Fréttir

true

Meira fé í menningu, íþróttir og listir

Akraneskaupstaður eykur fjárveitingu í sjóð tómstunda- og íþróttafélaga til að halda uppi öflugu félags-, tómstunda- og íþróttastarfi fyrir börn og unglinga. Um er að ræða 4,5 milljóna framlag við viðbótar við þær 15,5 milljónir sem fyrir voru í sjóðnum. Er þetta ein af aðgerðum bæjaryfirvalda til stuðnings heilsueflingar, íþróttastarfs, menningar og lista vegna Covid-19 faraldursins.…Lesa meira

true

Veruleg skerðing á akstri Strætó um Vesturland

Frá og með deginum í dag, þriðjudaginn 14. apríl, hefur Vegagerðin ákveðið að þjónusta Strætó á landsbyggðinni verði skert verulega. Um tímabundna aðgerð er að ræða meðan Covid-19 faraldurinn geisar. Áhrif þessara breytinga eru veruleg á áætlun Strætó um Vesturland: Leið 57: Reykjavík – Akureyri verður ekin samkvæmt laugardagsáætlun alla daga á meðan skerðingin er…Lesa meira

true

Heimilt að draga 0,6% frá ofurkældum fiskafla

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Með breytingunni verður heimilt að draga 0,6% frá óunnum ofurkældum (íslausum) afla sem veginn er á hafnarvog. Ofurkæling á fiski er tækninýjung sem Skaginn 3X þróaði fyrir nokkrum árum til vinnslu og kælingar á afla. Þessi nýjung færði afköst…Lesa meira

true

Kynna í hádeginu fyrstu aðgerðir til að aflétta samkomuhöftum

Boðað hefur verið blaðamannafundar ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu í dag. Þar verður tilkynnt hvernig afléttingu samkomuhafta verður háttað. Athygli er vakin á að fundurinn verður í beinni útsendingu hjá Ríkisfréttastofunni. Af þessum sökum verður ekki upplýsingafundur um COVID-19 klukkan tvö í dag, eins og verið hefur undanfarnar vikur.Lesa meira

true

Vegagerðin býður út endurgerð Faxabrautar og grjótvörn

Í byrjun síðustu viku auglýsti Vegagerðin útboð á endurbyggingu Faxabrautar á Akranesi, endurgerð götunnar og bætt grjótvörn. Óskað er eftir tilboðum í endurbyggingu vegkaflans frá Jaðarsbraut að Akraneshöfn, ásamt gerð grjótvarnar og tilheyrandi lagnavinnu. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar og veitufyrirtækja. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2021. Í verkinu felst…Lesa meira

true

Skessuhorn búið til prentunar í dag

Starfsfólk Skessuhorns er nú mætt á vaktina eftir mjög svo innilegt páskaleyfi. Í dag verður tölublað vikunnar búið til prentunar og því dreift á morgun til lesenda. Þeir sem vilja koma á framfæri efni í næsta blað, geta sent tölvupóst á skessuhorn@skessuhorn.is eða pantað auglýsingar á auglysingar@skessuhorn.is Minnum einnig á síma 433-5500.Lesa meira

true

Lítil breyting íbúafjölda á fjórum mánuðum

Íbúar á Vesturlandi voru 16.672 þann 1. apríl síðastliðinn og hafði einungis fjölgað um sex einstaklinga síðastliðna fjóra mánuði, frá 1. desember 2019. Íbúum fjölgaði í þremur sveitarfélögum í landshlutanum á tímabilinu, um 7,7% í Skorradalshreppi, um 2,4% í Eyja- og Miklaholtshreppi og um 1,9% í Snæfellsbæ. Í öðrum sveitarfélögum stendur íbúatala ýmist í stað…Lesa meira

true

Engin ný smit á Vesturlandi fjórða daginn í röð

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að birta tölur um smitaða af Covid-19 veirunni á Vesturlandi. Gleðilegt er að engin ný smit hafa verið greind síðustu daga í landshlutanum. Alls hafa 39 smitast af veirunni og 20 þeirra eru enn í einangrun. Átta eru í einangrun á starfssvæði heilsugæslunnar á Akranesi, sjö á…Lesa meira

true

Leita við strönd höfuðborgarsvæðisins að Söndru Líf

Fjórða daginn í röð leita björgunarsveitir, lögregla, Landhelgisgæslan og fleiri að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long, 27 ára. Hennar hefur verið saknað frá því á skírdag en bíll hennar fannst mannlaus á Álftanesi. Í dag verður leitað með strandlengjunni frá Gróttu og suður fyrir Álftanes. Þeir sem telja sig geta gefið upplýsingar um ferðir hennar eru…Lesa meira

true

Engin mót yngri landsliða í körfunni

Stjórn körfuknattleiksins, FIBA Europe, hélt stjórnarfund í liðinni viku og ræddi framhald mótahalds í sumar. Stjórnin komst að þeirri niðurstöðu að engin mót yngri landsliða fari fram í sumar á þeirra vegum. Það þýðir að Evrópukeppnir U16, U18 og U20 liða fara ekki fram árið 2020 í öllum deildum. Alls eru um 16 mót á…Lesa meira