Fréttir

true

Ólafsdalshátíð aflýst

Hin árlega Ólafsdalshátíð, sem áformað var að halda 13. sinni laugardaginn 15. ágúst næstkomandi, hefur verið blásin af í þetta skipti vegna hertra samkomutakmarkana. Á Facebook-síðu Ólafsdalsfélagsins segir að félaginu séu mikil vonbrigði að þurfa að hætta við hátíðina, en hún hefur verið eitt af mikilvægustu verkefnum þess ár hvert. Hundrað manna samkomutakmarkanir og skyldubinding…Lesa meira

true

Ísak Bergmann áfram hjá Norrköping

Sænska knattspyrnufélagið IFK Norrköpking greindi frá því í dag að Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefði endurnýjað samning sinn við félagið. Ísak er 17 ára gamall og gekk til liðs við Norrköping fyrir tveimur árum síðan, þá 15 ára gamall. Hann þykir mikið efni og hefur hlutverk hans sænska liðinu vaxið stöðugt. Hann hefur spilað ellefu…Lesa meira

true

Einn kaldasti júlí seinni ára

Júlímánuður var fremur kaldur miðað við það sem verið hefur frá aldamótum, að því er fram kemur í yfirliti Veðurstofu Íslands um tíðarfar í júlí. Meðalhiti í Reykjavík var 10,7 stig, 10,1 stig á Akureyri en 9,9 gráður í Stykkishólmi. Miðað við síðustu tíu ár voru hitavik aðeins jákvæð á örfáum stöðum á Suðausturlandi, en…Lesa meira

true

Níu tilfelli af Covid 19 frá í gær

Samkvæmt covid.is voru níu einstaklingar greindir með Covid-19 í gær á landinu. Alls er 91 einstaklingur með veiruna og 746 eru í sóttkví á landinu öllu. Veiran hefur nú greinst í öllum landshlutum þar sem einn smitaður er á Austurlandi. Hér á Vesturlandi er tala smitaðra óbreytt frá í gær, 9 eru nú í einangrun…Lesa meira

true

Staðan í fótboltanum verður endurmetin í dag

Stjórn KSÍ ákvað síðastliðinn fimmtudag að fresta leikjum í meistara- og 2. flokki karla og kvenna frá 31. júlí til og með í dag, 5. ágúst. Kom ákvörðunin í kjölfar hertra aðgerða stjórnvalda gegn Covid-19. Samþykkt var hins vegar að leikir sem fram fóru að kvöldi fimmtudags 30. júlí skyldu fara fram samkvæmt leikjadagskrá en…Lesa meira

true

Hætt kominn á bílþaki í Kaldaklofskvísl

Í morgun voru björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli kallaðar út vegna ökumanns sem var í vandræðum í Kaldaklofskvísl við Hvanngil. Hafði hann fest bíl sinn í ánni og þurft að koma sér upp á þak því vatn flæddi inn í bílinn. Var hann búinn að vera á þaki bílsins í um tvær klukkustundir þegar björgunarmenn…Lesa meira

true

Haffjarðará og Hítará að gefa vel af fiski

Laxveiðin í ánum á Vesturlandi hefur verið misgóð í sumar. Sumsstaðar er hún undir væntingum og einkum er minna af smálaxi að skila sér en spáð hafði verið. En veiðin er góð í sumum ánum og má í því sambandi nefna Haffjarðará og Hítará sem eru að bæta sig verulega á milli ára. „Ég var…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi frá Reykjagarði

Matvælastofnun varar við neyslu á ferskum kjúklingi (heilum kjúklingi, bringum, lundum og bitum) frá Reykjagarði með rekjanleikanúmerunum 002-20-26-3-01 og 003-20-26-2-01 vegna gruns um salmonellu. Kjúklingurinn er seldur undir merkjum Holta, Kjörfugls og Krónunnar. Fyrirtækið hefur hafið innköllun. Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi framleiðslulota: Vöruheiti: Holta, Kjörfugl og Krónu kjúklingur Vörutegund: Heill fugl, bringur, lundir, bitar…Lesa meira

true

Bakteríusýking í garðplöntum af rósaætt

Matvælastofnun hafa borist tilkynningar um grun um smit af bakteríunni Erwinia amylovora í ýmsum plöntum í görðum hér á landi. Bakterían er þekktur skaðvaldur og leggst helst á plöntur af rósaætt (Rosaceae) svo sem epla- og perutré, kirsuberjatré og reyni. Einkenni sjúkdómsins minna á miklar hitaskemmdir á plöntum og þekkist sjúkdómurinn erlendis undir nafninu „fire…Lesa meira

true

Skýra betur reglur um samkomutakmarkanir

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að gera breytingar á auglýsingu þeirri sem tók gildi 31. júlí síðastliðinn. Breytingarnar lúta að því að gera auglýsingu nr. 758/2020 skýrari. Í fyrsta lagi er gerð sú breyting að skýrt verður hversu mörgum viðskiptavinum sé heimilt að vera inni í matvöruverslunum. Þeir mega mest vera 100. Þó er…Lesa meira