Fréttir

true

Veik von um sæti í úrslitakeppninni

Skallagrímur mátti sætta sig við tap þegar liðið mætti Ísbirninum í 4. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Kórnum í Kópavogi og það voru heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 3-0. Eftir markalausan fyrri hálfleik tókst heimamönnum að brjóta ísinn á 59. mínútu leiksins, með marki frá Orats Reta Garcia. Milos…Lesa meira

true

Góður heimasigur Víkings

Víkingur Ó. sigraði Magna, 3-2, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á blautum Ólafsvíkurvelli í nokkuð stífum vindi og einkenndist leikurinn af mikilli baráttu. Heimamenn voru þó sterkari allan leikinn og þeir komust yfir strax á 6. mínútu. Hornspyrna var tekin stutt og boltinn barst á Gonzalo Zamorano…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá heilbrigðisráðherra vegna krabbameinsskimana

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að konur treysti áfram á þjónustu Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) og sinni boðum um reglubundnar skimanir. Hún segir að allt verði gert til að rannsaka til hlítar hvað olli afdrifaríkum mistökum við leghálsskimanir hjá Leitarstöð KÍ og fyrirbyggja að slíkt geti endurtekið sig. Breytingar verða á fyrirkomulagi krabbameinsskimana um næstu áramót,…Lesa meira

true

Ríkissjóður skilar neikvæðri afkomu um 115 milljarða á sex mánuðum

Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrri helming ársins þessa árs liggur fyrir. Helstu niðurstöður eru þær að rekstrarafkoman er neikvæð um 115 milljarða króna sem er í samræmi við væntingar að teknu tilliti til áhrifa COVID-19, eins og segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Samkvæmt upphaflegri áætlun fjárlaga var gert ráð fyrir að afkoma tímabilsins yrði neikvæð um…Lesa meira

true

Skagakonur úr leik í bikarnum

Úrvalsdeildarlið Breiðabliks var of stór biti fyrir Skagakonur, en liðin mættust í átta liða úrslitum Mjólkurbikarskvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Breiðablik var fyrir leikinn í 2. sæti Pepsi Max deildarinnar en Skagakonur leika sem kunnugt er í deildinni fyrir neðan. Það var því ljóst að Skagakonur ættu erfiðan leik fyrir höndum á Akranesi í gær.…Lesa meira

true

Fyrstu réttir á morgun

Fyrstu réttir á Vesturlandi verða núna um helgina. Réttað verður í Nesmelsrétt í Hvítársíðu á morgun, laugardaginn 5. september, og daginn eftir verður réttað í Kaldárbakkarétt í gamla Kolbeinsstaðahreppi. Yfirlit yfir fjárréttir á Vesturlandi fer hér á eftir, en rétt er að geta þess að villur gætu hafa slæðst inn í listann, sem Bændablaðið tók…Lesa meira

true

Slakað á hömlum vegna Covid

Nálægðarreglu verður breytt úr tveimur metrum í einn metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 í 200 manns þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi á mánudaginn, 7. september. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar sem Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra hefur gefið út um takmarkanir á samkomum. Breytingarnar eru í samræmi…Lesa meira

true

Bókaloftið á Hvanneyri hættir starfsemi í lok september

Ásdís Geirdal á Hvanneyri hefur undanfarin fimm ár haldið úti rekstri Bókaloftsins á Hvanneyri, en það er markaður með notaðar bækur. Nú hefur Ásdís ákveðið að hætta starfsemi eftir yfirstandandi mánuð. Hún segir að framundan séu viðgerðir á húsnæðinu og því þurfi hún að víkja með markaðinn og verður Bókaloftinu lokað 30. september. Nú í…Lesa meira

true

Stærstu sláturleyfishafarnir hafa enn ekki birt afurðaverð

Bændur hafa nú síðsumars beðið með óþreyju eftir að sláturleyfishafar gefi út verðskrá fyrir dilkakjöt í haustslátrun. Nú er sláturtíð hafin og enn hafa stærstu sláturhúsin, Kaupfélag Skagfirðinga og Sláturfélag Suðurlands, ekki gefið út sína verðskrá. Eðli málsins samkvæmt er það afleit staða fyrir bændur áður en þeir þurfa að gefa upp sláturfjárloforð sín. Landssamtök…Lesa meira

true

Hlutdeildarlán samþykkt sem lög frá Alþingi

Alþingi samþykkti í gær frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um hlutdeildarlán sem ætlað er að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast sína fyrstu íbúð. Hlutdeildarlánin eru að skoskri fyrirmynd og brúa bilið á milli lána veittum af fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum annars vegar og kaupverðs hins vegar. Hægt verður að sækja um lánin…Lesa meira