Fréttir

true

Guðmunda verður nýr framkvæmdastjóri ÍA

Guðmunda Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness í stað Hildar Karenar Aðalsteinsdóttur sem hverfur til annarra starfa. Guðmunda kemur til starfa frá Íþróttafélagi Reykjavíkur þar sem hún var verkefnastjóri / framkvæmdastjóri tímabundið en áður starfaði hún sem fjármálastjóri hjá Iðnvélum og sem framkvæmdastjóri Next á Íslandi. Guðmunda hefur lokið MBA gráðu frá Háskóla Íslands…Lesa meira

true

Fimm leikja bann og sekt fyrir rasísk ummæli

Aga- og útskurðarnefnd KSÍ birti í gær úrskurð sinn sinn vegna rasískra ummæla leikmanns Skallagríms í garð leikmanns Berserkja. Féllu þau 10. júlí þegar liðin áttust við í 4. deild karla. Samkvæmt úrskurðinum fær Atli Steinar Ingason, leikmaður Skallagríms, fimm leikja bann sem tekur gildi strax auk þess sem hann verður í banni frá leikvelli…Lesa meira

true

Fólk svari ekki spurningum í svikasímtölum

Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning skömmu eftir miðnætti þriðjudaginn 14. júlí sl. um svikasímtöl. Hringt hafði verið í tilkynnandann úr leyninúmeri og hann spurður allskyns spurninga. Segir lögreglan mikilvægt að ef fólk fái slík símtöl að svara ekki spurningunum.Lesa meira

true

ÍA konur tapa fyrir toppliðinu

Kvennalið ÍA þurfti að lúta í lægra haldi gegn sterku liði Keflavík þegar liðin mættust í Reykjanesbæ í fimmtu umferð fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Skagakonur hafa átt erfitt uppdráttar með að sigla sigrum í höfn það sem af er móti. Fyrir viðureignina voru þær með þrjú jafntefli og einungis einn sigur að…Lesa meira

true

Kynningarmyndband fyrir Hvalfjarðarsveit

Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur í samstarfi við Hrafn Art unnið að gerð kynningarmyndbanda fyrir sveitarfélagið. Fyrra myndbandið var kynningarmyndband fyrir þá sem eru á ferðalagi um Hvalfjarðarsveit og var birt um síðustu mánaðamót. Nú er búið að birta seinna myndbandið sem er kynningarmyndband um hvernig sé að búa í Hvalfjarðarsveit. Sjá myndbandið hér.Lesa meira

true

„Það fer sko enginn óspjallaður frá okkur“

Grundfirðingar hafa í sumar verið duglegir að spjalla og eru fimmtudagskvöld alveg sérstök spjallkvöld þar í bæ. Í byrjun sumars funduðu fjórir spjallarar, þau Olga Aðalsteinsdóttir, Kristín Halla Haraldsdóttir, Lúðvík Karlsson, eða Liston eins og hann er kallaður, og Gunnar Garðarson, með Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra þar sem hún skipaði spjallarana í svokallaða spjallnefnd og hefur…Lesa meira

true

Stefna á að bæta þjóðveginn að Kalmanstungu

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur veitt Vegagerðinni heimild til að undirbúa framkvæmdir við endurbætur þriggja kílómetra vegarkafla á þjóðveginum frá Hvítá ofan við Húsafell og að Kalmanstungu. Vegagerðin áformar að endurbyggja, lagfæra og leggja bundið slitlag á veginn. Verður hann breikkaður í 6,5 metra, styrktur og lagður bundnu slitlagi eins og gert er samkvæmt verklagi við umferðarlitla…Lesa meira

true

Skrifaði mastersritgerð um áhrif áfalla á líf fólks

Guðný Guðmarsdóttir frá Borgarnesi skilaði nýverið inn mastersritgerð sinni við Háskólann á Akureyri þar sem hún rannsakar áhrif áfalla á líf fólks. Hún segir niðurstöðurnar sláandi og að það þurfi róttækar breytingar í kerfinu til að koma til móts við hóp einstaklinga sem lent hafa í áföllum og hjálpa því að ná sér. Guðný spjallaði…Lesa meira

true

Fjölmennt og öflugt íþróttamót Borgfirðings

Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt íþróttamótið sitt um liðna helgi á félagssvæðinu í Borgarnesi. Óhætt er að segja að þetta hafi verið eitt stærsta mót sem haldið hefur verið á Vesturlandi í langan tíma. 235 skráningar voru og keppt í 22 flokkum. Upphaflega átti mótið að fara fram á laugardegi og sunnudegi en vegna þessarar metskráningar þurfti…Lesa meira

true

Afkastamiklir þjófar á ferð

Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning síðastliðinn laugardag um innbrot í Húsafelli. Búið var að spenna upp skúr starfsmanna og taka þaðan verðmæti. Fundust aðilarnir og voru þeir handteknir grunaðir um þjófnað og innbrot en að auki fá þeir kæru vegna gruns um vörslu ávana- og fíkniefna og fyrir að hóta lögreglumönnum. Búið er að finna…Lesa meira