Fréttir

true

Umferð hefur dregist saman um 17,5% frá áramótum

Samdrátturinn í umferð á hingveginum umhverfis landið í apríl hefur slegið öll met. Umferðin í apríl drógst saman um nærri 35% sem í sögulegu samhengi er gríðarlega mikill samdráttur. Nú hefur umferðin dregist saman um nærri 18% á Hringveginum frá áramótum sem sömuleiðis er met. Mest hefur umferðin dregist saman á Mýrdalssandi eða um tæp…Lesa meira

true

Hafrannsóknastofnun hyggst ekki breyta veiðiráðgjöf sinni fyrir hrognkelsi

Bæði ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um veiðar á hrognkelsum og veiðistjórnun Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, hafa verið harðlega gagnrýnd undanfarna daga. Þess vegna telur Hafrannsóknastofnun ástæðu til að gera betur grein fyrir forsendum og annmörkum ráðgjafarinnar. „Ráðuneytið hefur svarað gagnrýni á stjórnun veiðanna á öðrum vettvangi,“ segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun. Í stuttu máli ítreka stjórnendur Hafrannsóknastofnunar að…Lesa meira

true

Átján vilja stýra Matvælastofnun

Kunngjört hefur verið hverjir sóttu um stöðu forstjóra Matvælastofnunar. Átján umsóknir bárust, en sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun skipa nefnd til að meta hæfni umsækjendanna. Jón Gíslason, núverandi forstjóri Matvælastofnunar, er ekki meðal umsækjenda, en hann hefur gegnt stöðunni um 15 ára skeið. Þeir sem sækjast eftir stöðu forstjóra MAST eru: Björgvin Jóhannesson markaðs- og fjármálastjóri,…Lesa meira

true

Samið við sex aðildarfélög BHM

Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og sex aðildarfélaga Bandalags háskólamanna undirrituðu á föstudag nýja kjarasamninga. Samningarnir eru í anda Lífskjarasamningsins sem þegar gildir á almennum vinnumarkaði. Félögin sem um ræðir eru Þroskaþjálfafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Dýralæknafélag Íslands og Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Kjaraviðræður aðila fóru alfarið fram á fjarfundum. Verði samningarnir samþykktir…Lesa meira

true

Átak í fjölgun sumarstarfa fyrir námsmenn

Félags- og barnamálaráðherra hefur ákveðið að verja 2,2 milljörðum króna í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar. Markmið átaksins er að til verði 3.400 sumarstörf fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, á milli anna sem skiptast á milli opinberra stofnana og sveitarfélaga. Um er að ræða 4,5 sinnum stærra átak en…Lesa meira

true

Hrun í útflutningsverðmæti

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 17,7 milljörðum króna í apríl samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar sem birtar voru í síðustu viku. Hefur verðmæti útfluttra sjávarafurða ekki verið minna í apríl á hlaupandi verðlagi frá árinu 2012, hvort sem talið er í krónum eða í erlendri mynt. Þetta er rúmlega 17% samdráttur í krónum talið miðað við apríl í fyrra,…Lesa meira

true

Hagstæðast fyrir vísitölufjölskylduna að ferðast um Vesturland

„Það kostar íslensku vísitölufjölskylduna frá höfuðborgarsvæðinu að lágmarki ríflega 300 þúsund krónur að verja viku úti á landi þar sem ódýrast er að gista og leika sér. Þessi sama vika getur líka kostað fjölskylduna rúmlega 750 þúsund krónur, eða hátt í þrefalt meira sé dýrari gistimöguleiki valinn. Að meðaltali kostar vikan minnst á Vesturlandi og…Lesa meira

true

Skimað fyrir Covid-19 í Grundarfirði

Íslensk erfðagreining bauð íbúum á Snæfellsnesi upp á skimun fyrir Covid-19 í síðustu viku. Í Grundarfirði var skimað föstudaginn 8. maí en einnig verður skimað þar á morgun, mánudaginn 11. maí. Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Grundarfirði sáu um sýnatökuna á bílaplaninu fyrir utan heilsugæslustöðina. Grundfirðingar létu ekki sitt eftir liggja og voru duglegir að mæta.Lesa meira

true

Varað við neyslu á kræklingi úr Hvalfirði

Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði. DSP þörungaeitur hefur nú greinst yfir viðmiðunarmörkum í honum. Fulltrúi Matvælastofnunar safnaði kræklingi 4. maí við Fossá í Hvalfirði. Tilgangurinn var að kanna hvort almenningi sé óhætt að tína krækling í Hvalfirði. Niðurstöður mælinga leiddu í ljós að DSP þörungaeitur var 260 µg/kg í kræklingum og er…Lesa meira

true

Breytt skipulag Norðurálsmótsins vegna Covid-19

Norðurálsmótið í knattspyrnu fyrir 7. flokk drengja verður haldið dagana 18.-21. júní næstkomandi á Akranesi. Sem kunnugt er hefur mótið fyrir löngu skipað sér sess sem einn af hápunktum sumarsins hjá yngstu iðkendunum, en það er opið öllum knattspyrnufélögum. Mótið sjálft verður haldið dagana 19.-21. júní en í ár verður bryddað upp á þeirri nýjung…Lesa meira