Fréttir

true

Auknar lántökur OR sem greiðir engu að síður út arð til eigenda

Á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) síðastliðinn miðvikudag voru samþykktar aðgerðir til að bregðast við þeim afleiðingum sem Covid-19 faraldurinn hefur í för með sér fyrir atvinnulífið. „Með aðgerðunum vill OR sýna samfélagslega ábyrgð í verki og auka fjárfestingar í verkefnum sem hafa mikil áhrif í samfélaginu með það að leiðarljósi að viðhalda atvinnustiginu í landinu.…Lesa meira

true

Reikna má með að samkomuhald verði í lágmarki allt þetta ár

Nú er gert ráð fyrir að takmarkanir verði settar á fjöldasamkomur í sumar vegna Covid-19 faraldursins. Áfram mun fólk þurfa að halda tveggja metra fjarlægð, jafnvel út þetta ár. Þetta eru meðal skilaboða sem sóttvarnalæknir boðaði nú um helgina en vafalítið mun verða farið eftir tilmælum embættisins. Eftir 4. maí næstkomandi er engu að síður…Lesa meira

true

Engin nýsmit annan daginn í röð

Annan daginn í röð er engin fjölgun nýsmitaðra af Covid-19 veirunni á Vesturlandi samkvæmt nýjum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Alls hafa 39 einstaklingar greinst með smit, 77 eru nú í sóttkví og 22 eru í einangrun. Það þýðir að 17 hafa lokið einangrun. Flestir greindir einstaklingar eru í umdæmi heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi, eða…Lesa meira

true

Þrjátíu þúsund hafa sótt um hlutabætur

Yfir 30 þúsund manns höfðu fyrir páska sótt um hlutabætur vegna minnkaðs starfshlutfalls. Þetta kemur fram í tölum frá Vinnumálastofnun. Flestar eru umsóknirnar úr ferðaþjónustu en yfir 12 þúsund starfsmenn í greininni hafa sótt um bætur. Úr verslun og vöruflutningum hafa yfir sex þúsund umsóknir borist. Dreifing umsækjenda milli landshluta er að mestu í samræmi…Lesa meira

true

Innileikur Skessuhorns um páskana – Baráttan um besta brandarann!

Skessuhorn efnir til Innileiks um páskahelgina. Lesendur geta nú tekið sig til og sent ritstjórn besta brandarann sem það kann og freistað þess að vinna risastórt páskaegg! (Athugið að það má líka borða páskaegg eftir páska). Eina sem þarf að gera er að senda okkur tölvupóst með brandaranum á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is Nafn og símanúmer þarf…Lesa meira

true

Bætt geðheilsa er gulli betri – ný vefsíða Hugrúnar komin í loftið

Hugrún geðfræðslufélag hefur sett í loftið vefsíðuna gedfraedsla.is. Félagið er rekið í sjálfboðaliðastarfi af háskólanemum og snýr öll starfsemi félagsins að því að bæta geðheilsu ungmenna á Íslandi og auka aðgengi að upplýsingum um geðheilsu. Á síðunni má nálgast upplýsingar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði. „Nú sem aldrei fyrr er sérlega mikilvægt að hlúa að…Lesa meira

true

Vorblíða á skírdegi

Það var vor í lofti í gær, á skírdegi. Landsmenn nýttu það margir og gengu um þekktar gönguleiðir en aðrir héldu á fáfarnari slóðir. Flestir virtust gæta þess vel að halda sig fjarri öðru fólki, enda rík áhersla lögð á að fólk virði fjarlægðarmörk og tillit til samborgaranna á tímum smithættu. Meðfylgjandi myndir tók Helena…Lesa meira

true

Landsbjörg þarf að bregðast við skertu tekjustreymi vegna Covid

Frá því að samkomubann stjórnvalda var sett á vegna kórónufaraldursins hafa stjórnendur og starfsfólk Slysavarnafélagsins Landsbjargar rýnt fjárhagsáætlun ársins með það að markmiði bregðast við minnkandi tekjustreymi. Það skýrist m.a. vegna lokunar söfnunarkassa Íslandsspila, lokunar Slysavarnaskóla sjómanna, fækkun námskeiða Björgunarskólans, samdrætti í sjúkrakassasölu og fleiru. „Þegar hefur verið hægt að bregðast við á ýmsa lund…Lesa meira

true

Lítil fjölgun smitaðra á Vesturlandi

Fjöldi greindra smita af Covid-19 er einu fleiri í dag en gær, eða 39 einstaklingar á Vesturlandi. Í upplýsingum frá aðgerðageymi Almannavarna Vesturlands kemur fram að alls eru 109 í sóttkví í landshlutanum og 28 af þeim sem smitast hafa eru enn í einangrun. Það þýðir að ellefu eru lausir úr einangrun og búnir að…Lesa meira