Fréttir

true

Skólaslitin voru í kirkjunni

Skólaslit grunnskóla Grundarfjarðar voru með óhefðbundnu sniði þetta vorið enda margir með hugann við Covid 19 faraldurinn. Nemendur frá fyrsta bekk upp í sjöunda bekk útskrifuðust í sínum skólastofum án foreldra en nemendur í áttunda, níunda og tíundabekk útskrifuðust í Grundarfjarðarkirkju með sínum nánustu ættingjum. Tíundi bekkur sem var að kveðja skólann gaf skólanum ansi…Lesa meira

true

Óvíst hvenær gróður nær sér

Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands hafa metið gróðurskemmdir í Norðurárdal í Borgarfirði eftir elda sem loguðu þar 18. maí í vor. Svæðið sem brann var 13,2 ha að flatarmáli, einkum birkiskógur en einnig mosi og víðir. Óljóst er hversu lengi svæðið verður að jafna sig, segir í tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun. „Skógurinn var illa útleikinn eftir brunann og…Lesa meira

true

Ólafur Skagfjörð afhentur eftir endursmíði

Á miðvikudaginn í síðustu var áttæringurinn Ólafur Skagfjörð afhentur Hjálmari Kristjánssyni, útgerðarmanni í Rifi. Það var Hafliði Aðalsteinsson, skipasmíðameistari og formaður Bátasafns Breiðafjarðar, sem afhenti bátinn, en Hjálmar kostaði endurgerð hans. Við það tilefni var Ólafur sjósettur og róið um höfnina í Rifi. Ólafur Skagfjörð var smíðaður 1885 í Bjarneyjum á Breiðafirði. Hvergi eru skráðar…Lesa meira

true

Rekstarniðurstaða Reykhólahrepps neikvæð

Ársreikningur Reykhólahrepps fyrir árið 2019 var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar 9. júní síðastliðinn. Rekstartekjur A og B hluta námu 578,1 milljón króna árið 2019, þar af námu rekstartekjur A hluta 423,2 milljónir. Rekstarniðurstaða samstæðu A og B hluta var neikvæður um 52,2 milljónir króna, en niðurstaða A hluta var neikvæð um 53,2…Lesa meira

true

Jákvæð rekstarniðurstaða í Stykkishólmi

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2019 var tekinn til síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar 4. júní síðastliðinn. Rekstrarniðurstaða ársins fyrir samstæðu A og B hluta var jákvæð um 80,5 milljónir króna á síðasta ári sem er nokkuð betri niðurstaða en búist var við, en gert hafði verið ráð fyrir 41 milljón króna í rekstrarafgang fyrir árið.…Lesa meira

true

„Ég fæ mest út úr því að skapa“ segir Grundfirðingurinn Örn Ingi

Tónlistarmaðurinn Örn Ingi Unnsteinsson sendi nýverið frá sér plötuna Anthropocene, sem kom út nú í byrjun mánaðarins. Örn er Grundfirðingur, búsettur í Kaupmannahöfn en nam tónlist við Tónlistar- og dansháskólann í Köln í Þýskalandi. „Þetta er fyrsta platan þar sem ég er hljómsveitarstjóri, ef svo má segja, þar sem ég samdi meirihlutann af efninu, eða…Lesa meira

true

Góð byrjun í laxveiðinni

Laxveiðisumarið hófst fimmtudaginn 4. júní. Að venju er byrjað að veiða í Norðurá í Borgarfirði þar sem hjónunum Helga Björnssyni söngvara og Vilborgu Halldórsdóttur var boðið að bleyta í fyrstu flugunni. Vilborg landaði svo fyrsta laxi sumarsins skömmu síðar. Daginn eftir hófst svo veiði í Þverá og næstu daga bætast árnar svo við hver af…Lesa meira

true

Stilling og Liqui Moly gefa 25 milljónir til bílaleiga á Íslandi

Stilling hf í samstarfi við þýska olíu- og bætiefnaframleiðandann Liqui Moly hafa ákveðið að styðja við íslenskar bílaleigur sem leggja þurfa stórum bílaflota sínum í sumar í kjölfar COVID-19. Allar bílaleigur, rútufyrirtæki og aðrir flotaeigendur, fá bætiefni frá Liqui Moly sem drepur bakteríur í dísilolíu og kemur í veg fyrir myndun þeirra, ásamt að verja…Lesa meira

true

Listahátíðin Plan B búin að festa sig í sessi

Listahátíðin Plan B verður haldin fimmta árið í röð í Borgarnesi dagana 6. til 9. ágúst. Hátíðin hefur vaxið mikið síðustu ár og er orðin þekkt meðal listamanna um allan heim. Alls bárust 180 umsóknir frá listamönnum sem langar að sýna verk sín á hátíðinni. En hátíðin byggir á samsýningu á verkum margra listamanna. „Þetta…Lesa meira

true

Slökkviliðsmenn feta menntaveginn

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar stóð fyrir seinni hluta námskeiðs II á vegum Brunamálaskólans helgina 5. til 7. júní sl. en fyrri hlutinn var haldin í maí. Námskeiðið er hluta af námi slökkviliðsmanna til að öðlast löggildingu í faginu. Alls voru tíu slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar og þrír slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Snæfellsbæjar sem tóku…Lesa meira