
Fæðingardagur hans er 11.11. og árið 1946. Mamma hans sagði drenginn hafa byrjað að ganga ellefu mánaða, líklega um ellefuleitið þennan októberdag. Við heimsækjum Gunnar Hinriksson rútubílsstjóra í Stykkishólmi. Hann fæddist á Helgafelli í Helgafellssveit. Á þeim sama forna kirkjustað og landnámsjörð sem sagt er að Þorstein þorskabítur, sonur Þórólfs Mostrarskeggs, hafi fyrstur byggt sér…Lesa meira








