
Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á síðasta ári og skilaði 325 milljóna króna afgangi. Er það töluvert betri niðurstaða en sá 53 milljóna króna afgangur sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun, eða sem nemur 272 milljónum króna. Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi í gær þar sem ársreikningur Snæfellsbæjar var samþykktur samhljóða eftir síðari umræðu.…Lesa meira








