Fréttir

true

Sigurfari stendur fyrir námskeiðum í sjókayakasiglingum

Starfsemi siglingaklúbbsins Sigurfara hefur gengið vel í sumar, að sögn Guðmundar Benediktssonar formanns. „Siglinganámskeiðin okkar hafa verið fullbókuð og fengið góðar undirtektir. Nú eru þrjár vikur eftir. Vikulangar æfingabúðir Siglingasambandsins, þær þriðju á fimm árum, voru haldnar í kjölfar Faxaflóamóts kjölbáta sem fór fram 27. og 28. júní. Siglingamenn eru mjög ánægðir með aðstæður hér,…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði í toppslagnum

Borgnesingar í Skallagrími þurftu að sætta sig við tap gegn Hamarsmönnum þegar liðin mættust í toppslag C riðils fjórðu deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi í Hveragerði. Það voru heimamenn úr Hveragerði sem skoruðu fyrsta mark leiksins. Það kom á 26. mínútu þegar Bjarki Rúnar Jónínuson skilaði knettinum inn fyrir mark þeirra gulklæddu. Tíu mínútum…Lesa meira

true

Íslandsmót eldri kylfinga hafið í Borgarnesi

Íslandsmót eldri kylfinga í golfi fer fram dagana 16.-18. júlí á Hamarsvelli í Borgarnesi. Alls eru 133 kylfingar skráðir til leiks; 40 konur og 93 karlar. Keppendur koma frá 23 klúbbum víðsvegar af landinu. Leiknir verða þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Keppnisfyrirkomulagið er höggleikur án forgjafar og leika karlarnir af gulum teigum og…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris um norðvestanvert landið

Í dag er í gildi viðvörun frá klukkan 13-19 vegna hvassviðris frá Breiðafirði, um Vestfirði og austur í Húnavatnssýslur. Við Breiðafjörð verður norðaustan 13-20 m/s, hvassast norðantil og snarpar vindhviður við fjöll. Þar verður varasamt að vera á ferð með ökutæki og aftanívagna sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsbíla, hjólhýsi og hestakerrur.Lesa meira

true

Heitavatnslaust á hluta Akraness

Vegna bilunar er heitavatnslaust í götunum Höfðabraut til og með Jaðarsbraut á Akranesi í dag frá klukkan 09:00. „Við biðjumst velvirðingar á óhjákvæmilegum óþægindum. Nánari upplýsingar hér á https://www.veitur.is/bilanir_og_vidgerdir,“ segir í tilkynningu frá Veitum.Lesa meira

true

„Það á öllum að líða vel hjá okkur“

Spinningæði hefur gripið um sig í Grundarfirði. Í byrjun árs var fjárfest í spinninghjólum í Líkamsræktinni og byrjað að bjóða upp á spinningtíma. Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið góðar en það var nánast slegist um hjólin í vetur. Fyrir tveimur árum voru Ágústa Einarsdóttir og Guðmundur Njáll Þórðarson að íhuga kaup á…Lesa meira

true

Lúxussnekkjan Ragnar átti viðkomu á Grundarfirði

Mjög svo óvenjulegt skip átti viðkomu á Grundarfirði um helgina. Lúxussnekkjan Ragnar er skráð á Möltu og gaman að rifja upp sögu hennar. Útlit Ragnars er mjög framúrstefnulegt. Upphaflega var skipið smíðað 2012 í Hollandi og hét Sanaborg og var ísbrjótur. Það er 68,2m á lengd og 14m á breidd. Ísbrjóturinn hafði svo legið ónotaður…Lesa meira

true

Metþátttaka í meistaramóti Golfklúbbs Leynis

Meistaramót Golfklúbbsins Leynis fór fram á Garðavelli á Akranesi í liðinni viku. Keppt er í höggleik og tóku alls 146 kylfingar þátt í mótinu sem reyndist metþátttaka í þessari keppni. Mótið hófst mánudaginn 6. júlí þegar yngri kylfingar hófu keppni. Á miðvikudegi fóru eldri flokkar af stað og lauk mótinu með tilheyrandi verðlaunaafhendingu og lokahófi…Lesa meira

true

Langhlaupið verður lífsstíll

Hlaupagarpurinn Gunnar Viðar Gunnarsson í Borgarnesi varð nýlega fyrstur allra til að ljúka viðurkenndu 100 mílna keppnishlaupi á Íslandi, rúmum 162 kílómetrum. Eins og fram kom í síðasta tölublaði Skessuhorns þá er hlaupið hluti af viðburðinum America to Europe Ultra sem var nú haldið hér á landi í fyrsta sinn. Boðið var upp á nokkrar…Lesa meira

true

Eldri borgarar íhuga að stofna stjórnmálahreyfingu

„Þetta er svo mikið óréttlæti. Þegar það kostar ekki krónu að leyfa eldri borgurum að vinna sér til bjargar og þeim er meinað það. Þegar verið er að skerða greiðslur Tryggingastofnunar á móti lífeyrisgreiðslum; eða þegar eldri borgarar missa öll réttindi sín í verkalýðshreyfingunni eftir áratuga starf. Þetta er svo ótrúlegt, að það er ekki…Lesa meira