
Að morgni síðasta sunnudags var ökumaður stöðvaður við Baulu. Sá var ekki með ökuskírteini, hvorki hefðbundið eða rafrænt. Má hann búast við 20 þúsund króna sekt fyrir þennan bíltúr. Um er að ræða ökumann undir 18 ára aldri og sendi Lögreglan á Vesturlandi því tilkynningu til barnaverndar vegna málsins.Lesa meira








