins urðu skipakomur sumarsins hins vegar aðeins sjö talsins með…Lesa meira

true

Eitt nýtt smit á Vesturlandi

Á Vesturlandi eru 23 í einangrun með Covid-19 sjúkdóminn, samkvæmt nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú rétt í þessu. Hefur smituðum fjölgað um einn frá því sólarhringinn á undan, þegar 22 voru í einangrun. Nýja smitið greindist á starfssvæði heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi. Flestir eru í einangrun í Stykkishólmi, eða 13 manns. Níu eru…Lesa meira

true

Átta aðgerðir til að styðja við áframhald lífskjarasamningana

Ríkisstjórnin kynnti í dag aðgerðapakka sem ætlað er að koma til móts við aðila vinnumarkaðarins til að lífskjarasamningar frá apríl 2019 haldi. Þessar aðgerðir eru: Framlenging „Allir vinna“ átaksins, lækkun tryggingagjalds út 2021, fjárstuðningur vegna tekjufalls, skattaívilnanir til fjárfestinga með áherslu á græna umbreytingu, veruleg hækkun til nýsköpunar og matvælaframleiðslu, úrbætur á skipulags- og byggingamálum,…Lesa meira

true

Skagakonur öruggar

Skagakonur tryggðu áframhaldandi veru sína í 1. deild kvenna í knattspyrnu þegar þær lögðu Fjölni á heimavelli í gærkvöldi, 2-0. Fyrir leikinn sat ÍA í 8. sæti deildarinnar með fimm stiga forskot á Fjölni í efra fallsætinu. Því var um sannkallaðan botnslag að ræða. EFti rsigurinn eru Skagakonur átta stigum fyrir ofan fallið þegar tvær…Lesa meira

true

Ólafur Bjarnason fékk pokann í skrúfuna

Um klukkan 11:30 í gærmorgun barst björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ útkallsbeiðni á björgunarbátinn Björgu. Dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnasson SH hafði fengið pokann í skrúfuna þar sem hann var á veiðum um tvær og hálfa sjómílu út af Ólafsvík. Vel gekk að koma taug milli skipanna og gekk heimferðin vel í fremur hægu veðri. Var Björgin komin…Lesa meira

true

Rannsaka áhrif fiskeldis í Arnarfirði

Um þessar mundir er rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Bjarni Sæmundsson, í hálfsmánaðar leiðangri í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi. Um borð er unnið að fjölbreyttum verkefnum, m.a. með rækjuvörpu, sjótöku, botngreip, botnkjarnatöku eða neðansjávarmyndavél. Meðal verkefna leiðangursmanna er að meta stofn rækju, rannsaka ungþorsk auk almennra umhverfisrannsókna. Sérstaklega er Arnarfjörður til skoðunar þar sem meta á áhrif fiskeldis…Lesa meira

true

Bayonne og Feta bannað

Matvælastofnun hefur beint tilmælum til nokkurra matvælafyrirtækja að stöðva notkun verndaðra afurðarheita á merkingum. Ástæðan er að vöruheitin njóta alþjóðlegrar verndar samkvæmt milliríkjasamningi. Um er að ræða heiti eins og „Feta-ostur“ og „Bayonne-skinka.“ Feta nýtur verndar sem skráð afurðarheiti í Grikklandi og Bayonne nýtur verndar sem skráð afurðarheiti í Frakklandi.Lesa meira

true

„Ég hlakka til að vinna áfram í Krónunni“

Fyrr í sumar var Antoni Kristjánssyni starfsmanni Krónunnar á Akranesi sagt upp störfum og hefur að undanförnu unnið uppsagnarfrest sinn. Anton hefur starfað í Krónunni frá opnun verslunarinnar og sýnt mikla iðjusemi, jákvæðni og þjónustulund. Vakin var athygli á uppsögn hans á facebooksíðunni Ég er íbúi á Akranesi og voru fjölmargir sem í kjölfarið lýstu…Lesa meira