Fréttir

true

Ítrekað unnin skemmdarverk í Skrúðgarði

Í sumar réðist Akraneskaupstaður í talsverðar endurbætur á Skrúðgarði bæjarins, sem staðsettur er við Suðurgötu. Gosbrunnur var lagfærður og listaverkinu Stúlka með löngu eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal komið fyrir á sínum stað. Þá var einnig gróðursett talsvert af fjölbreyttum runnum, fjölæringum og sumarblómum við brunninn. Mikil ánægja var með endurbæturnar og garðurinn hefur hlotið…Lesa meira

true

Takk! veggur kominn í Borgarnes

Vinnuskólinn í Borgarnesi málaði fyrir verslunarmannahelgi TAKK-vegg. Er hann við ærslabelginn við sundlaugina í Borgarnesi. „Borgarbyggð hvetur íbúa til þess að taka þátt í átakinu og senda hrós, við þekkjum öll einhvern sem er til fyrirmyndar,“ segir í tilkynningu. Takk! – til fyrirmyndar er hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni en 1. ágúst…Lesa meira

true

Nóg um að vera á höfninni

Enn er unnið hörðum höndum við hafnarframkvæmdir í Grundarfirði. Vel hefur viðrað síðustu daga og starfsmenn verið iðnir við kolann. Nú styttist í að steypuvinna hefjist við höfnina og svo er dæluskip væntanlegt til að dýpka meira við hafnarkantinn. Efnið sem þar verður dælt upp fer svo í landfyllingu sem er örfáa metra frá. Það…Lesa meira

true

Engin fjölgun smitaðra á Vesturlandi

Nú eru 83 einstaklingar í einangrun á landinu öllu með Covid-19 og einn á sjúkrahúsi. 734 eru í sóttkví, fjölgaði um 70 frá í gær. Þrjú ný innanlandssmit greindust í gær, þar af eitt hjá Íslenskri erfðagreiningu. Ríflega þrjú þúsund sýni voru tekin í gær og 900 þeirra úr fólki sem búsett er hér á…Lesa meira

true

Komu mörgum til aðstoðar á hálendisvakt á Sprengisandi

Vaskur 16 manna hópur borgfirsks björgunarsveitarfólks var um vikutíma á Sprengisandi um mánaðamótin og sinnti hálendisvakt björgunarsveitanna. Þetta voru félagar úr björgunarsveitunum Brák, Ok og Heiðari. Bjó hópurinn í skála Ferðafélags Íslands í Nýjadal. Olgeir Helgi Ragnarsson úr Björgunarsveitinni Brák skrifaði færslu um ferðina: „Það sýndi sig að við áttum fullt erindi. Við aðstoðuðum ferðafólk…Lesa meira

true

Opnað fyrir tilboð á morgun í greiðslumark í mjólk

Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn 1. september næstkomandi. Í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu verður að hámarki hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. Þá má hlutdeild framleiðanda eða framleiðenda sem eru í eigu einstakra aðila, einstaklinga, lögaðila eða tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli…Lesa meira

true

Guðni settur í embætti í annað sinn

Guðni Th. Jóhannesson var settur í embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu við Austurvöll laugardaginn 1. ágúst síðastliðinn. Athöfnin var töluvert minni í sniðum og færri viðstaddir en venja er vegna varna gegn kórónuveirunni. Í þinghúsinu lýsti forseti Hæstaréttar kjöri forseta sem undirritaði svo eiðstaf sinn. Þá flutti forseti Íslands innsetningarræðu.Lesa meira

true

Íslandsmótið í golfi hefst á fimmtudaginn

Íslandsmótið í golfi mun fara fram dagana 6.–9. ágúst á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Golfsamband Íslands lagði fram tillögur til stjórnvalda um að leika keppnisgolf og jafnframt virða sóttvarnareglur. Var það gert í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða og takmörkunar á íþróttastarfi í kjölfar tilkynningar stjórnvalda 30. júlí. „Það er Golfsambandinu mikil ánægja að tilkynna að tillögurnar…Lesa meira

true

Tilmæli vegna íþróttastarfs fullorðinna eftir hertar reglur

Samkomur voru takmarkaðar á hádegi síðastliðinn föstudag. Yfirvöld hafa vegna þessa gefið út tilmæli um íþróttastarf fullorðinna og gilda þær til 13. ágúst næstkomandi. Hertar aðgerðir miða að því að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins. Tilmæli hafa jafnframt borist frá yfirvöldum um áhrif hertra aðgerða á íþróttastarf fullorðinna (þ.e. þeirra sem…Lesa meira

true

Plan-B í Borgarnesi með breyttu sniði vegna COVID-19

Listahátíðin Plan-B Art Festival, sem fram fer árlega í Borgarnesi, verður dagana 7. –9. ágúst n.k. en með breyttu sniði að sögn skipuleggjenda. „Frá fyrsta degi hefur Plan-B lagað sig að óhefðbundnum aðstæðum, við höfum til dæmis sýnt list í gömlu sláturhúsi, í heimahúsum og íþróttamiðstöðinni og smeygt listinni inn hér og þar í Borgarnesi.…Lesa meira