Fréttir

true

Mikil nýsköpun á sviði matvælavinnslu

Aldrei hafa jafn mörg ný fyrirtæki á sviði matvæla- og heilsuefnaframleiðslu litið dagsins ljós hérlendis eins og undanfarin ár. „Fjöldi nýsköpunarfyrirtækja á þessu sviði er vísbending um að mikil tækifæri eru til vaxtar fyrir íslenskt atvinnulíf um allt land í matvælaframleiðslu,“ segir í tilkynningu frá íslenska sjávarklasanum. Í nýútkominni skýrslu sem ber heitið „Lærum af…Lesa meira

true

Útskrifuð úr þjóðbúningasaumi

Föngulegur hópur útskrifaðist af námskeiði í þjóðbúningasaumi í Snæfellsbæ um liðna helgi helgi. Námskeiðið var haldið af Átthagastofu Snæfellsbæjar, að frumkvæði Margrétar Vigfúsdóttur, en námskeiðið naut styrks úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Níu nemendur stilltu sér upp til myndatöku að námskeiðinu loknu ásamt kennurum og að sjálfsögðu allir prúðbúnir í tilefni dagsins.Lesa meira

true

Atvinnuveganefnd vill endurmat Hafró á grásleppuráðgjöf

Með bréfi til sjávarútvegsráðherra í dag, 11. maí, beinir atvinnuveganefnd Alþingis, með Lilju Rafney Magnúsdóttur í forsvari, þeim tilmælum til ráðherra að hann beini tilmælum til Hafrannsóknastofnunar um hvort ástæða sé til endurmats á úthlutun hrognkelsaveiða vegna vertíðarinnar 2020 í ljósi gagna og upplýsinga sem nefndinni hafa borist. Vísað er til erinda sem atvinnuveganefnd hefur…Lesa meira

true

Ferðatakmarkanir næsta mánuðinn

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun leggja til við heilbrigðisráðherra að þær ferðatakmarkanir sem nú eru í gildi vegna Covid-19 faraldursins verði það áfram eftir 15. maí, líklega mánuði lengur en hugsanlega skemur. Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna í dag. Núverandi fyrirkomulag, sem gildir til 15. maí, kveður á um bann við komu ríkisborgara utan EES…Lesa meira

true

Snæfell í þjálfaraleit

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur auglýst eftir þjálfara fyrir meistaraflokka félagsins. Kvennalið Snæfells lék sem kunnugt er í Domino‘s deild kvenna síðasta vetur en karlarnir í 1. deildinni. Leitað er að einstaklingi með reynslu og menntun í körfuknattleiksþjálfun til að stýra meistaraflokksliðunum og eiga samstarf við yngri flokka félagsins. Þjálfaramál Snæfells hafa verið nokkuð í deiglunni undanfarið…Lesa meira

true

Káramenn þjálfaralausir

Jón Kristjánsson, sem ráðinn var í starf þjálfara Kára í 2. deild karla í knattspyrnu síðastliðið haust, lét af störfum í síðasta mánuði. Ástæða uppsagnar hans eru breyttar vinnuaðstæður vegna Covid-19 faraldursins, að því er fram kemur á Facebook-síðu Kára. Þar kemur einnig fram að unnið sé hörðum höndum að því að finna liðinu nýjan…Lesa meira

true

Sóttu bíl á Kaldadal

Í morgun var Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði kölluð út til aðstoðar fólki sem hafði fest bíl sinn á Kaldadalsvegi til móts við Syðra-Hádegisfell. Kaldadalsvegur er, líkt og aðrir hálendisvegir, ófær. Bíllinn var losaður og fólkinu síðan fylgt með aðstoð niður í Húsafell. Að sögn Okverja gekk leiðangurinn vel.Lesa meira

true

Vísa frá frekari leit að motorcrossbraut

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar 8. maí síðastliðinn var fjallað um staðsetningu á svæði fyrir motorcross braut í sveitarfélaginu. Í bókun nefndarinnar segir: „Til margra ára hefur verið unnið að því að finna staðsetningu fyrir motorcross braut á landi sveitarfélagsins. Nefndin telur ljóst að ekki sé til heppilegt svæði fyrir motorcross í landi sveitarfélagsins.…Lesa meira

true

Stefnt að endurheimt fyrrum farvegs Hítarár

Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar samþykkti á föstudaginn fyrir sitt leiti að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Tillagan nær til 24 hektara landsvæðis í Hítardal, nánar tiltekið á því svæði þar sem gríðarstórt berghlaup féll 7. júlí 2018. Tillagan tekur til framkvæmdar sem felst í því að móta árfarveginn í…Lesa meira

true

Spá hálfum milljarði verri afkomu vegna áhrifa Covid-19

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í liðinni viku var lögð fram aðgerðaáætlun bæjarfélagsins vegna Covid-19. Lögð var fram svokölluð næmnigreining bæjarstjóra vegna fjárhagslegra áhrifa sem veiran mun valda á fjárhag bæjarsjóðs. Samkvæmt næmnigreiningunni gæti útkoma þessa árs orðið rekstrartap upp á allt að 228 milljónir króna í stað áætlaðs rekstrarafgangs að fjárhæð 310 milljónir. Samanlagt er…Lesa meira