Fréttir

true

Samið um styrk til sálfræðiráðgjafar til nemenda MB

Nýverið framklengdu Menntaskóli Borgarfjarðar og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands samkomulag sem felur í sér stuðning við nemendur sem stunda nám í MB í formi endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Samningurinn er til næstu tveggja skólaára og er hugsaður sem forvörn gegn brottfalli nemenda úr skóla. Bragi Þór Svavarsson skólameistari segir að gegn tilvísun frá námsráðgjafa skólans geti hver…Lesa meira

true

Lækkun varð á verði sjávarfangs í maí

Verð fyrir íslenskar sjávarafurðir lækkaði um 2,3% í erlendri mynt í maí frá fyrri mánuði samkvæmt verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofa Íslands birti í gær. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem lækkun á sér stað og hefur tólf mánaða taktur vísitölunnar þar með tekið verulegan viðsnúning á örskömmum tíma. Þannig hækkaði verð á sjávarafurðum um…Lesa meira

true

Gróðursettu í minningu Svövu Sjafnar

Allmargir félagsmenn úr danshópnum Sporinu komu saman undir Brekkufjalli í Andakíl síðastliðinn laugardag til að gróðursetja trjálund til minningar um kæran félaga sinn, Svövu Sjöfn Kristjánsdóttur á Hvanneyri, sem lést árið 2018. Trén urðu rúmlega 800 talsins. Danshópurinn Sporið var stofnaður árið 1995 og sérhæfir sig í að sýna íslenska þjóðdansa og miðla fróðleik um…Lesa meira

true

Metaðsókn er í sumarnám

Skráningum í sumarnám háskólanna hefur fjölgar mikið og höfðu um miðja síðustu viku 5.100 nemendur skráð sig í slíkt nám og rúmlega 330 í sumarnám framhaldsskólanna. Aðgerðum stjórnvalda er ætlað að sporna gegn atvinnuleysi og efla virkni og menntun meðal ungs fólks og atvinnuleitenda. Alls er 800 milljónum kr. varið til að efla sumarnám og…Lesa meira

true

Flytur inn og selur lífrænt vottuð efni og heimasaumuð barnaföt

Sumarið 2019 var Skagakonan Vera Knútsdóttir að byrja að sauma barnaföt þegar hún fann að það vantaði úrval af lífrænt vottuðum efnum hér á landi. Hún ákvað því að taka málin í eigin hendur og byrja að flytja inn efni. Hún opnaði svo vefverslun undir nafninu Litla músin og selur þar bæði efni og heimasaumuð…Lesa meira

true

Álfholtsskógur formlega opnaður

Síðastliðinn laugardag var Álfholtskógur í Hvalfjarðarsveit formlega opnaður af Skógræktarfélagi Skilmannahrepps í samvinnu við Skógræktarfélag Íslands. Síðastliðin tíu ár hefur verið unnið að því að undirbúa skóginn fyrir opnunina en svona opnun kallar á ýmsar aðgerðir. „Það þurfa að vera góðir stígar og brýr, fræðsluefni, merkingar og slíkt. Við höfum lagt okkur fram við að…Lesa meira

true

Kaju veitt viðurkenning fyrir gott starf í þágu náttúrunnar

Karen Jónsdóttir, eigandi Matarbúrs Kaju og Café Kaju á Akranesi, hlaut í gær viðurkenningu frá Náttúrulækningafélagi Reykjavíkur fyrir frumkvöðlastarf í sátt við náttúru og umhverfi. Kaja rekur eins og kunnugt er verslun með umbúðalausum, lífrænt vottuðum vörum og lífrænt kaffihús. Ingi Þór Jónsson, formaður Náttúrulækningafélags Reykjavíkur hélt stutt erindi þar sem hann þakkaði Kaju fyrir…Lesa meira

true

Varðskipið Óðinn lagðist að bryggju á Akranesi

Varðskipið Óðinn lagðist að bryggju á Akranesi laust eftir hádegið á föstudag. Um borð voru félagar í Hollvinasamtökum Óðins, sem hafa lagt kraft í varðveislu skipsins, viðhald þess og umhirðu. Skipið er hluti af Sjóminjasafninu í Reykjavík, en varðveitt í því ásigkomulagi sem það kom til safnsins og er að líkindum stærsti einstaki safngripur hér…Lesa meira

true

Metaðsókn í Landbúnaðarháskóla Íslands

Mikill fjöldi umsókna hefur borist Landbúnaðarháskóla Íslands bæði í háskólanám og starfsmenntanám skólans. Aðsóknin í grunnám (BS) við skólann jókst um 51,1% á milli ára. Aukningin er hlutfallslega mest í BS-nám í landslagsarkitektúr, eða 240% á milli ára. Fjölgun umsókna í garðyrkjunám á Reykjum er 45% og umsóknum í búvísindanám fjölgaði um 40%. Við skólann…Lesa meira

true

Forritunarstyrkir í Grundarfjörð og Stykkishólm

Forritarar framtíðarinnar er sjóður sem stofnaður var 2014 í þeim tilgangi að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hollvinir sjóðsins í ár eru RB, Landsbankinn, CCP, Össur, Íslandsbanki og Webmo design. „Vitað er að mikil þörf er á sjóðnum til að tengja saman viðskiptalífið, menntastofnanir og aðra hagsmunaaðila með það að leiðarljósi…Lesa meira