Fréttir

true

Skagakonur völtuðu yfir ÍR

ÍA vann stórsigur á ÍR, 0-7, þegar liðin mættust í annarri umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík á laugardaginn. Eins og markatalan ber með sér voru yfirburðir Skagakvenna algerir í leiknum. Þær komust yfir strax á 4. mínútu þegar Jaclyn Poucel skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Erla Karitas Jóhannesdóttir bætti öðru marki…Lesa meira

true

Bókakaffið opnar útibú í Reykjavík

„Þriðjudaginn 16. júní klukkan 13 opnum við bókamarkað í Ármúla 42 í Reykjavík. Þúsundir titla verða þar á einum stað. Bækurnar koma frá fornbókabúðinni okkar og forlaginu Sæmundi en einnig frá helstu forlögum sunnan heiða. Heitt á könnunni og notaleg bókastemmning,“ segir í tilkynningu frá Bjarna Harðarsyni bókaútgefanda og fornbókasala á Selfossi. „Klukkan 16 þennan…Lesa meira

true

Ætlað að auðvelda tekjulágum að eignast fyrstu íbúð

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um hlutdeildarlán. Þeim er ætlað að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast sýna fyrstu íbúð. Hugmyndin er að lánin muni brúa bilið milli kaupverðs íbúða og lána sem fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóðir veita. Úrræðið var kynnt á fundi hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á…Lesa meira

true

Rýmri fjöldatakmarkanir frá deginum í dag

Í dag, mánudaginn 15. júní, taka frekari tilslakanir á samkomubanni vegna Covid-19 gildi. Meginbreytingin felst í því að fjöldamörk á samkomum hækka úr 200 í 500 manns. Núgildandi takmarkanir á gestafjölda sundlauga og líkamsræktarstöðva, sem miðast við 75% af leyfilegum hámarksfjölda, falla jafnframt niður. Aðrar breytingar verða ekki.Lesa meira

true

Svava Björk útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn

Föstudaginn 29. maí útskrifaðist Svava Björk Pétursdóttir af náttúrufræðibraut við Menntaskóla Borgarfjarðar með 9,41 í lokaeinkunn, sem var hæsta einkunn þeirra sem voru að útskrifast. Svava Björk ákvað að skrá sig á náttúrufræðibraut því hún stefnir á framhaldsnám í einhverju tengdu líffræði. „Svo var náttúrufræðibraut bara sú braut sem var næst mínu áhugasviði og því…Lesa meira

true

Dúx Fjölbrautaskóla Snæfellinga stefnir á nám í tónlist

Sara Rós Hulda Róbertsdóttir útskrifaðist af náttúru- og raunvísindabraut frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga 29. maí síðastliðinn. Sara Rós fékk 9,8 í meðaleinkunn og var því dúx skólans á vorönn. En hvernig nær maður svona góðum árangri í námi? „Ætli það sé ekki bara með því að hlusta á kennarana í tímum, vera vel skipulagður og gera…Lesa meira

true

Dúx Fjölbrautaskóla Vesturlands stefnir á meira nám

Jóhanna Ingisól Sævarsdóttir útskrifaðist föstudaginn 29. maí af félagsfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi sem dúx skólans á vorönn, með 9,5 í meðaleinkunn. Aðspurð segir Jóhanna lykilinn að velgengni sinni í námi líklega vera hversu gaman hún hefur af námsefninu. „Ég er heppin með að hafa alltaf átt auðvelt með nám og ég hef alltaf…Lesa meira

true

Skólaslitin voru í kirkjunni

Skólaslit grunnskóla Grundarfjarðar voru með óhefðbundnu sniði þetta vorið enda margir með hugann við Covid 19 faraldurinn. Nemendur frá fyrsta bekk upp í sjöunda bekk útskrifuðust í sínum skólastofum án foreldra en nemendur í áttunda, níunda og tíundabekk útskrifuðust í Grundarfjarðarkirkju með sínum nánustu ættingjum. Tíundi bekkur sem var að kveðja skólann gaf skólanum ansi…Lesa meira

true

Óvíst hvenær gróður nær sér

Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands hafa metið gróðurskemmdir í Norðurárdal í Borgarfirði eftir elda sem loguðu þar 18. maí í vor. Svæðið sem brann var 13,2 ha að flatarmáli, einkum birkiskógur en einnig mosi og víðir. Óljóst er hversu lengi svæðið verður að jafna sig, segir í tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun. „Skógurinn var illa útleikinn eftir brunann og…Lesa meira

true

Ólafur Skagfjörð afhentur eftir endursmíði

Á miðvikudaginn í síðustu var áttæringurinn Ólafur Skagfjörð afhentur Hjálmari Kristjánssyni, útgerðarmanni í Rifi. Það var Hafliði Aðalsteinsson, skipasmíðameistari og formaður Bátasafns Breiðafjarðar, sem afhenti bátinn, en Hjálmar kostaði endurgerð hans. Við það tilefni var Ólafur sjósettur og róið um höfnina í Rifi. Ólafur Skagfjörð var smíðaður 1885 í Bjarneyjum á Breiðafirði. Hvergi eru skráðar…Lesa meira