Fréttir

true

Átak í fjölgun sumarstarfa fyrir námsmenn

Félags- og barnamálaráðherra hefur ákveðið að verja 2,2 milljörðum króna í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar. Markmið átaksins er að til verði 3.400 sumarstörf fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, á milli anna sem skiptast á milli opinberra stofnana og sveitarfélaga. Um er að ræða 4,5 sinnum stærra átak en…Lesa meira

true

Hrun í útflutningsverðmæti

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 17,7 milljörðum króna í apríl samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar sem birtar voru í síðustu viku. Hefur verðmæti útfluttra sjávarafurða ekki verið minna í apríl á hlaupandi verðlagi frá árinu 2012, hvort sem talið er í krónum eða í erlendri mynt. Þetta er rúmlega 17% samdráttur í krónum talið miðað við apríl í fyrra,…Lesa meira

true

Hagstæðast fyrir vísitölufjölskylduna að ferðast um Vesturland

„Það kostar íslensku vísitölufjölskylduna frá höfuðborgarsvæðinu að lágmarki ríflega 300 þúsund krónur að verja viku úti á landi þar sem ódýrast er að gista og leika sér. Þessi sama vika getur líka kostað fjölskylduna rúmlega 750 þúsund krónur, eða hátt í þrefalt meira sé dýrari gistimöguleiki valinn. Að meðaltali kostar vikan minnst á Vesturlandi og…Lesa meira

true

Skimað fyrir Covid-19 í Grundarfirði

Íslensk erfðagreining bauð íbúum á Snæfellsnesi upp á skimun fyrir Covid-19 í síðustu viku. Í Grundarfirði var skimað föstudaginn 8. maí en einnig verður skimað þar á morgun, mánudaginn 11. maí. Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Grundarfirði sáu um sýnatökuna á bílaplaninu fyrir utan heilsugæslustöðina. Grundfirðingar létu ekki sitt eftir liggja og voru duglegir að mæta.Lesa meira

true

Varað við neyslu á kræklingi úr Hvalfirði

Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði. DSP þörungaeitur hefur nú greinst yfir viðmiðunarmörkum í honum. Fulltrúi Matvælastofnunar safnaði kræklingi 4. maí við Fossá í Hvalfirði. Tilgangurinn var að kanna hvort almenningi sé óhætt að tína krækling í Hvalfirði. Niðurstöður mælinga leiddu í ljós að DSP þörungaeitur var 260 µg/kg í kræklingum og er…Lesa meira

true

Breytt skipulag Norðurálsmótsins vegna Covid-19

Norðurálsmótið í knattspyrnu fyrir 7. flokk drengja verður haldið dagana 18.-21. júní næstkomandi á Akranesi. Sem kunnugt er hefur mótið fyrir löngu skipað sér sess sem einn af hápunktum sumarsins hjá yngstu iðkendunum, en það er opið öllum knattspyrnufélögum. Mótið sjálft verður haldið dagana 19.-21. júní en í ár verður bryddað upp á þeirri nýjung…Lesa meira

true

Fuglaskoðunardagur við Grunnafjörð á morgun

Á morgun, laugardaginn 9. maí, er Alþjóðlegi farfugladagurinn að vori. Af því tilefni verður boðið uppá fuglaskoðun í Grunnafirði í Hvalfjarðarsveit, sem er eitt af sex Ramsarsvæðum á Íslandi. Þeir sem ætla sér að njóta leiðsagnar í fuglaskoðuninni, koma sér sjálfir á staðinn. Komið er saman við veitingastaðinn Laxárbakka klukkan 9. Þaðan verður stefnan tekin…Lesa meira

true

Ferðaskrifstofa Íslands byrjuð að endurgreiða ferðir sem ekki voru farnar

Lögmannsstofan Málsvari fagnar því í tilkynningu til fjölmiðla, fyrir hönd skjólstæðinga sinna, að Ferðaskrifstofa Íslands, sem rekur m.a. Úrval Útsýn, Plúsferðir, Sumarferðir og Iceland Travel Bureau, hafi fallist á kröfur skjólstæðinga lögmannsstofunnar og hafið endurgreiðslu krafna þeirra fyrir pakkaferðir sem var aflýst. Í tilkynningu frá Málsvara segir að skjólstæðingar hafi lengi staðið í þrefi við…Lesa meira

true

FÍB leggst eindregið gegn einkafjármögnun vegaframkvæmda

„FÍB leggst eindregið gegn frumvarpi samgönguráðherra um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Með þessu frumvarpi er stefnt inn á varasama braut einkavæðingar í vegakerfinu með tilheyrandi innheimtu vegtolla og dýrari lausnum en vera þyrfti,“ segir í umsögn Félags íslenskra bifreiðaeigenda um frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra. Markmið frumvarpsins er sagt að auka fjármagn til vegaframkvæmda og flýta…Lesa meira

true

Skýrsla barnaþings afhent ráðherrum

Skýrsla barnaþings 2019 verður afhent ráðherrum fyrir utan ráðherrabústaðinn í dag föstudaginn 8. maí klukkan 11:30 að loknum ríkisstjórnarfundi. Salvör Nordal mun afhenda ráðherrum skýrsluna ásamt ungmennum úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna og börnum sem tóku þátt á barnaþingi. „Eitt helsta markmið fyrsta barnaþingsins sem haldið var í Hörpu dagana 21. – 22.nóvember 2019, var að…Lesa meira