Fréttir

true

Bikarinn að byrja

Um helgina verður keppt í Mjólkurbikarnum í knattspyrnu. Bikarkeppni karla hefst í dag, föstudaginn 5. júní og munu tvö Vesturlandslið keppa um helgina. Snæfellingar mæta Selfyssingum á útivelli í kvöld og á morgun taka Skallagrímsmenn á móti Ými í Borgarnesi. Á sunnudaginn, 7. júní, hefst keppni í Mjólkurbikar kvenna. Þá fara Skagakonur til Hveragerðis og…Lesa meira

true

„Framtíð smábátaútgerðar byggir á þremur megin stoðum“

Johannes Simonsen er hálfsextugur Færeyingur sem í áratugi hefur verið búsettur á Akranesi. Hann er fæddur í Þórshöfn í Færeyjum 1965 og ólst þar upp. Johannes segir að uppeldið hafi einkennst af frjálsræði og sterkri tengingu við náttúru eyjanna, ekki ósvipað og hjá strákum á hans aldri sem á sama tíma voru að alast upp…Lesa meira

true

Boðað til hönnunarsamkeppni um útsýnisstað í Súgandisey

Eins og áður hefur verið greint frá er fyrirhugað að útbúa útsýnisstað í Súgandisey. Stykkishólmsbær hefur, í samstarfi við Félags íslenskra landslagsarkitekta, auglýst eftir þátttakendum í forval vegna samkeppni um hönnun staðarins. „Súgandisey er eftirsóknarverður staður fyrir heimamenn og gesti bæjarins til göngu- og náttúruuplifunar. Meðal annars er eyjan rík af fuglalífi og einstöku útsýni…Lesa meira

true

Hafnarstjórinn sem hefði getað orðið prestur

„Ég var alltaf ákveðinn í því að fara í Stýrimannaskólann, allt frá bernsku, og fermingarárið byrjaði ég á sjónum. Ég var reyndar mun yngri þegar ég fór fyrst á sjó með afa mínum þar sem hann var á rauðmaganetum, bara átta, níu ára og bundinn við mastrið. En sem atvinnu hafði ég sjómennskuna frá 14.…Lesa meira

true

„Ekki unnið launaða vinnu í landi síðan 1961“

– segir Jónas Sigurðsson, skipstjóri í Stykkishólmi Jónas Sigurðsson, fyrrverandi skipstjóri, er fæddur á því herrans ári 1944, á Kóngsbakka í Helgafellssveit en fluttist tveggja ára gamall í Stykkishólm. Hann var lengi til sjós og fer enn túr og túr í afleysingum þegar kallið kemur. Skessuhorn hitti Jónas að máli á heimili hans í Hólminum…Lesa meira

true

Garðar Gunnlaugs í Kára

Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson hefur skrifað undir samning við Kára. Hann lagði skóna á hilluna síðasta haust, en hefur nú ákveðið að taka þá fram að nýju og leika með Káramönnum í 2. deildinni í sumar. Garðar þarf vart að kynna fyrir knattspyrnuáhugamönnum. Hann hóf meistaraflokksferilinn með ÍA árið 2001 og varð Íslandsmeistari með liðinu sama…Lesa meira

true

Startmót Borgfirðings og Dreyra á sunnudaginn

Startmót Borgfirðings og Dreyra verður haldið á félagssvæði Borgfirðings verður haldið á félagssvæði Borgfirðings við Vindás sunnudaginn 7. júní næstkomandi. Mótið hefst kl. 12:00 og keppt verður í eftirfarandi flokkum og greinum: Teymdir pollar og pollar, barnaflokkur T7, unglingaflokkur T3, ungmennaflokkur T3, 2. flokkur T7, 1. flokkur T3, opinn flokkur T1, 100 metra skeið og…Lesa meira

true

Helgi Björns og Vilborg opnuðu Norðurá í morgun

Veiði hófst í Norðurá í morgun og að þessu sinni voru það hjónin Helgi Björnsson og Vilborg Halldórsdóttir sem opnuðu ána að þessu sinni. „Það eru allavega komnir átta laxar á land í morgun og Helgi Björnsson var að landa rétt áðan, hann hafði misst tvo áður,“ segir Einar Sigfússon í veiðihúsinu við Norður á…Lesa meira

true

Breytingar á aðalskipulagi kynntar

Haldnir voru tveir kynningarfundir í Dalabúð í Búðardal í gær vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi í Dalabyggð. Báðir fundirnir fjölluðu um breytingar á aðalskipulagi vegna skilgreiningar á iðnaðarsvæði á landi í gamla Laxárdalshreppi. Annars vegar í landi Sólheima og hins vegar í landi Hróðnýjarstaða.  Þar er sem kunnugt er fyrirhugað að reisa vindorkugarða. Það var…Lesa meira

true

Hátíðarhöld á Vesturlandi á sjómannadaginn

Venju samkvæmt er sjómannadagurinn fyrsta sunnudag júnímánaðar, sem að þessu sinni ber upp á 7. júní. Víðast hvar í sjávarbyggðum hefur verið hefð að halda upp á daginn með pompi og prakt. Fyrir sakir þeirra fordæmalausu tíma sem við lifum nú er hins vegar fyrirséð að hátíðarhöld í tilefni sjómannadags verði með öðrum hætti en…Lesa meira