
Björg, bátur björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ, kom úr slipp í Njarðvík í liðinni viku. Björgin hafði verið í nokkurn tíma í slipp þar sem meðal annars var skipt um öxulþétti í báðum öxlum í skrúfubúnaði bátsins ásamt því að öxulskoðun fór fram, fenderar voru lagfærðir enda voru þeir illa farnir, stjórntæki yfirfarin og barkar smurðir.…Lesa meira








