
Esjubraut á Akranesi verður lokuð milli kl. 10 og 15 í dag vegna malbikunarframkvæmda. Hjáleiðir verða á meðan um botnlanga á Dalbraut inn á Esjuvelli og um plan Olís og Vínbúðarinnar.Lesa meira

Esjubraut á Akranesi verður lokuð milli kl. 10 og 15 í dag vegna malbikunarframkvæmda. Hjáleiðir verða á meðan um botnlanga á Dalbraut inn á Esjuvelli og um plan Olís og Vínbúðarinnar.Lesa meira

Gul viðvörun er fyrir Breiðafjörð á morgun miðvikudag, milli klukkan 11 og 22. Spáð er sunnan hvassviðri eða stormi 15-23 m/s og hvössum vindstrengjum við fjöll, 25-30 m/s, sérstaklega á Snæfellsnesi. Þá gæti orðið varasamt fyrir ökumenn að vera á ferð á farartækjum sem taka á sig mikinn vind.Lesa meira

Íslandsmeistaramót í klassískum kraftlyftingum fór fram í Njarðvík um helgina. Þar kepptu fyrir hönd Kraftlyftingafélags Akraness þau Alexander Örn Kárason, Helgi Arnar Jónsson og Kristín Þórhallsdóttir auk þess sem Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir keppti fyrir Breiðablik. Vestlendingum gekk öllum vel á mótinu en Alexander Örn keppti í opnum flokki karla undir 93 kg og lyfti…Lesa meira

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 180 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta. Veittir verða innviðastyrkir…Lesa meira

Í gær var umdæmum héraðsdýralækna Matvælastofnunar formlega fækkað úr sex í fimm. Við breytinguna fellur Vesturumdæmi niður. Snæfellsnes og Borgarfjörður tilheyra framvegis S-Vesturumdæmi en Dalir og Vestfirðir tilheyra N-Vesturumdæmi. „Við endurskoðun á fyrirkomulagi dýralæknisþjónustu í dreifðum byggðum landsins fyrr á árinu var ákveðið að fækka héraðsdýralæknum samhliða verkkaupum af dýralæknum í dreifðum byggðum. Fyrri áfangi…Lesa meira

Mæðrastyrksnefnd Akraness hefur fengið úthlutað styrk frá félagsmálaráðuneytinu sem gerði félaginu óvænt kleift að úthluta nú í september. „Næsta úthlutun verður þriðjudaginn 22. september frá klukkan 13-17 í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25A. Vegna þess hvað það er stuttur fyrirvari þá þurfa þeir öryrkjar og eldri borgarar sem skiluðu inn gögnum fyrir síðustu jól…Lesa meira

Akranesmeistaramótið í sundi var haldið í Jaðarsbakkalaug föstudaginn 11. september síðastliðinn. Alls tóku 26 sundmenn þátt í mótinu, ellefu ára og eldri. Var mótið mjög vel heppnað, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sundfélagi Akraness. Í flokki 11-12 ára voru Adam Agnarsson og Aldís Lilja Viðarsdóttir hlutskörpust og hrepptu því titilinn Akranesmeistarar 2020.…Lesa meira

Hjörtur Guðmundsson lenti í því um helgina að mikil skemmdarverk voru unnin á eigum hans. Hann á og rekur sumarbústaðina Hálsaból sem standa undir Kirkjufelli. Hann hefur verið að leigja þá út til ferðamanna undanfarin ár og gengið ágætlega. En um liðna helgi leigði hann annan bústaðinn til fjögurra ungra manna í gegnum íslenska bókunarsíðu.…Lesa meira

Skagakonur þurftu að játa sig sigraðar þegar þær mættu Augnabliki í 1. deild kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var á Kópavogsvelli og lauk leiknum með 2-1 sigri Augnabliks. Var þetta fjórða tap Skagakvenna í röð. Skagakonur byrjuðu vel í leiknum og komust yfir strax á 11. mínútu þegar Erna Björt Elíasdóttir skoraði. En tólf…Lesa meira

Lið Víkings Ó. og Grindavíkur skildu jöfn, 2-2, þegar þau mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Ólafsvík. Gestirnir frá Grindavík voru öflugri í upphafi og komust yfir strax á 11. mínútu leiksins. Eftir innkast barst boltinn á Aron Jóhannsson sem lagði hann snyrtilega framhjá Konráð Ragnarssyni í marki Ólafsvíkinga…Lesa meira