
Rafmagn fór af Grundarfjarðarlínu við Kötluholt um klukkan 7 í morgun. Samkvæmt tilkynningu frá Rarik er enn unnið að viðgerð. Þá fór rafmagn að Saurbæjarlínu í Dölum seint í gærkvöldi, en viðgerð lauk um þrjúleitið í nótt.Lesa meira

Rafmagn fór af Grundarfjarðarlínu við Kötluholt um klukkan 7 í morgun. Samkvæmt tilkynningu frá Rarik er enn unnið að viðgerð. Þá fór rafmagn að Saurbæjarlínu í Dölum seint í gærkvöldi, en viðgerð lauk um þrjúleitið í nótt.Lesa meira

Um miðja síðustu viku hófst sala á Ísey skyri í um 50.000 verslunum í Japan. Um leið hófst eitt víðtækasta dreifingarverkefni sem um getur á íslenskri vöru í erlendri smásölu til þessa. Þrátt fyrir að vera ein dýrasta mjólkurvaran í Japan þá hefur skyrið fengið góða uppstillingu eða staðsetningu á flestum stöðum, enda seldist það…Lesa meira

Sveitarfélagið Borgarbyggð er nú byrjað dreifingu á brúnum tunnum í Borgarnesi og verður því verki lokið á næstu dögum og vikum, eins og segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Tunnurnar verða síðan tæmdar á þriggja vikna fresti bæði í dreifbýli og þéttbýli og því sem safnast skilað til jarðgerðar. Í brúnar tunnur verður íbúum gert…Lesa meira

Fyrir rúmri viku var auglýst eftir fólki í bakvarðarsveit fyrir Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi. „Okkar starfsemi eru þannig að það er ekki hægt að minnka eða hætta þjónustu og við þurfum að hafa starfsfólk til taks allan sólarhringinn, alla daga. Við óskuðum því eftir aðstoð frá einstaklingum sem væru til í að stökkva…Lesa meira

Tryggingafélagið Sjóvá hefur tilkynnt að það gefi viðskiptavinum sínum afslátt af bílatryggingum sem nemur iðgjaldi í heilan mánuð. Það er gert til að koma til móts við viðskiptavini en einnig vegna minni umferðar. „Umferð hefur dregist mikið saman eftir að samkomubann tók gildi. Gera má ráð fyrir að slysum og tjónum fækki samhliða því,“ segir…Lesa meira

Í samkomubanni sem nú er í gildi eru skiljanlega engar samkomur. Landsmenn hafa síðustu helgar fengið tónleika heim í stofu frá hinum ýmsu listamönnum eins og Helga Björns og Skítamóral, svo einhverjir séu nefndir. Grundarfjarðarkirkja hefur tekið á það ráð að fara sömu leið og í morgun klukkan ellefu var messa í kirkjunni sem send…Lesa meira

Frá því í gær hefur tala greindra Covid-19 tilfella á Vesturlandi hækkað um þrjá. Nú eru 35 greindir með veiruna og skiptast þannig að 21 er veikur á svæði heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi, 9 á Akranesi, 4 í Stykkishólmi og einn í Grundarfirði. Jafn margir eru í einangrun, að undanskyldu því að einn einstaklingur á Akranesi…Lesa meira

Nú í dag er í gildi appelsínugul viðvörun fyrir landið allt. Nokkuð misjafnt er þó hvenær draga fer úr vindhæð, en hér um vestanvert landið, við Faxaflóa og Breiðafjörð, verður það ekki fyrr en komið er fram á nóttina. Við Faxaflóa og Breiðafjörð er spáð norðaustan roki og hríðarveðri og mjög snörpum vindhviðum við fjöll.…Lesa meira

Nú eru 32 greindir með Covid-19 smit á Vesturlandi samkvæmt samantekt aðgerðadeildar Almannavarna á Vesturlandi. Það er sami fjöldi smitaðra og var í gær. Tuttugu þeirra eru á svæði Heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi, átta á svæði heilsugæslunnar á Akranesi, þrjú í Stykkishólmi og eitt í Grundarfirði. Ekkert smit hefur enn verið greint á starfssvæði heilsugæslustöðvanna í…Lesa meira

Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands hafa aukið í viðvaranir vegna óveðurs á morgun, sunnudag. Búist er við að strax í dag taki að hvessa um allt land og mjög slæmu veðri er spáð í nótt og allan sunnudaginn. Appelsínugul viðvörun er í gildi. Það verður stormur eða rok á öllu landinu, úrkoman mest á Norður- og…Lesa meira