Fréttir

true

Sjávarútvegsráðherra hitti breiðfirska grásleppusjómenn

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsáðherra boðaði grásleppuveiðimenn á fund í gær í Stykkishólmi. Tilefnið var að fara yfir stöðuna sem upp er komin vegna grásleppuveiða við Breiðafjörð. Eins og kunnugt er stöðvaði ráðherra allar grásleppuveiðar við landið 3. maí síðastliðinn vegna mikillar veiði norðan við landið. Heimilt verður eftir 20. maí að veiða í fimmtán daga…Lesa meira

true

Stefnt að fjórðungs aukningu innlendrar garðyrkju

Fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Sambands garðyrkjubænda og stjórnvalda skrifuðu í morgun undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, sem er einn hinna fjögurra búvörusamninga. Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að framþróun og nýsköpun í garðyrkjunni með áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum. Við næstu endurskoðun samningsins árið 2023 er markmiðið að framleiðsla…Lesa meira

true

Sláttuvél brann við Bálhól

Lögregla var kölluð að Bálhóli við Hellnaveg vegna elds í gróðri á laugardaginn. Verið var að slá á Bálhóli. Sláttumaður taldi sig heyra að neistaði undan sláttuvél eftir að hann hafði stöðvað vélina. Þá gaus upp eldur og breiddist út í þurru grasi. Lögregla fór á vettvang og aðstoðaði við slökkvistarf. Tókst að halda eldinum…Lesa meira

true

Aukið fé til framkvæmda til að bregðast við áhrifum Covid

Í byrjun apríl síðastliðnum kynnti Akraneskaupstaður viðspyrnu sveitarfélagins vegna kóvidveirunnar. Ein af aðgerðum bæjarfélagsins var að auka fjárveitingar til viðhalds og framkvæmda á þessu ári. Við fjárhagsáætlunargerð fyrir yfirstandandi ár samþykkti bæjarstjórn að heildarfjárfestingar yrðu 1.506 milljónir króna. Nú hefur bæjarstjórn samþykkt flýtiframkvæmdir því til viðbótar að upphæð 321 milljónir kr. Skiptist sú upphæð þannig…Lesa meira

true

Landshlutasamtök fá aukafjárveitingu í ferðaþjónustu

Sóknaráætlanir landshlutasamtaka fá 200 milljóna króna sértæka fjárveitingu úr ríkissjóði sem er liður í fjárfestingarátaki stjórnvaldi til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru og styðja við verkefni á landsbyggðinni. Viðbótarfjárveitingin mun renna til sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga á landsbyggðinni. 150 milljónir kr. skiptast jafnt á milli landshlutanna og 50 m.kr. dreifast á…Lesa meira

true

Sex frambjóðendur safna meðmælendum fyrir forsetakosningar

Fyrir forsetakosningarnar 27. júní næstkomandi er í boði fyrir frambjóðendur að safna tilskyldum fjölda meðmælenda rafrænt í gegnum vef Þjóðskrár. Slíkt fyrirkomulag hefur ekki verið í boði áður. Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosningabærra manna, en mest 3000, er skiptist mismundandi eftir landsfjórðungum. Í dag hafa sex karlmenn gefið kost á sér til embættis…Lesa meira

true

Sameina tvö fyrirtæki í Útfararþjónustu Borgarfjarðar og Stranda

Síðastliðinn þriðjudag var skrifað undir kaup Stranda útfararþjónustu á Útfararþjónustu Borgarfjarðar sem hjónin Hreggviður Hreggviðsson og María Jóna Einarsdóttir hafa um árabil rekið í Borgarnesi. Viðar Guðmundsson á Miðhúsum á Ströndum hefur ásamt Ingibjörgu Sigurðardóttur á Hólmavík rekið Strandir útfararþjónustu á Hólmavík frá árinu 2016. Viðar segir í samtali við Skessuhorn að þau hafi á…Lesa meira

true

Kynntu nýja inniaðstöðu klúbbsins

Opið hús var í nýrri inniaðstöðu Golfklúbbsins Jökuls í Snæfellsbæ á laugardagsmorgun. Golfklúbburinn fékk húsnæði í gamla frystihúsinu á Hellissandi sem félagsmenn hafa tekið í gegn í vor, útbúið púttvöll og sett upp golfhermi. Afraksturinn var síðan kynntur á opna húsinu síðastliðinn laugardag. „Aðstaðan er um 100 fermetrar að stærð, þar af 80 fermetra púttaðstaða,“…Lesa meira

true

Akstursbann á hálendinu enda víðast ófært

Á meðan frost er að fara úr jörðu eru hálendisvegir viðkvæmir og bera ekki umferð, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Akstursbann er þess vegna á mörgum hálendisvegum. Á meðfylgjandi mynd eru félagar í Björgunarsveitinni Ok í Borgarfirði að sækja bíl sem fastur var á Kaldadal fyrr í vikunni. Eins og sjá má er vegurinn ófær.Lesa meira

true

Bændur munu áfram marka lömbin þrátt fyrir frumvarp ráðherra

Í landinu eru 22 markaverðir starfandi, einn í hverri sýslu. Í hópi þeirra er Þórir Finnsson bóndi á Hóli í Norðurárdal, en hann hefur í tvo áratugi verið markavörður Mýrasýslu. Markaverðir eru tilnefndir af sveitarstjórnum og þiggja lítilsháttar umbun fyrir. Þeirra hlutverk er að halda utan um mörk bænda, gæta þess að ekki sé verið…Lesa meira