Fréttir

true

Fjörutíu ára fermingarafmæli

Þann 18. maí árið 1980 voru þessir fjórir piltar á myndunum fermdir í Innra-Hólmskirkju í Innri-Akraneshreppi. Réttum fjörutíu árum síðar var ákveðið að endurtaka myndatökuna og stillt upp líkt og forðum. Að vísu er sóknarpresturinn, séra Jón Einarsson í Saurbæ, fallinn frá fyrir 25 árum, en var vafalítið með þeim í anda þegar síðari myndin…Lesa meira

true

Efla hlýtur umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra veitti í dag verkfræðistofunni Eflu Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu ráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Eflu kemur fram að verkfræðistofan hafi frá upphafi leitast við að vera leiðandi í umhverfismálum, hvort sem er í eigin rekstri eða í framboði á umhverfisvænum lausnum.…Lesa meira

true

Sýndi börnum í Borgarnesi framandi fiska, krabba og skeljar

Nemendur í Grunnskólanum í Borgarnesi fengu skemmtilega heimsókn frá Einari Árna Pálssyni í dag, en hann starfar stóran hluta á árinu á frystitogara, mánuð í senn. Einar kom með fjölbreytt úrval af djúpsjávarfiskum fyrir krakkana að skoða og virða fyrir sér. Þarna voru krossfiskar, rottufiskur, sæköngulær og lúsífer ásamt fleiri fiskum sem koma í veiðarfæri…Lesa meira

true

Hreinsuðu umhverfi Hyrnutorgs í Borgarnesi

Starfsmenn í Hyrnutorgi í Borgarnesi tóku sig saman í gærkvöldi eftir lokun verslana og hreinsuðu umhverfi verslanamiðstöðvarinnar. Alls voru 17 vaskir starfsmenn sem íbúar þekkja best bakvið búðarborðið t.d. í apótekinu, tískuverslunum eða Nettó sem fegruðu nærumhverfi Hyrnutorgs. Það var tínt rusl, gróður var fjarlægður og stéttar og bílastæði sópuð. Starfsfólkið tók þetta upp að…Lesa meira

true

Rætt um menntunarþörf fyrir störf framtíðarinnar

Menntaskóli Borgarfjarðar, með stuðningi frá Sóknaráætlun Vesturlands, hélt í gærmorgun stafræna ráðstefnu með yfirskriftinni Menntun fyrir störf framtíðarinnar. Tilgangur ráðstefnunnar var að undirbúa skóla, fyrirtæki, nemendur og atvinnumarkaðinn fyrir þær breytingar sem eiga sér stað í samfélaginu samhliða tækniþróun sem er að eiga sér stað. „Menntaskóli Borgarfjarðar hefur frá upphafi viljað fara ótroðnar slóðir og…Lesa meira

true

ASÍ sendir frá sér yfirlýsingu vegna frétta um Icelandair

Alþýðusamband Íslands mótmælir í yfirlýsingu harðlega því sem lýst er í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag sem hugsanlegum viðbrögðum Icelandair í kjaradeilu félagsins við Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ). Í báðum tilvikum er vísað til heimilda innan Icelandair. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins skoðar Icelandair möguleika á að stofna nýtt stéttarfélag flugfreyja og samkvæmt Fréttablaðinu hyggst Icelandair láta reyna…Lesa meira

true

Bláfáninn blaktir við Langasand

Nú í morgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og starndsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er þannig tákn um…Lesa meira

true

Brauð laust í Borgarfirði

Töluverðar mannabreytingar eru nú framundan í stétt presta í Borgarfirði. Biskup Íslands auglýsti nýverið laust til umsóknar embætti sóknarprests í Stafholtsprestakalli. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir var fyrir réttu ári ráðin sóknarprestur Stafholtsprestakalls tímabundið til eins árs. Umsóknarfrestur um starfið er til og með 2. júní næstkomandi. En það er víðar en í Stafholti sem breytingar…Lesa meira

true

Byrjað er að sekta fyrir nagladekk

Eins og kunnugt er mega bílar ekki vera búnir nagnadekkjum í umferðinni frá 14. apríl til 1. nóvember ár hvert. Þó hefur lögregla horft í gegnum fingur sér með notkun þeirra á vorin, einkum á landsbyggðinni þar sem allrar færðar er von eftir miðjan apríl. Nú hefur Lögreglan á Vesturlandi gefið það út að frá…Lesa meira

true

Stigamótaröð GSÍ hefst á Garðavelli um helgina – bestu kylfingar landsins væntanlegir

Fyrsta mótið á stigamótaröð Golfsambands Íslands þetta sumarið verður leikið á Garðavelli á Akranesi dagana 22.-24. maí næstkomandi. Keppt verður í höggleik flokki karla og kvenna, 18 holur leiknar hvern dag en niðurskurður eftir annan hring. Það er Golfklúbburinn Leynir sem er mótshaldari. Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri klúbbsins, á von á sterku móti um helgina. „Allir…Lesa meira