Fréttir

true

Lögreglumenn hafa nú verið samningslausir í 14 mánuði

Afar mikið hefur mætt á lögreglumönnum á undanförnum vikum. Þeir hafa skipt liði þannig að vaktir eru aðskildar og hittast ekki, hvorki í né utan vinnu. Það er gert til að lágmarka hættu á smiti til að hægt sé áfram að halda uppi lögum og reglum í landinu. Lögreglumenn tilheyra örfáum stéttum vinnandi fólks sem…Lesa meira

true

Risahola myndaðist á þjóðveginum

Tveggja metra djúp og eins og hálfs metra breið hola myndaðist við brúna yfir Norðurá fyrr í vikunni. Ekkert slys eða tjón varð af völdum hennar og skiptu þar miklu snör viðbrögð vegfarenda, verktaka og starfsmanna Vegagerðarinnar. Aðeins sex klukkustundum eftir að tilkynnt var um holuna var búið að laga veginn, að því er fram…Lesa meira

true

Þriðjungi starfsmanna sagt upp hjá Vigni G Jónssyni á Akranesi

Í dag var tilkynnt um uppsagnir 15 starfsmanna hjá Vigni G Jónssyni á Akranesi. „Í ljósi samdráttar í sölu afurða vegna Covid faraldursins og loðnubrests síðustu tveggja ára, neyðist félagið að segja hluta starfsfólks síns upp störfum og fara í aðrar hagræðingaðgerðir á næstu vikum og mánuðum. Alls missa 15 starfsmenn Vignis G. Jónssonar ehf.…Lesa meira

true

Skimað fyrir Covid-19 á Akranesi – MYNDASYRPA

Í morgun hófst skimun fyrir Covid-19 á Akranesi. Verður skimað í dag og á morgun, fimmtudag. Það eru Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Íslensk erfðagreining sem standa að skimuninni. Skessuhorn fékk að líta við á sjúkrabílastoðina við Þjóðbraut, þar sem starfsfólk HVE stendur vaktina við sýnatöku. Að sögn heilbrigðisstarfsmanna líkar þeim vel sú tilbreyting sem felst í…Lesa meira

true

Ríkið fær amerískar leitarvélar og samfélagsmiðla til að markaðssetja Ísland fyrir Íslendinga

Til stendur að íslenska ríkið ráðist í 100 milljóna króna kynningarátak í vor sem hefur þann tilgang að hvetja Íslendinga til að ferðast innanlands í sumar og kaupa innlenda vöru og þjónustu. Ferðamálastofu var falið að skipuleggja markaðsherferðina og ráðstafa fjármunum til kynningarátaksins. Fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna tvo daga að ákveðið hafi verið…Lesa meira

true

Starfshópur skipaður til að meta valkosti við Sundabraut

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur falið Vegagerðinni að leiða vinnu starfshóps til að endurmeta og skoða tvo fýsilega kosti um legu Sundabrautar og gera tillögu að framtíðarlausn sem fest yrði í skipulagi. Í hópnum munu sitja fulltrúar Reykjavíkurborgar, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóahafna auk Vegagerðarinnar. Markmið verkefnisins nú er að undirbúa ákvörðun um það hvaða leið…Lesa meira

true

Íbúakönnun um hvað Borgarbyggð stendur fyrir

Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd Borgarbyggðar vinnur nú að gerð markaðsstefnumótunar í samstarfi við markaðsstofuna Manhattan. Verkefnið felst í að búa til heildstæða markaðsstefnumótun og aðgerðaráætlun fyrir sveitarfélagið sem spennandi stað til að búa á, starfa, reka fyrirtæki og heimsækja. Vefkönnuninni lýkur sunnudaginn 3. maí. „Lögð er áhersla á samtal við íbúa í sveitarfélaginu, fyrirtækin og…Lesa meira

true

Góð afkoma bæjarsjóðs Akraneskaupstaðar

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið var lagður fram á fundi bæjarstjórnar Akraness í gær. Rekstrarniðurstaða samstæðu bæjarsjóðs var jákvæð um 655 milljónir króna. Er það 301 milljón betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir, en samkvæmt fjárhagsáætlun var búist við 354 milljónum í rekstrarafgang. Skýrist það fyrst og fremst af auknum útsvarstekjum og fasteignaskatti, að því…Lesa meira

true

Skaginn 3X framleiðir fullkomna kalkúnavinnslulínu fyrir Rússa

Skaginn 3X hefur samið við rússneska fyrirtækið Damate Group um sölu og uppsetningu á sjálfvirkri frystilausn fyrir kalkúnaafurðir. Söluverðmæti búnaðarins er um 350 milljónir króna og mun uppsetningu hans ljúka í haust. Damate Group er stærsti framleiðandi kalkúnafurða í Rússlandi og rekur þar nokkrar verksmiðjur. Framleiðsla síðasta árs var um 131 þúsund tonn af kalkúnakjöti…Lesa meira

true

Garðavöllur á Akranesi kemur mjög vel undan vetri

„Upphaflega var stefnt að því að opna fyrir almennri umferð kylfinga 5. maí næstkomandi. En í ljósi þess hvað Garðavöllur kemur rosalega vel undan vetri og hversu vel hefur gengið að undirbúa völlinn getum við vonandi flýtt opnun og opnað hann sem fyrst, en næstu dagar koma til með að varpa frekari ljósi á það,“…Lesa meira