Fréttir

true

Nemendum á öllum skólastigum fjölgar í Borgarbyggð

Börnum fjölgar í öllum leik- og grunnskólum Borgarbyggðar í ár en sveitarfélagið rekur samtals sex skólastofnanir; Grunnskólann í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar (í þremur starfsstöðvum), og leikskólana Hnoðraból, Klettaborg, Andabæ og Ugluklett. Í frétt á vef sveitarfélagsins segir að leikskólarnir í sveitarfélaginu verði þéttsetnir í haust en 42 nýinnriðuð börn á ýmsum aldri hefja skólavist á…Lesa meira

true

Minnisvarði og nýr kross í Biskupsbrekku

Síðdegis á sunnudaginn var boðað til athafnar við Biskupsbrekku á Uxahryggjum. Tilefnið var að þann dag voru rétt 300 ár liðin frá því Jón Vídalín Skálholtsbiskup lést þar á ferðalagi. Hann var þá ásamt fylgdarliði á leið til jarðarfarar mágs síns, séra Þórðar Jónssonar á Staðastað. Nýjum rammgerðum sex metra háum krossi úr málmfuru hefur…Lesa meira

true

Endurnýting og umhverfissjónarmið í Grundarfirði

Endurvinnslan – markaður er heiti á viðburði sem haldinn var í Samkomuhúsi Grundarfjarðar um liðna helgi. Þar gat fólk leigt bása og boðið fatnað sem legið hafði í geymslum manna engum til gagns. Verði var stillt í hóf og voru sumir að gefa varning á meðan aðrir létu ágóðann renna til góðgerðarmála. Rut Rúnarsdóttir er…Lesa meira

true

Samið um vopnahlé og unnið að skipulagi fyrir Húsafell

Tekist hefur sátt meðal hlutaðeigandi málsaðila um að hefja vinnu við gerð nýs skipulags á Húsafelli svo hægt verði að leysa þær deilur sem uppi hafa verið um skipulagsmál þar, eins og lesendur Skessuhorns þekkja. Í samkomulaginu felst m.a. að kannað verður til hlýtar hvort málsaðilar geti náð saman um sameiginlega hagsmuni á svæðinu. Samkomulagið…Lesa meira

true

Tökur á Vitjunum að hefjast í Grundarfirði

Tökur á þáttaröðinni Vitjanir, sem fyrirtækið Glassriver framleiðir, eru að hefjast og munu að miklu leyti fara fram í Grundarfirði á næstu mánuðum. Íbúar í Grundarfirði mega því búast við að sjá kvikmyndagerðarfólk að störfum enda er þetta nokkuð umfangsmikil þáttagerð. Vitjanir, eða Fractures, eru dramaþættir í leikstjórn Evu Sigurðardóttur. Gerast þeir í litlu sjávarþorpi…Lesa meira

true

Boðar tilslakanir eftir helgi

Eins metra regla og 200 manna fjöldatakmarkanir Sóttvarnalæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að fjöldatakmörk samkomubanns verði rýmkuð úr hundrað manns upp í tvö hundruð, frá og með mánudeginum 7. september næstkomandi. Sömuleiðis hefur hann lagt til að tveggja metra reglan verði afnumin, en í stað verði fjarlægðarmörk miðuð við einn metra. Þetta kom fram…Lesa meira

true

Hótel rís á Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal

Á Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal rís nú 13 herbergja hótel. Þegar blaðamaður Skessuhorns átti þar leið hjá fyrir helgi var búið að reisa veggi herbergjaálmu hótelsins og unnið var að því að tengja pípulagnir. Á næstu dögum mun þar einnig rísa álma sem hýsir móttöku og matsal. Það eru hjónin Hjördís Geirdal og Þórarinn Svavarsson sem…Lesa meira

true

Of hratt og í símanum

Sjö voru sektaðir fyrir farsímanotkun undir stýri í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi frá 24. ágúst til mánaðamóta. Hraðakstur var áberandi í landshlutanum undanfarna viku, eins og svo oft áður og mjög margir sem voru myndaðir við of hraðan akstur af hraðamyndavélunum í umdæminu. Einhverjir þeirra gerðu hvort tveggja í senn; óku of hratt og notuðu…Lesa meira

true

Nýtt lag með Meginstreymi

„Finnst þér sama og mér?“ er nýtt lag sem hljómsveitin Meginstreymi sendi frá sér fyrir helgina, ásamt myndbandi. Hlýða má á lagið á Spotify og öllum helstu streymisveitum og myndbandið má sjá á YouTube, auk þess sem það er aðgengilegt á Instagram- og Facebook-síðu hljómsveitarinnar. Hafa viðtökurnar verið góðar, en horft var yfir 3000 sinnum…Lesa meira

true

Covidstyrkir til fjölmiðla samþykktir

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur samþykkt tillögu fjölmiðlanefndar um úthlutun sérstaks einskiptis rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla, til að mæta efnahagslegum áhrifum Covid-19 faraldursins. Styrkveitingin, sem samþykkt var á Alþingi í vor, hljóðar upp á 400 milljónir króna og skiptist á milli 23 fjölmiðla, en þremur umsóknum var hafnað. Sjálft fjölmiðlafrumvarp ráðherra, sem fæli í…Lesa meira