Fréttir

true

Festi höfuðið í stiga

Íbúi á Akranesi hafði samband við lögreglu síðastliðinn sunnudag þegar hann varð var við einhvern sem kallaði á hjálp. Lögregla fór á staðinn og heyrði hjálparköll berast úr húsi einu og braut sér leið þar inn. Þegar lögregla var komin inn í húsið kom hún að konu sem hafði fest höfuðið milli þrepa í stiga.…Lesa meira

true

Áttatíu prósenta fækkun flugfarþega í júlí

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 45.600 í nýliðnum júlí samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða 80,3% færri en í júlí í fyrra, þegar þær voru um 231 þúsund talsins. Danir voru fjömennastir í júlí eða ríflega fimmtungur brottfara og fjölgaði þeim um þriðjung frá júlí í fyrra. Næstfjölmennastir voru Þjóðverjar (20,2%) en…Lesa meira

true

Nýr deildarforseti á Bifröst

Njörður Sigurjónsson, prófessor í menningarstjórnun, hefur verið ráðinn forseti félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Bifröst. Hann tekur við stöðunni af Magnúsi Árna Skjöld Magnýssyni, sem mun halda áfram sem dósent við skólann. Njörður hefur frá 2004 kennt við meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Áður var hann framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs, markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og sviðs-…Lesa meira

true

Bannað að fagna með snertingu

Knattspyrnusamband Íslands hefur opinberað drög að reglugerð sem á að sjá til þess að hægt verði að halda Íslandsmótinu áfram á tímum farsóttar. Þar er að finna mjög ítarlegar og strangar sóttvarnarreglur sem fara ber eftir á leikdögum. Í reglugerðinni segir meðal annars að leikmönnum, þjálfurum og öðrum starfsmönnum sé óheimilt að fagna skoruðum mörkum…Lesa meira

true

Átaksverkefnið Göngum í skólann að hefjast

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ásamt samstarfsaðilum, ræsir verkefnið Göngum í skólann í fjórtánda sinn miðvikudaginn 2. september næstkomandi. Um er að ræða átaksverkefni þar sem markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Átaksverkefnið er…Lesa meira

true

Útsvarstekjur á Vesturlandi drógust saman

Heildartekjur sveitarfélaganna á Íslandi af útsvari hækkuðu um 0,3% á landsvísu á fyrri hluta ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. Þó er mjög mismunandi milli landshluta hvort tekjur sveitarfélaganna hækka eða lækka. Mest hækkuðu útsvarstekjur sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, eða um 2,3%, en lækkuðu mest á Suðurnesjum, um 2,5%. Þetta kemur fram í úttekt…Lesa meira

true

Íbúatalan hefur lítið breyst á Vesturlandi frá 1. desember

Á átta mánaða tímabili frá 1. desember 2019 til 4. ágúst fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 22, sem jafngildir 0,1%. Íbúar eru nú 16.688. Á tímabilinu fækkaði íbúum í þremur sveitarfélögum í landshlutanum. Mest fækkaði í Stykkishólmi um 17 íbúa sem jafngildir 1,4% og í Grundarfirði fækkaði um 13 íbúa en það jafngildir 1,5% fækkun.…Lesa meira

true

Kerlingarfjöll friðlýst

Í dag var undirrituð friðlýsing Kerlingarfjalla og nærliggjandi svæða, alls um 344 ferkílómetrar. Friðlýsingunni var fagnað við hálendismiðstöðina í Ásgarði í Kerlingarfjöllum. Kerlingarfjöll eru í hópi helstu náttúruperla landsins, vinsælt útivistarsvæði með mikið verndargildi. Áform um friðlýsingu hófust árið 2016 en sveitarfélagið Hrunamannahreppur hafði frumkvæði að samstarfi við undirbúning hennar. Margir hafa komið að verkefninu…Lesa meira

true

11 í einangrun með Covid og 62 í sóttkví

Ný virk innanlandssmit á landinu af Covid-19 voru tvö á síðasta sólarhring, bæði í Vestmannaeyjum. Auk þess greindist eitt við landamærin og jákvæð niðurstaða fannst úr einni skimun þar sem beðið hafði verið eftir mótefnamælinu. Nú eru 114 með veiruna og alls 938 í sóttkví á landinu öllu. Hér á Vesturlandi eru nú 11 í…Lesa meira

true

Páll Sindri í Kára

Miðjumaðurinn Páll Sindri Einarsson hefur gengið til liðs við Kára að nýju og mun leika með liðinu í 2. deild karla í knattspyrnu þegar keppni hefst að nýju. Pál Sindra þarf ekki að kynna áhangaendum Káraliðsins. Hann lék fyrst með liðinu árið 2014 og aftur 2016, 2017 og 2018. Árið 2018 var hann einn besti…Lesa meira