Fréttir

true

Keppnin Álmaðurinn verður á morgun

Keppt verður í þríþrautarkeppninni Álmanninum á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 2. júlí. Um er að ræða þríþraut þar sem er synt, hlaupið og hjólað á Langasandi og Akrafjalli. Skipulag Álmannsins er í höndum líkamskræktarstöðvarinnar Ægis með stuðningi frá Björgunarfélagi Akraness og ÍA. Keppni hefst kl 18:30 á bílastæðinu við Akraneshöllina og lýkur við Langasand. Fyrst…Lesa meira

true

Reynt að svíkja út fé í nafni Facebook

Að jafnaði eru margir sem reyna ólíkar aðferðir við að svíkja út fé í gegnum netið. Í dag barst ritstjórn Skessuhorns eftirfarandi tölvupóstur. Hann er sendur út í nafni Facebook Inc, en nokkuð augljóslega er hér um svikastarfsemi að ræða. Ástæða er til að vara við svona löguðu, en pósturinn í heild sinni er eftirfarandi:…Lesa meira

true

„Það er fullkomlega eðlilegt að ekki séu allir sammála um mál af þessari stærðargráðu“

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt að auglýsa breytingar á aðalskipulagi á tveimur jörðum í Laxárdal; Hróðnýjarstöðum og Sólheimum. Breytingin felst í því að jörðunum yrði breytt úr landbúnaðarsvæðum yfir í iðnaðarsvæði svo hægt sé að reisa þar vindorkugarða. Þá eru Dalamenn einnig farnir að huga að sameiningu sveitarfélaga og hefur sveitarstjórn hafið óformlegar viðræður við sveitarfélögin…Lesa meira

true

Dauð smásíld í Kolgrafafirði

Mikið fuglalíf var norðanmegin við veginn yfir Kolgrafafjörð í gærkveldi og þegar betur var að gáð var mikið magn af dauðri kópsíld á svæðinu. Ekki er vitað af hverju smásíldin drapst þarna en þetta er á flæðum sem fjarar út af á skömmum tíma og spurning hvort að síldin hafi orðið innlyksa. En það eru…Lesa meira

true

Hefja tónleikaferð sína um Vesturland í dag

Söngvararnir Svavar Knútur og Kristjana Stefáns leggja land undir fót og halda af stað um Vesturland í dag.  júlímánuði og ætla að syngja dúetta og spila létta tónlist á vel völdum stöðum í landshlutanum. Tónleikaröðin ber það ljúfa heiti; Með faðmlög í farteskinu. Fyrstu tónleikar þeirra verða klukkan 20 í kvöld í gömlu kirkjunni í…Lesa meira

true

Vistaður í pappakassa eftir að átök brutust út

„Eftir að átök brutust út milli þriggja aðila í gærkvöldi fyrir utan veitingastað á Skallagrímsvelli í Borgarnesi var þessi handsamaður af lögreglu. Var hann nokkuð vankaður eftir atið og vistaður í pappakassa. Létu tveir aðilar sig hverfa af vettvangi og eru þeir grunaður um aðild að málinu. Öðrum var lýst sem bröndóttum og hinum hvítum.“…Lesa meira

true

Kynningarmyndband fyrir Hvalfjarðarsveit

Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur í samstarfi við Hrafn Art unnið að gerð kynningarmyndbanda fyrir sveitarfélagið. Annars vegar myndband fyrir þá sem eru á ferðalagi um Hvalfjarðarsveit og hins vegar kynningarmyndband um hvernig sé að búa í sveitarfélaginu. Kynningarmyndbandið fyrir þá sem eru að ferðast í sumar hefur verið birt og sett upp á heimasíðu…Lesa meira

true

Hringur dró Baldur í Stykkishólm

Í gærkvöldi kom ferjan Baldur til hafnar í Stykkishólmi eftir vélarbilun á mánudaginn. Það var Hringur SH-153, skip GRun í Grundarfirði sem dró skipið frá Flatey í Hólminn. Ferðin gekk vel. Ný túrbína og aðrir varahlutir í Baldur eru nú á leið frá Danmörku samkvæmt tilkynningu frá Sæferðum. Ekki liggur enn fyrir hversu langan tíma…Lesa meira

true

Sannfærandi heimasigur Borgnesinga

Skallagrímsmenn sýndu góða frammistöðu gegn KFB í Borgarnesi er þeir sigruðu Bessastaðamenn 5-1 í gærkvöldi. Liðin leika í C riðli 4. deildar karla í knattspyrnu og var þetta þriðja umferð móts sem endaði eins og fyrr segir, með Skallasigri. Heimamenn byrjuðu í vægast sagt banastuði og skoruðu fyrstu þrjú mörkin á innan við fyrstu tíu…Lesa meira