Fréttir

true

Skakkur við Borg á Mýrum

Ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Snæfellsnesvegi við Borg á Mýrum seint á laugardagskvöld, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn viðurkenndi neyslu og veitti sýni, sem gaf jákvæða svörun við neyslu kannabisefna. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann heimilaði leit í bíl og þar fundust pokar með ætluðum kannabisefnum.Lesa meira

true

„Það ætla allir að hjóla í sumar“

Axel Gústafsson situr ekki auðum höndum þessa dagana en langt er síðan svo mikið hefur verið að gera í búðinni hjá honum, Axelsbúð á Akranesi. Axelsbúð er með reiðhjól, hjólavörur og ýmsar veiðivörur auk þess sem Axel gerir við reiðhjól. „Það er mikið meira að gera núna en síðustu ár,“ segir Axel þegar blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Mynduðu hjarta við Fellaskjól

Nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar, Eldhömrum og leikskólanum Sólvöllum tóku sig til og mynduðu hjarta fyrir utan Dvalarheimilið Fellaskjól í síðustu viku. Nú þegar samkomubanni hefur verið aflétt og skólahald komist í réttar skorður þá var nemendum hugsað til heimilismanna á dvalarheimilinu sem enn þurfa að vera svolítið einangruð. Því vildu krakkarnir mynda þennan gjörning til…Lesa meira

true

Frjáls eins og fuglinn í nýrri útgafu

„Frjáls eins og fuglinn“ er mynda- og minningabók Mats Wibe Lund ljósmyndara. Bókin er nú komin út í nýrri útgáfu þar sem Mats hefur bætt við fjölda mynda og sett inn nafnaskrá sem vantaði í frúmútgáfu bókarinnar. Mats Wibe Lund er þekktur fyrir átthagamyndir sínar sem skreyta heimili, fyrirtæki og stofnanir um land allt. Myndirnar…Lesa meira

true

Slökkviliðið kallað að járnblendinu

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað að járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga á fjórða tímanum í dag. Enginn opinn eldur kviknaði en reykur braust út. „Það var enginn eldur en það myndaðist ákveðið hættuástand. Við erum búnir að tryggja það og ástandið er stöðugt,“ segir Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri í samtali við Skessuhorn. „Skaut brotnaði á…Lesa meira

true

Stefnt að opnun Krambúðar í Búðardal á morgun

Þessa dagana standa yfir breytingar á versluninni í Búðardal og stefnt er að því að opna þar Krambúð á morgun, föstudaginn 15. maí. Frá því í október 2017 hafa Samkaup rekið verslun í Búðardal undir merkjum Kjörbúðarinnar, en áður var rekin þar verslun Samkaup Strax. „Nú horfum við fram á mikla óvissu og aljörlega óvíst…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður ætlar að verða Barnvænt sveitarfélag

Akraneskaupstaður bættist í dag í ört stækkandi hóp sveitarfélaga hér á landi sem hefja nú vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu sína. Það er gert með stuðningi félagsmálaráðuneytisins og UNICEF á Íslandi. Það voru Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar,…Lesa meira

true

Snæfell í þjálfaraleit

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur auglýst eftir þjálfara fyrir meistaraflokka félagsins. Kvennalið Snæfells lék sem kunnugt er í Domino‘s deild kvenna síðasta vetur en karlarnir í 1. deildinni. Leitað er að einstaklingi með reynslu og menntun í körfuknattleiksþjálfun til að stýra meistaraflokksliðunum og eiga samstarf við yngri flokka félagsins. Þjálfaramál Snæfells hafa verið nokkuð í deiglunni undanfarið…Lesa meira

true

Ráðstefna um menntun fyrir störf framtíðarinnar

Menntaskóli Borgarfjarðar, með stuðningi Sóknaráætlunar Vesturlands, heldur þriðjudaginn 19. maí stafræna ráðstefnu undir yfirskriftinni  „Menntun fyrir störf framtíðarinnar.“ Ráðstefnan hefst klukkan 9 og lýkur á hádegi. „Hvernig ætlum við að undirbúa nemendur, skólakerfið og fyrirtækin fyrir hraðar breytingar næstu ára og hefur COVID-19 flýtt þessum breytingum,“ er rannsóknarspurning ráðstefnunnar. Þar mun áhugaverður hópur fyrirlesara ræða…Lesa meira

true

Vilja skoða að Höfða verði breytt í sjálfseignarstofnun

Við afgreiðslu ársreiknings Akraneskaupstaðar 12. maí sl. fyrir árið 2019 lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, sem skipa minnihluta í bæjarstjórn, fram bókun vegna rekstrar og afkomu bæjarsjóðs. Í henni færðu þeir meðal annars í tal þá þröngu stöðu sem hjúkrunar- og dvalarheimili víðsvegar um landið eru í. Víðast duga tekjur ekki til að standa undir lögbundinnar starfsemi.…Lesa meira