Fréttir

true

Brautskráðist frá Bifröst með tíu fyrir lokaritgerð um Brexit

Lunddælingurinn Friðrik Þórsson útskrifaðist á laugardaginn með BA gráðu í Hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Fyrir lokaritgerðina fékk hann tíu í einkunn en efni ritgerðarinnar var réttmæti Brexit. Blaðamaður Skessuhorns hitti Friðrik að máli og ræddi við hann um námið en þó meira um áhugaverða dvöl hans í Kína árið 2016 og…Lesa meira

true

Tinna Royal er stolt af nafnbótinni Bæjarlistamaður Akraness

Á þjóðhátíðardaginn var tilkynnt að myndlistarkonan Tinna Rós Þorsteinsdóttir, sem gengur undir listamannsnafninu Tinna Royal, er Bæjarlistamaður Akraness árið 2020. Í samtali við Skessuhorn segist Tinna Rós vera stolt af því að hljóta þessa heiðursnafnbót. „Mér finnst æðislegt að fá þennan gæðastimpil á verk mín. Ég er því mjög þakklát þeim sem settu nafn mitt…Lesa meira

true

Bæjarhátíðir víða með breyttu sniði á Vesturlandi

Bæjarhátíðir eru haldnar víða um land á sumrin og þar á meðal hér á Vesturlandi. Skessuhorn tók saman upplýsingar um helstu hátíðir landshlutans í sumar. Í ljósi ástandsins vegna Covid-19 er ljóst að hátíðarhöld verði með töluvert breyttu sniði í ár. Þá hafa hátíðir einnig verið blásnar af, bæði vegna faraldursins en einnig af öðrum…Lesa meira

true

Viðgerð á Deildartunguæð gekk vel

Í gær komu upp bilanir á tveimur stöðum á Deildartunguæð, flutningslögn hitaveitunnar frá Deildartungu til Borgarness og Akraness. Fyrst kom leki að lögninni þar sem hún liggur yfir Andakílsá en í kjölfar þrýstingsbreytingar gaf sig einnig rör við Varmalæk í Bæjarsveit. Lekinn við Andakílsá var áætlaður 5-10 l/sek. Í hádeginu var lokað fyrir rennsli vatnsins…Lesa meira

true

Bikarleikir framundan

Í þessari viku verður spilað í 32ja liða úrslitum Mjólkur-bikarkeppni karla í knattspyrnu. Tvö Vesturlandslið eru í pottinum. ÍA mætir Kórdrengjunum á Framvellinum í Reykjavík á morgun, miðvikudaginn 24. júní klukkan 19:15. Víkingur Ólafsvík tekur svo á móti nöfnum sínum úr Reykjavík á Ólafsvíkurvelli klukkan 19:15 fimmtudaginn 25. júní. Sextán liða úrslit bikarmótsins hefjast svo…Lesa meira

true

Vefsíðunni Búðardalur.is lokað

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti einróma á fundi sínum í gær breytingu á aðalskipulagi. „Það mun þýða að mikill hluti jarðanna Sólheima og Hróðnýjarstaða í Laxárdal mun breytast úr landbúnaðarjörðum í iðnaðarsvæði fyrir fyrirhuguð vindorkuver. Þetta geta forsvarsmenn vefsíðunnar Búðardalur.is ekki sætt sig við en þeir bera hagsmuni og framtíð Dalanna meira fyrir brjósti en núverandi sveitarstjórn…Lesa meira

true

Sveitarstjórn samþykkti skipulagsbreytingar vegna vindorkuvera

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í gær voru til umræðu og afgreiðslu tvö aðskilin mál frá umhverfis- og skipulagsnefnd sem bæði snerta breytingar á aðalskipulagi vegna fyrirhugaðra vindorkugarða í sveitarfélaginu. Annars vegar breyting á aðalskipulagi vegna vindorkulundar á Hróðnýjarstöðum í Laxárdal og hins vegar breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers á Sólheimum í Laxárdal. Fyrir sveitarstjórn lá…Lesa meira

true

CrossFit Ægir tekur CrossFit úr nafninu sínu

CrossFit Ægir á Akranesi hefur tekið þá ákvörðun að hætta að borga fyrir nafnið CrossFit og verða frá og með deginum í dag undir nafninu ÆGIR – þeir fiska sem róa. Þetta segir í tilkynningu frá stöðinni. Taka forsvarsmenn Ægis upp eftir öðrum innan CrossFit hreyfingarinnar á heimsvísu að sýna samstöðu gegn kynþáttaníð. Heimsklassa íþróttafólk…Lesa meira

true

Truflanir á farsímasambandi vegna örbylgjuloftneta

Á undanförnum vikum og misserum hefur í vaxandi mæli orðið vart við truflanir á farsímasambandi á höfuðborgarsvæðinu og víðar sem tengist bilun í örbylgjuloftnetum. Loftnetin voru notuð til að dreifa Fjölvarpinu fram til 2017 þegar þeim útsendingum var hætt. Á það meðal annars við um Akranes. Örbylgjuloftnetin eru enn víða á húsum og ef þau…Lesa meira

true

Kynna markaðsstefnumótun fyrir Borgarbyggð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur boðað til íbúafundar í mennta- og menningarhúsinu Hjálmakletti fimmtudaginn 25. júní nk. kl 20:00. Á fundinum mun markaðsstofan Manhattan kynna markaðsstefnumótun fyrir Borgarbyggð. „Streymt verður beint frá fundinum og verður útsendingin aðgengileg á Facebook síðu Borgarbyggðar,“ segir í tilkynningu frá sveitarstjórn.Lesa meira