Fréttir

true

Helgi Björns og Vilborg opnuðu Norðurá í morgun

Veiði hófst í Norðurá í morgun og að þessu sinni voru það hjónin Helgi Björnsson og Vilborg Halldórsdóttir sem opnuðu ána að þessu sinni. „Það eru allavega komnir átta laxar á land í morgun og Helgi Björnsson var að landa rétt áðan, hann hafði misst tvo áður,“ segir Einar Sigfússon í veiðihúsinu við Norður á…Lesa meira

true

Breytingar á aðalskipulagi kynntar

Haldnir voru tveir kynningarfundir í Dalabúð í Búðardal í gær vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi í Dalabyggð. Báðir fundirnir fjölluðu um breytingar á aðalskipulagi vegna skilgreiningar á iðnaðarsvæði á landi í gamla Laxárdalshreppi. Annars vegar í landi Sólheima og hins vegar í landi Hróðnýjarstaða.  Þar er sem kunnugt er fyrirhugað að reisa vindorkugarða. Það var…Lesa meira

true

Hátíðarhöld á Vesturlandi á sjómannadaginn

Venju samkvæmt er sjómannadagurinn fyrsta sunnudag júnímánaðar, sem að þessu sinni ber upp á 7. júní. Víðast hvar í sjávarbyggðum hefur verið hefð að halda upp á daginn með pompi og prakt. Fyrir sakir þeirra fordæmalausu tíma sem við lifum nú er hins vegar fyrirséð að hátíðarhöld í tilefni sjómannadags verði með öðrum hætti en…Lesa meira

true

Þrátt fyrir óhapp á sjó leitaði hugurinn sífellt þangað

Ágúst Jónsson á bátinn Jón Beck SH-289 og gerir út á strandveiðum frá Grundarfirði. Gústi Jóns, eins og hann er iðulega kallaður, er rafvirki að mennt og er það hans aðalstarf. Hann byrjaði ungur á sjó, var aðeins 18 ára þegar hann hóf sjómannsferilinn. „Ég fór fyrst á sjóinn árið 1978 er ég réði mig…Lesa meira

true

„Að vera á sjó var eins og hver önnur vinna“

Borgnesingurinn Þorbergur Lind Egilsson, eða Beggi eins og hann er oftast kallaður, varði stærsta hluta af sinni starfsævi á ferðinni, bæði á þjóðvegum landsins og á miðunum. Hann hóf ungur störf á Akraborginni sem sigldi milli Borgarness og Reykjavíkur og svo seinna milli Akraness og Reykjavíkur. Lengst af starfaði hann þó hjá Hafskipum og sigldi…Lesa meira

true

Lions styrkti Ólafsvíkurkirkju til lyftukaupa

Lionsklúbbur Ólafsvíkur afhenti nýlega sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju þrjú hundruð þúsund króna styrk í söfnun fyrir lyftu til að bæta aðgengi inn í kirkjuna. Tröppurnar inn í kirkjuna eru háar og erfiður farartálmi fyrir marga sem treysta sér þess vegna ekki til að fara í kirkju. Safnast hafa tæplega fjórtán hundruð þúsund krónur, en kostnaður vegna lyftunnar…Lesa meira

true

„Sjómennskan á við mig, það er bara svoleiðis“

„Ég fylgdist alltaf með bátunum fyrir framan Malarrif þegar ég var lítill strákur, vertíðarbátum á veturna og snurvoðarbátum á sumrin. Mér fannst þetta eitthvað heillandi, að sjá bátana í bongóblíðu, alveg uppi í fjöru að mokveiða fisk. Þetta var spennandi og líf í kringum þetta allt saman,“ segir hann. „Þegar maður byrjaði síðan sjálfur á…Lesa meira

true

Kanna möguleika á nýsköpunarsetri í Dölum

Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram að koma á fót nýsköpunar- og frumkvöðlasetri í Dalabyggð. Málið var til umræðu á fundi byggðarráðs 28. maí síðastliðinn og var sveitarstjóra falið að vinna áfram að því. Í stuttu máli felst stofnun slíks seturs í því að útbúa aðstöðu fyrir hugmyndaríkt fólk, þar sem það gæti sinnt verkefnum…Lesa meira

true

Snæfellingur hélt fyrsta hestamannamótið eftir Covid

Fyrsta hestamót sumarsins á Vesturlandi, eftir lokanir vegna Covid-19, var haldið um liðna helgi í Grundarfirði. Var það hestamannafélagið Snæfellingur sem hélt mótið en það var opið öllum. Þátttaka á mótinu var góð og voru margir frábærir hestar sem sáust í brautinni þennan dag. Helstu úrslit voru þessi:   Barnaflokkur – fjórgangur Helena Rán Gunnarsdóttir…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fækkaði um tvo á hálfu ári

Þjóðskrá hefur nú birt íbúafjölda í sveitarfélögum landsins 1. júní 2020. Ef íbúafjöldi nú er borinn saman við fjölda 1. desember síðastliðinn kemur í ljós að íbúum á Vesturlandi hefur fækkað um tvo á þessu sex mánaða tímabili, eru nú 16.666 talsins. Íbúum hefur fjölgað á Akranesi (7), Hvalfjarðarsveit (5), Grundarfirði (1), Eyja- og Miklaholtshreppi…Lesa meira